Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Síða 32
32
DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983.
Bílútvarpstæhi — hljóm-
flutningsherfí, í btlcc
— Æukin tæhni — auhnar hröfur. Útvarp fæst fyrir 1100 hr. og sambyggö
herfi frá 7500 hr. og upp í46000hr.
Sjónvarpsmidstödin, Síduniúla 2, selur Audioline
tœki i bíla og þar er hagt ad velja úr !2 gerdum tcekja
og um 40 mismunandi geröum af hátölurum.
Audioline útvarps- og segulbandstæki kosta frá 2830
kr. en tœki med FM stereo ad auki kostar adeins 3560
kr. Hjá Sjónvarpsmidstödinni má fá þokkalegt kerfi
med hátölurum fgrir um 4500 kr. og vandad kerfi fyrir
um 10000 kr. Stakir 10 vatta hátalarar kosta 880 kr.,
35 vatta kosta 1685 kr. og upp í 3000 kr. fyrir ML 210
sem er 60 vatta hátalari fyrir bíla. Tónjafnarar
(equalizer) kosta frá 2900 kr. (2 x 15 vött) og upp í
5600 kr. (4x25 vött). Magnari t.d. fyrir 2x25 vött
kostar 2080 kr. en fyrir 4x 25 vött kostar magnari
3000 kr.
Þeir hjá Radióbœ i Ármúla 38 hafa alltaf verid stórir í bíltcekjum. Þar
eru á boðstólum fjölmargar gerðir af Audiovox útvörpum með eða án
segulbands og hátölurum af öllum hugsanlegum gerðum. Nú bjóða þeir
sérstakt tilboðsverð á vönduðu sambyggðu tceki sem er með FM og AM
bglgjum, innbyggðum tónjafnara og 45 vatta kraftmagnara. Þetta tæki
kostaði áður 11144 kr. en býðst nú á kynningarverði sem er 7244 kr. Hjá
Radíóbæ má fá þokkalegt tœki með hátölurum fgrir 3453 kr. Staka
hátalara fyrir vandaðri hljómflutning má fá þar fyrir um 2000 kr.
parið. Ef þú hefur áhuga á kerfi sem verulegt púður er íþá er Radíóbær
með Audiovox samstæðu með mögnurum, 5 banda tónjafnara og
hátalarasamstœðu á aðeins 20000 kr. og er styrkurinn hvorki meiri né
minni en2x60 vött.
Hjá Radíóbúðinni í Skipholti er úrval tœkja frá Marantz og Roadstar.
Roadstar er japanskt fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í bíltækjum og
framleiðir ekkert annað. Roadstar bíltækin eru af ótal mismunandi
gerðum og mismunandi að útliti, eitt þeirra er t.d. ferkantað tæki sem
minnir á flugvélarmælaborð. Marantz tækin eru silfurlituð og er það
nýjung í útliti.
Hjá Radíóbúðinni fást þokkaleg sambyggð tæki frá Roadstar fyrir 7200
kr. og eru þá hátalarar innifaldir. Heilar samstæður með mögnurum
kosta uppí 20000 kr. Á mgndinni er sölumaður með nýja gerð fjar-
stýrðra kraftmagnara frá Roadstar en þeir eru með stífum en stillan-
legum barka þannig að hægt er að hafa takkana þar sem best hentar
hverju sinni.
Hljómbær hf. selur Pioneer.
Þokkalegt útvarps- og snældutæki
kostar 6180 kr. með hátölurum.
Hægt er að auka gæðin verulega
með því að bæta við 20 vatta
magnara sem kostar 1750 kr. Ef
þú vilt fara enn hærra þá hafa
þeir tónjafnaratmagnara fyrir
mun meiri styrk og bergmálsgjafa
(ecco) efþess gerist þörf.
Það fullkomnasta frá Pioneer er
verulega vandað kerfi,,Electronic
Crossover Network” eins og það
kallast á ensku fagmáli. Ef þú vilt
aðeins það vandaðasta þá er þetta
tilboðið frá Hljómbœ: Út-
varp/segulband af fullkomnustu
gerð 15.150 kr. Sérstakur „Bow”
magnari 4780 kr. Tveir 20 vatta
magnarar kr. 4220, tveir hátalar-
ar fyrir bassasvið kr. 1340, tveir
fyrir miðtóna kr. 1420 og tveir
fyrir hátiðnisviðið kr. 4080. Síðan
kemur tónjafnari 3640 kr. og þá
ertu kominn í samtals kr. 43.630.