Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Síða 3
DV. LAUGARDAGUR5. MARS1983.
3
Stálberg tekið til
gjaldþrotaskipta
— grunur leikur á að eignum haf i verið skotið undan
Tommi með miUjónina sem sá fær er kaupir milljónasta hamborgarann.
Með milljóninni fyigir tíu þúsund króna ávísun. DV-mynd: GVA
Tommi um milljónasta hamborgarann:
„SEL HANN Á
SUNNUDAGINN”
„Eg sel hann á sunnudaginn,”
sagði veitingamaðurinn kunni, Tóm-
as Tómasson, sem betur er þekktur
sem Tommi í Tommaborgurum, er
DV spurði hann hvenær hann myndi
selja milljónasta hamborgarann.
Tommi byrjaði með tvær hendur
tómar eins og það er kallað, fyrir um
tveimur árum, er hann opnaði ham-
borgarastað við Grensásveg. Síðan
hefur þróunin verið ör.
Nú rekur hann hamborgarastaði
við Lækjargötu, Laugaveg, Grensás-
veg, í Hafnarfirði, Keflavik og á
Akureyri.
Þegar milljónasti hamborgarinn
verður seldur á sunnudaginn, mun sá
er hann kaupir, fá eina milljón
gamalla króna að gjöf. Er þetta
stærðarseðill sem Tommi hefur látið
gera og mun örugglega sóma sér vel
hjáhinumheppna.
Ekki þýðir þó að skipta seölinum í
banka og lætur því Tommi fylgja tíu
þúsund króna ávísun, með milljón-
irinL
Og þá er bara að sjá hver kaupir
þann milljónasta á sunnudaginn.
-JGH
Ekkert gervigras í sumar
Fyrirtækiö Stálberg hf., sem fram-
leiddi seilingarvélar fyrir herta þorsk-
hausa, hefur nú verið tekið til gjald-
þrotaskipta.
Eins og DV greindi frá á síðasta ári
var mikill misbrestur á að vélar frá
Tvö bílaumboð hafa undanfarið
boðiö bila til sölu á vildarkjörum svo
nánast hefur verið um útsölu að ræða.
Þessi umboð eru Jöfur hf., sem selur
Skoda, og Bifreiðar og landbúnaðar-
vélar, semselur Lödu.
Samkvæmt upplýsingum Haralds
Sigurðssonar, sölumanns hjá Jöfri, er
umboðið að selja Skoda-bifreiðar af ár-
gerð 1982 á töluvert lækkuðu verði.
Lækkunin stafar af hækkun dollars á
síðastliönu árí sem varð rúmlega
100%. Mikiö af bílum frá í fýrra er
óselt og er því verið að rýma fyrir nýj-
um bílum af árgerð 1983. En hvað
kosta þeir?
„Þetta eru f jórar gerðir af Skoda, sú
ódýrasta er á 85.400 og sú dýrasta á
117.700. Við lánum allt að helming í
ódýrustu gerðinni og afganginn má
siðan greiða á 6 mánuðum,” sagði
Haraldur.Ekkikvaðsthann vita hvað
fyrirtækinu væru nothæfar og -víðast
voru þær aðeins í notkun í nokkra daga
áður en bilun kom upp. Um eitt hundr-
að vélar munu hafa verið seldar áður
en fyrirtækið hætti framleiöslu síðast-
liöiö haust, þar af voru 10 vélar seldar.
margir bílarnir væru, en þeir hefðu
selst mjög vel.
Hjá Bifreiðum og landbúnaöarvélum
hefur staðið yfir sala á Lada-bifreiðum
á lækkuðu verði. Guðmundur Viðar
Friðriksson hjá söludeild B & L, sagði
að farið hefði verið fram á lækkun við
verksmiðjuna á árgerð 1982 og hefði
hún fengist. Nemur hún um 15—50.000
krónum á öllum tegundum. Sumt er nú
uppselt hjá fýrirtækinu, svo sem Lada
Sport, sem lækkaði úr 208.000 í 158.000.
Eftir eru þrjár aðrar gerðir, að sögn
Guðmundar, og er verð þeirra 109.000,
127.500 og 129.400. Lítið er orðið eftir af
tveimur þessara gerða og bjóst
Guðmundur við að bílarnir myndu
klárast fljótlega, trúlega í byrjun
mars. Greiösluskilmálar hafa verið
hagstæöir; helmingur verðsins borg-
ast út og afgangurinn á sex mánuðum.
-PÁ
tilNoregs.
I bréfi sem einn kaupenda í Noregi
hefur sent Kristni Clausen fyrrum um-
boösaðila Stálbergs í Noregi kvartar
hann yfir því að vélin hafi aðeins virk-
að í nokkrar klukkustundir eftir að hún
var sett upp og þrátt fyrir viögerðir
hafi hún ekki verið nothæf nema í 2 til 3
daga. Segir kaupandinn í bréfinu að
ekki sé forsvaranlegt aö kasta 80 þús-
und norskum krónum í vél sem aldrei
sé í nothæfu ástandi. Báðir umboðs-
aöilar Stálbergs í Noregi, Kristinn
Clausen og Sivert Eidnes A/S, hættu
samstarfi sínu við fyrirtækið af þess-
um sökum.
Allflestir kaupendur seilingarvél-
anna hér á landi höfðu sömu sögu að
segja, vélarnar voru ónothæfar vegna
sífelldra bilana. Nokkrir þeirra hafa
farið í riftunarmál við Stálberg vegna
kaupanna og hafa dómar fallið fyrir-
tækinu í óhag. Hins vegar hefur því
verið borið við að fyrirtækið væri
eignalaust og gæti ekki endurgreitt.
Því hefur verið óskað eftir gjaldþrota-
skiptum, enda leikur grunur á að eign-
ir Stálbergs hafi verið yfirfærðar í önn-
ur fyrirtæki. Gjaldþrotaskiptin voru
auglýst 18. febrúar síðastliðinn og
verða kröfur að hafa borist innan
tveggjamánaöa.
Hönnuður vélarinnar, Alexander
Sigurðsson og fyrrum aðaleigandi Stál-
bergs, seldi hlut sinn í fyrirtækinu
síðastliðið haust og var framleiðslu þá
hætt. Aðaleigendur þess eru nú Jón
Hilmarsson endurskoðandi sem er
stjómarformaður þess og Hilmar
Jónsson faðir hans sem er fram-
kvæmdast jóri f yr irtækisins. ÖEF
Horfur eru á að ekkert verði úr lagn-
ingu gervigrass í Laugardal í sumar.
Niðurstöður jarðvegsrannsókna hafa
reynst neikvæðar.
Verkfræðingar borgarinnar telja
óráðlegt að legg ja gervigrasið í sumar.
Þeir telja hættu á sigi þar sem jarðveg-
urinn sé ekki nógu traustur.
Þeir leggja þess í stað til að leik-
vangurinn fyrir framan Laugardals-
höll verði grafinn upp í sumar og
undirbyggður betur. Gervigrasið verði
svo lagt á vorið 1984.
-KMU.
Tvö bflaumboð bjóða vildarkjör:
Skoda og Lada
á útsöluverði
Sumarhús í
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899