Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Side 4
4 DV. LAUGARDAGUR 5. MARS1983. Niðurstöður f jölmiðlakönnunar Sambands íslenskra auglýsingastofa sem unnin var af Hagvangi: DV ER AÐ RJÚFA EINOK- UN MORGUNBLAÐSINS DV er aö rjúfa yfirburöastööu Morgunblaösins á íslenskum dag- blaöamarkaöi. Þetta eru niðurstöður fjölmiölakönnunar Sambands ís- lenskra auglýsingastofa sem Hag- vangur hefur unniö fyrir sambandiö. Samkvæmt könnuninni lesa 69,83% þjóöarinnar Morgunblaöiö virka daga en 64,17% þjóðarinnar lesa DV. Könnunin kynnt á blaöamannafundi í gær. Gunnar Steinn Pálsson fundarstjóri skýrir könnunina. DV-mynd GVA Önnur dagblöð eru langt aö baki þessum tveimur blööum. Þannig lesa 29,03% Tímann, 16,26% Þjóöviljann og3,7% Alþýöublaöiö. Sé litiö á helgarútgáfur dagblaö- anna kemur einnig í ljós aö Morgun- blaöiö og DV hafa yfirburöastööu. Þannig lesa 73,71% þjóðarinnar helg- arútgáfu Morgunblaösins en 68,36% helgarblaö DV. Helgarblað Tímans lesa 32,28%, 29,69% lesa Helgarpóst- inn og 19,99% lesa helgarblaö Þjóö- viljans. Lesbók Morgunblaðsins lesa 68,36. I könnuninni var ekki athugaður sérstaklega lestur mánudagsblaðs DV. Þaö blað kemur út í stærstu upp- lagi DV, eöa nálægt fjörutíu þúsund- umeintaka. Sé aldursskipting þeirra sem lesa blööin skoðuö kemur í ljós aö yngra fólk les DV mest en þegar í elstu hópa kemur hefur Morgunblaöið vinninginn. Þannig lesa 64,77% fólks á aldrinum' 20—34 ára DV en 62,77% Morgunblaöiö. Þetta er sá hópur er nýlega hefur stofnað heimili og velur sér blað í byrjun búskapar. Sé litið á aldurshópinn yfir 50 ára lesa 73,22% Morgunblaöiö en 58,24% DV. Önnur blöö eru sem fyrr langt aö baki. Könnunin kannar lestur blaöanna eftir atvinnustéttum. Þar kemur í Ijós aö DV er langmest lesiö af fólki í sjávarútvegi. Þannig lesa 70,87% fólks í sjávarútvegi DV á hverjum virkum degi. Morgunblaöiö lesa aft- urá móti 54,12% fólksí sjávarútvegi. Meðal manna í opinberri þjónustu hefur Morgunblaöiö vinninginn. Þannig lesa 79,90% manna þar Morgunblaöiö en 62,16% DV. í iðnaöi er jafnræöi meö þessum tveimur blöðum, þar lesa 69,01% Morgun- blaöið en 68,59% DV. í landbúnaði lesa flestir Tímann, eöa 55,63%. DV kemur næst meö 38,52% og Morgun- blaöiö í þriöja sæti meö 30,44%. Sé litiö á lestur dagblaöanna á virkum dögum, miöað við búsetu, kemur í ljós aö DV er mest lesið allra blaða í kaupstööum landsins. 62,87% lesa DV. Morgunblaöiö lesa 57,38%. Á höfuðborgarsvæöinu er Morgun- blaöiö mest lesið, eöa af 85,01%. DV lesa 69,85% allra á höfuðborgarsvæð- inu. 1 dreifbýli er Timinn mesl les- inn, eöa af 53,11%. DV kemur næst með 42,90% lestur og Morgunblaðiö í þriöja sæti meö 34,84% lestur. Á höfuðborgarsvæöinu lesa flestir helgarútgáfu Morgunblaösins, eða 89,61%. Lesbók sama blaðs lesa 78,90% höfuöborgarbúa og 74,61% lesa helgarblaö DV. I kaupstööum landsins lesa flestir helgarblaö DV eöa 66,35%. Næst kemur Morgun- blaöið með 60,90%. I dreifbýlinu lesa flestir helgarblaö Tímans eöa 51,02%. DV fylgir þar á eftir meö 46,07% lestur en 35,47% dreifbýlis- lesenda lesa helgarblað Morgun- blaösins. Hér á eftir fara nokkrar töflur um einstaka þætti könnunarinnar. -JH UM KÖNNUNINA I könnun Sambands íslenskra auglýsingastofa lét Hagvangur hf. velja 2000 manna úrtak samkvæmt þjóöskrá hjá Reiknistofnun Háskólans og náöi þaö yfir allt landiö. Aldur svarenda var á bilinu 13—67 ára. Þetta er breiöara bil en i tveimur fyrri f jölmiölakönnunum en þá var miöaö viö aldurinn frá 16—67 ára. Nettóúrtak könnunarinnar var 1896 menn. Þá höföu verið teknir frá þeir sem voru fjarverandi, erlendis, fluttir í annaö sveitarfélag eöa látnir. Þeir sem svöruöu voru 1.336 og var svarprósenta því 70,5% af nettóúrtaki. Samanboriö við fyrri kannanir hefur tekist aö auka svar- prósentuna verulega. Samsvarandi tölur úr fyrri könnunum eru 58,04% og 63,22%. -JH Löður vinsæl- ast í sjónvarpi Sjónvarpsnotkun var sérstaklega könnuö vikuna 31. október til 6. nóvember sl. Þar kemur í ljós aö vinsælasti þáttur vikunnar var Lööurmeö 74,10% skoöun. íöörusæti voru fréttir á sunnudegi með 70,96%. Númer 3 voru þeir félagar Tommi og Jenni meö 70,83%, 4. Dallas meö 69,01%, 5. Félagsheimiliö meö 67,66%, 6. Sjónvarp næstu viku meö 66,02%. 7. fréttir á mánudegi meö 65,27%, 8. Fjandvinir með 65,27% , 9. Schultz í herþjónustu meö 64,90% og í ’ 10. sæti fréttir á föstudegi meö 63,85%. -JH. Videoið ryður sér til rúms 1 könnuninni var ný tegund fjöl- miölunar skoðuð, myndsegulbönd eða video. Annars vegar var spurt hvort aöstaða væri á heimilinu til aö horfa á myndsegulband og hins vegar, ef slík aöstaða var fyrir hendi, hvort um eigiö tæki, kapal- kerfi eöa bæöi eigið tæki og kapal- kerfiværiaöræöa. 1 ljós kom aö 15% heimila eiga eigiö myndsegulbandstæki. Sé litið á höfuðborgarsvæöiö kemur í Ijós aö 30% heimila eiga myndsegulband og er þá bæöi átt viö eigiö band og aðgang aö kapalkerfi. I kaupstööum landsins er sambærileg tala 23,4% og ídreifbýlinu6,8%. -JH. Tafla 1. Lestur dagblaða á virkum dögum á móti aldri 13-15 16-19 20 - 34 35 - 49 50 ára ára ára ára ára og eldri Alþýðublaðið 0,51 0,57 1,87 5,19 10,08 DV 66,28 60,03 66,77 69,34 58,24 Morgunblaðið 70,08 68,68 62,25 75,00 73,22 Tíminn 23,96 29,11 24,94 30,63 39,08 Þjóðviljinn 11,08 7,56 16,61 19,50 20,64 Tafla 2. Lestur dagblaða á virkum dögum á móti starfsgrein: Iðnaður Landbúnaóur Opinb. þjón. Verslun Sjávarútv. Heimavinnandi Nemi Annað Alþýðublaóíð 2,91 0,39 10,54 4,11 1,76 2,16 0,65 4,37 DV 69.01 38,52 62,61 73,93 70,87 61,47 60,31 67,68 Morgunblaðið 68,59 30,44 79,90 80,01 54,12 69,58 75,46 65,77 Tíminn 22,26 55,63 35,30 29,51 21,03 26,86 24,47 26,60 Þjóðviljinn 11,82 8,67 32,90 15,18 11,52 13,65 12,53 15,12 Tafla 3 Lestur dagblaða á virkum dögum eftir búsetu: Höfuðborgarsvæðíð Kaupstaðir Dreifbýli Alþýðublaðið 5,53 1,80 0,93 DV 69,85 62,87 42,90 * Morgunblaðið 85,01 57,38 34,84 Tíminn 25,58 25,80 53,11 Þjóðviljinn 20,20 12,34 9,96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.