Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Page 13
DV. LAUGARDAGUR 5. MARS1983. 13 Mannlíf að norðan 99Spékoppur" Akureyringa — ný bék væntanleg á markaðinn „Bókin geymir gamanmál um Akureyringa og atburöi nýliðins árs á Akureyri i spéspegli sagöi Ragnar Lár aðspuröur um bók sem væntanleg Ragnar Lir teiknar Akureyringa i spóspegli. er um miöjan mánuðinn. Aö útgáfunni standa auk Ragnars þeir Rögnvaldur Rögnvaldsson ráðhúsherra og Þórður „Doddi” Pálmason, barþjónn og skipasmiður. ,,Spékoppur” heitir bók- in og um tilurð hennar orti Rögnvald- ur: Ýmsum þætti ævin þur andlaus bæöi og loppin. Ef Ragnar, Doddi og Rögnvaldur réttu þeim ekki koppinn. „Bókin er í myndum og máli, þar á meðal bundnu máli eftir Rögnvald,” hélt Ragnar áfram. „Eg er búinn aö vera með þetta í maganum frá því ég flutti til Akureyrar en fæðingin hefur dregist á langinn. Bæjarfélagið er ekki of stórt, en það er samt nógu stórt til að svona lagað geti gengið.” — Ertu ekkert hræddur um að Akur- eyringar séu hörundsárir? „Nei, það er ég ekki, því þó sneitt sé að mönnum í bókinni þá er það ekki gert á þann hátt að viö óttumst máls- höfðun. Bókin er í nokkurs konarann- álsformi og inni á milli eru auglýsing- ar sem þó eru hluti af efninu og í létt- um dúr. Okkur hefur verið mjög vel tekið sem sést best á því að við urðum að loka fyrir auglýsingar. Það hlýtur að vera Islandsmet,” sagði Ragnar og hló við. Ragnar Lár var í mörg ár með Spegilinn, samvisku þjóðarinnar— góða eða vonda eftir aðstæðum. „Spé- koppur” Akureyrar verður áþekkur, í brotinu A4 og blaðsíðurnar verða aö líkindum 64. -GS/Akureyri. Rögnvaidur Rögnvaldsson ráðhús- herra sór um bundið mái i bókinni. DV-myndir GS/Akureyri Endurtekið vegna mikillar þátttöku NÁMSKEIÐ í JAPANSKRISTJÓRNUN FYRIR STJORNENDUR FYRIRTÆKJA OG STOFNANA VERÐUR ENDURTEKIÐ ÞRIÐJUDAGINN 8. MARS J. INGIMAR HANSSON Fyrirlesari Ingimar fór nýlega í námsferð til Japan. Feröin var skipulögð af Banda- riska iðnaðarverkfræðinga- félaginu. Auk námskeiða í japanskri stjómun var faríð í heimsóknir til iðnfyrirtækja. J. Ingimar Hansson er rekstrar- verkfræðingur að mennt og stofnaði Rekstrarstofuna 1974. GUNNAR H. GUÐMUNDSSON Fyrirlesari Gunnar hefur annast athuganir þær sem Rekstrarstofan hefur staðíð fyrir á japanskri iðnaðar- uppbyggingu og áhrifum hennar í Bandaríkjunum og á Vestur- löndum. Gunnar H. Guðmundsson er rekstrarverkfræðingur aö mennt og er ráðgjafi á sviði stjórnunar, skipulags, upplýsingakerfa og tölvumála. BOLLI MAGNÚSSON Fundarstjóri Bolli starfaöi um skeið í Japan sem fulltrúi togarakaupenda og kynntist starfsháttum við skípasmíðar þar i landi. Bolli Magnússon er skipatækni- fræðingur að mennt og er ráð- gjafi á sviði skipasmíða og útgerðar. Lærum af forystuþjóð á sviði stjórnunar. Veist þú: • Hvaö núllgallastefna er? • Hvers vegna aukin gæöi leiöa til lægri framleiðslu- kostnaöar? • Hvað er Poka Yoke? • Hvers vegna blönduð framleiðsla er hagkvæmari en fjöldaframleiösla? • Af hverju verkföll eru nær óþekkt í stærri iðnfyrir- tækjum í Japan? • Hvernig staðið er að starfsmenntun í Japan? • Hvernig unnt er að ná og viðhalda miklum afköstum? • Hvað núllbirgðastefna er? • Hver eru tengsl iðnfyrirtækja og banka í Japan? • Er allt sem sýnist? Námskeiðið verður haldið að Hótel Loftleiðum, Leifsbúð, þriðjudaginn 8. mars kl. 13.30 til 18.00. Þátttökugjald kr. 2.500,- Vinsamlegast tilkynniö þátttöku í síma 44033 sem fyrst. Fjöldi takmarkaður. Ráðgjafaþjónusta Stjórnun — Skipulag Skipulagning — Vinnurannsóknir Flutningatækni — Birgðahald Upplýsingakerfi — Tölvuráðgjöf Markaðs- og söluráðgjöf — Samstarf sjálfstæðra rekstrarráðgjafa á mismunandi sviðum — stjórnenda- og starfsþjáifun Hamraborg 1 202 Kópavogi Sími 91-44033 REKSTRARSTOFAN BÆKUR TIL SÖLU Við erum þessa dagana að taka fram nokkur góð söfn íslenzkra bóka frá öllum tímum prentsögunn- ar. Nokkur dæmi: Reykjahlíðarættin, Islenzkar ártíðaskrár (með töflunum), Skútustaðaætt, Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi eftir dr. Guðna Jónsson, Manntal á Islandi 1703, Manntal á Islandi 1816, Niðjatal Eiríks Olafssonar á Litlalandi, Skagfirðingabók 1—10, bækur Arna Ola: Grafið úr gleymsku og Blárra tinda blessað land o.fl. bækur höf., Skólameistarasögur Sögufélags 1—7, Vatnaniður eftir Björn Blöndal, Alþingismannaförin 1906, Bókaskrá Olaf Klose og Bókaskrá Gunnars Hall, Það vorar um Austuralpa, hin umdeilda bók Knúts Amgrímsson- ar, Um Njálu eftir dr. Einar Ölaf, Heimsstyrjöldin 1914—1918 eftir Þorstein Gíslason, Ljóðmæli eftir sr. Jón Þorleifsson prest, ásamt Þjóðsögum, Kh. 1868, Samsom fríði og Kvintalín kvennaþjófur, riddarasaga, A refOstigum eftir Upton Sinclair, Fróðlegt Ijóðasafn, 2. hepti, Ak. 1857, I óaðgætni eftir Þórð Sveinsson lækni, Bókin um veginn (gamla útgáfan) Misjafn sauður í mörgu fé eftir Eirík á Brúnum, Svartálfadans eftir Stefán Hörð Grímsson og Glugginn snýr í norður eftir sama, Eitt kvöld í júní, fyrsta ljóðabók Einars Braga, Ljóðmæli Jóns Olafssonar, Rvík 1896, Ljóðmæli Jónasar Hallgrimssonar, frumútgáfan Kh. 1847, Lenínisminn eftir Jósep Stalín, Hvað vOl Kommúnistaflokkur Islands? (gamli flokkurinn), „Helgakver” (Hálfdanarsonar), Æfi- minningar frá Letigarðinum eftir Armóð Vergangsson, Söng- bók Jafnaðarmanna, Starfsárin og Undirbúningsárin eftir sr. Friðrik Friðriksson, Bjarnargreifamir eftir Eschtruth, Kirkjusöngsbók Jónasar Helgasonar, Organtónar Brynjólfs organista Þorlákssonar, Frjálsar ástir eftir Katrínu Thor- oddsen, Verk Chaucers, í fólíóútgáfunni, alskinn, útgefin 1602, Kennslubók í bókbandi og smíðum, Tímarit Máls og menningar, litla ritið, Far veröld þinn veg eftir Jörgen Frants Jacobsen, Móðirin 1—2 eftir Gorkí, Islandske Folkesager (Andersen), Privatboligen paa Island eftir dr. Valtý Guðmundsson, Heimsbókmenntasaga Kristmanns 1—2 og Bókmenntasaga Kristins E. Andréssonar, Lýsing Islands 1—4, eftir Þorvald Thoroddsen, allt frumprent, Kvæði Einars Benediktssonar í alskinni, Tímaritið Sunnanfari komplet, Búalög, Hrappsey og Reykjavík, Islenzkt mannlíf 1—4 eftir Jón Helgason, Að vestan 1—4, Islenzkir samtíðarmenn 1—2, Tímaritið Réttur frá upphafi, Bragfræði og háttatal eftir Sveinbjörn Beinteinsson, Siðaskiptamenn og trúarstyrjaldir eftir Sverri Kristjánsson, Vor í vemm eftir Jón Rafnsson. Die Vögel Islands eftir Timmermann. Við höfum ennfremur bækur eftir nær alla íslenzka höfunda fyrr og síðar, t.d. Thor Vilhjálmsson, Halldór Laxness, Þorgeir Þor- geirsson, Þórberg Þórðarson, Njörð P. Njarðvík, Sigurð A. Magnússon, Guðrúnu frá Lundi, Arna Ölafsson, Flosa Ölafsson, S.jón, Sigurð Z. ívars- son, Svövu Jakobsdóttur, Skugga, Einar Kvaran, Einar Guðmundsson, Helga Þorgils, Jón úr Vör og hundruö annarra, lifandi og látna, viður- kennda hérlendis og erlendis, einnig hina ungu óþekktu höfunda. Hjá okkur er miðstöð pocketbóka-viðskiptanna. Höfum þúsundir enskra nýlegra pocketbóka. Við kaupum og seljum allar íslenzkar bækur og flestar erlendar. Heil bókasöfn og einstakar bækur. Gefum reglulega út bóksöluskrár um íslenzkar bækur og sendum þær ókeypis til þeirra sem óska utan Reykjavíkursvæðisins. Sendum í póstkröfu hvert sem er. Vinsamlega hringið, skrifið — eða lítið inn. - GAMLAR BÆKUR OG NÝJAR - BÓKAVARÐAN Hverfisgötu 52 Sími 29720 — Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.