Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Blaðsíða 18
18 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 60., 63. og 64. tölublaði Lögbirtmgablaðsins 1982 á Kópavogsbraut 47 — hluta —, þingl. eign Matthiasar Sverrissonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 10.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 78., 82. og 87. tölubiaði Lögbirtingablaðsins 1982 á Þverbrekku 2 — hluta —, þingi. eign Róberts Róbertssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 13.30. Bæjarfógetinn i Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 65., 69. og 73. tölubiaði Lögbirtingablaðsins 1982 á Skémmuvegi 46, þingl. eign Hólabergs sf., fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 56., 59. og 61. tölublaði Lögbirtingabiaðsins 1982 á Engihjalia 11 — hiuta —, þingi. eign Guðmundar K. Hjartarsonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 21., 31. og 37. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982. á Borgarholtsbraut 60, þingl. eign Astriðar H. Jónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 16.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð annað og síðasta sem auglýst var í 27., 31. og 37. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á Bröttubrekku 4, þingl. eign Jóhanns Boga Guðmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 11.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi Nauðungaruppboð annað og síðasta sem auglýst var í 55., 60. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á Hamraborg 6 — hluta —, þingl. eign Heiðars Breiðfjörð, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 79. og 85. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Breiðvangi 6, 4ra herb. íbúð á 2. hæð, Hafnarfirði, þingi. eign Ragnars Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarf jarðarbæj- ar, Guðjóns Armanns Jónssonar hdl. og Jóns Þóroddssonar hdi. á eign- inni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Hjallabraut 92 Hafnarfirði, þingl. eign Braga Brynjólfssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri miðviku- daginn 9. mars 1983 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 79. og 85. töiublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Drangahrauni 3 Hafnarfirði, þingl. eign Trésmiðju Gunnars Helgasonar hf., fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og Guðmundar Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 9. mars 1983 kl. 13.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingabiaðsins 1982 á eigninni Smyrlahrauni 10, bílskúr, Hafnarfirði, þingl. eign Harðar H. Magnússonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfrí þriðjudaginn 8. mars 1983 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. DV. LAUGARDAGUR5. MARS1983. Brtendur Sveinsson i filmugeymslu Kvikmyndasafnsins. Hann heidur á nýju eintaki af hliðursetningi Lofts Guð- mundssonar er safninu áskotnaðist fyrir skömmu. í4 ! Við skruppum í stutta heimsókn til Erlends Sveinssonar, forstöðumanns Kvikmyndasafns Islands, á dögunum til að leita frétta af starfsemi safnsins að undanförnu, en Menningarverðlaun DV að þvi er varðar kvikmyndagerð komu að þessu sinni í hlut Erlends fyr- ir þátt hans í uppbyggingu Kvik- myndasafiisins. Erlendur segir að störf sín fyrir Kvikmyndasafnið séu minni en skyldi vegna þess að enn sem komið er sé einungis gert ráð fyrir ein- um starfsmanni í hálfu starfi. „Jafnframt kvikmyndasafnsstarfi mínu rek ég mitt eigið kvikmyndagerð- arfyrirtæki ásamt félögum mínum, Sigurði Sverri Pálssyni og Þórami Guðnasyni, og nefnist fyrirtæki okkar Lifandi myndir. Við erum önnum kafii- ir við að gera yfirgripsmiklar kvik- myndir fyrir hagsmunasamtök í sjáv- arútvegi og fleiri stóra aðila. Tog- streitan er mikil en tölum ekki um það. Eg get sjálfum mér um kennt.” „Söfnunarárátta í blóðborin" „Áhugi minn á kvikmyndagerð og starfsemi kvikmyndasafns hefur verið nokkuð samstiga frá upphafi. Eg hef verið með söfnunaráráttu frá því ég var smástrákur, safnaöi myndasög- um og stundaöi fornbókaverslanir þeg- ar ég var enn í barnaskóla. Á timabili gekk þetta svo langt að ég gekk í sér- hvert hús í Hafnarfirði, þar sem ég er fæddur, uppalinn og bý enn, til að spyrja fólk hvort það ætti ekki gömul dagblöð, sem það vildi gefa mér, ef ske kynni að í þeim leyndust þættir úr myndasögum sem mig vantaöi í safn mitt. Einu sinni komst ég upp á háaloft þar sem Vísir var vafinn utan um hita- leiöslur tii einangrunar. Þessi blöö hafði ég á brott með mér, líkast því sem ég hefði komist yfir fjársjóð. Annars fannst mér myndasaga Tímans um Eirík hinn víöförla það langbesta í myndasögubransan- um og þakka ég þeirri ágætu sögu aö verulegu leyti að ég ánetjaðist kvikmyndunum síöar á lífsleiðinni. Veturinn eftir stúdentspróf sigldi ég til Kaupmannahafnar til að leggja stund á kvikmyndasögu og fagurfræði kvik- myndanna en þessi fræðigrein var til- tölulega ný viö háskólann þar í borg. En ógerningur hefði veriö að byggja hana upp ef ekki heföi verið rótgróiö kvikmyndasafn til staðar á borð við Det danske filmmuseum. Verkefni nemenda miðuðust við sýningar safns- ins. Þegar ég kom út var veriö að sýna allar myndir meistara Bunuels, Dreyers og Eisensteins. Seinna um veturinn bættist Orson Welles við á morgunsýningum fyrir nemendur, og á almennum sýningum þýski express- ionisminn Stanley Kubrick og fleira sem of langt mál væri að telja upp. I kvikmyndasafninu var myndar bóka- og tímaritasafn, sýningarsalur safn- gripa, auk geysimikils safns heimilda sem þeir sem eru að stúdera geta feng- iö aögang aö. Aö sjálfsögöu hugsaöi ég með mér: Þetta verðum við að byggja uppheima.” „Hornsteinn menningariifs" „Síðan hefur ýmislegt þaö gerst sem leiddi til þess að Kvikmyndasafii Is- lands var stofnað og mér falið að ger- ast starfsmaður safnsins. En draumurinn um íslenskt kvikmynda- safn á borð við Det danske filmmuse- um og öll hin stóru söfnin á töluvert langt í land ennþá. Þótt Kvikmynda- safii Islands hafi verið stofiiaö með lög- um vorið 1978 verður það enn aö teljast vera á undirbúningsstigi. Meðan sá tími varir er ekki viö því að búast að safniö geti orðiö fólki til beinnar ánægju en vonandi rennur sá dagur upp. Því starfsemi kvikmyndasafns felst ekki í því eingöngu, sem mest hef- ur verið áberandi í starfi þess hér heima, aöleita uppi gamlarkvikmynd- ir. Kvikmyndasafn á að vera einn af hornsteinum menningarlifs okkar, ábyrgjast varðveislu kvikmyndafram- leiðslu þjóöarinnar, skrásetja kvik- myndir, safna sígildum meistaraveik- um, sem og öðrum kvikmyndum, sem hasla sér völl í samtímanum, og gefa okkur kost á að njóta alls þessa í skipu- lögðum sýningum. Með góðum vilja þá hefstþetta.” Fjármái Hvernig stendur safnið fjárhags- lega? „Frá upphaf i og f ram á þetta ár hafa fjárveitingar til safnsins farið ört vax- andi. Það er ekki fyrr en nú að breyt- ing varö á þar sem fjárveitingarbeiöni safnsins var skorin niður um 37%. Hækkun milli ára, í krónutölu reiknuð, var því aðeins 11%. Miöað við um 60% verðbólgu er hér um 50% Iækkun að ræða. Viðræður við fjárveitinganefnd leiddu til þess að niðurskurðurinn var minnkaður um 8%. Beiðni um aukn- ingu stöðugilda úr 0,5 í 1,5 var hafnað þrátt fyrir eindreginn stuöning menntamálaráöuneytisins. Færð voru ítarleg rök fyrir þörfinni á auknum starfskrafti, bæði í viðtölum við fjár- veitinga og í bréfi til Fjárlaga- og hagsýslustofnunar, en allt kom fyrir ekki. Hér er við ramman reip aö draga ogengin ástæðatilbjartsýni.” Gottfólk „Eg vil leggja áherslu á það um leið og verið er að veita mér menningar- verðlaun, að á bak við starf mitt hafa staöið góöir menn sem hafa skipað stjóm safiisins. Fyrstu fjögur árin voru það þeir Knútur Hallsson stjórn- arformaður, Jón Þórarinsson tón- skáld, Magnús Jóhannsson, útvarps- virki og kvikmyndagerðarmaður, og Ámi Bjömsson frá Þjóðminjasafninu. Síðast en ekki síst er mér ofarlega í huga þakklæti til almennings í landinu sem sýnt hefur starfsemi safnsins mik- inn áhuga og stuölað að þeirri upp- byggingu sem átt hefur sér stað. .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.