Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR 5. MARS1983. 19 — segir Erlendur Sveinsson, starfsmaður Kvihmyndasafnsins, en hann hlaut Menningarverðlaun Ð V « dögunum fyrir sinn þátt íuppbyggingu safnsins Upptökuvélar Óskars Gfslasonar. Það væri einnig óskandi að þessi viðurkenning, sem nú er í fyrsta sinn veitt fyrir störf að safnamálum, sem tengjast viðkomandi listgrein, vekti athygli dómnefnda DV í framtíöinni á framlagi annarra safna. Menning er stórt hugtak. Fjölmiðlar eiga að miöla því sem er, þeim raunveruleika sem er, ekki skapa annan raunveruleika heldur en þann sem er. Sé eitthvað til staðar en ekki sagt frá því í fjölmiðlum þá er það samt til staðar. Stundum er eins og fyrirbærin séu ekki til sé ekki um þau fjallað í fjöl- miðlum. Mikil er þeirra ábyrgð. Hvenær les maður um hljómplötusafn- ið í Bæjarbókasafninu í Hafnarfirði. Það starf sem þar hefur verið unnið er t.d. miklu nær því að geta talist menn- ingarverðlauna virði heldur en mitt starf.” Söfnunin „A síðastliönu ári bættust 154 filmur og filmuþættir í safnið. Þar af voru um 123 nýir titlar. Flestar myndanna voru heimildarmyndir, sumar jafnvel óunn- ar. 2 kvikmyndir sem álitnar voru glat- aðar komu í leitirnar. önnur þeirra, Slökkviliösæfing í Reykjavík frá árinu 1906, er elsta varöveitta kvikmyndin frá Islandi, hin var tekin á 1000 ára af- mæli alþingis Islendinga árið 1930. Cinemateket í Stokkhólmi, svo nefnist kvikmyndasafn þeirra Svíanna, gaf safninu eintak af Sölku Völku sem Svi- ar tóku á fslandi undir stjórn Ame Mattsson í samvinnu við Islendinga árið 1954. 20 aðilar alls afhentu safninu kvikmyndir til varðveislu. Minjadeild- in óx til muna á siöastliðnu ári. Það bættust við gamlar kvikmynda- og sýn- ingarvélar, hljóðgræjur ýmiss konar, þar á meðal umbúnaður utan um plötu- spilara sem notaöir vom á síðustu ár- um þöglumynda sýninganna í Reykja- vík. Nokkrir aðilar afhentu safninu prógrammsöfn sín og aðrar heimildir og em upplýsingamöppur safnsins nú eitt hundraðtalsins.” Varðveislumál „Lokiö var við kópieringu þriggja leikinna kvikmynda Oskars Gislason- ar á síðastliönu ári en það verkefni hef- ur að mestu verið kostað af Þjóðhátið- arsjóði og á sá sjóður miklar þakkir skildar fyrir skilning þann sem þessi verkefni hafa mætt hjá sjóðstjóminni. Safnið hefur einnig lagt fé og aðstöðu til þessa verkefnis. Þá var ráðist í að kópíera á sama hátt leiknu kvikmyndir Lofts Guðmundssonar, Milli fjalls og fjöru og Niðursetning, og stóð safnið straum af kostnaði. Gerð voru ný nega- tíf og sýningarkópíur en eftir er að endurbæta sýningarkópíurnar. Fyrsta kópía er sjaldnast svo vel heppnuð að hægt sé að nota hana. Sem dæmi get ég nefnt að þegar Svíar vora að endur- kópíera FjaUa-Eyvind fyrir okkur Maltorka! «.85OT á mann. samk.gengi 20.11983. I TILBOÐSVERD I I I' PÁSKAFERD I I fyrir 4 manna f jölskyldu I Þetta dæmi á við 4 manna fjölskyldu, hjón með tvö börn, 5 ára og 10 ára. Tilvalið tækifæri fyrir fjölskylduna að fara saman til Mallorka um páskana og njóta skemmtunar í fallegu umhverfi. I 17 daga ferð — 27/3 til 12/4 I (ntKvm Ferðaskrifstofa, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1, Símar 28388-28580 Upptökuvél Bió-Petersen fyrir miöri mynd. Viö hliðina eru filmu- hylki. Fremst er „ filmuspiæsari" úr Fjalakettinum. uppátæki okkar færði okkur hins vegar heim sanninn um það að ógerningur er að halda uppi sýningarstarfi á vegum safnsins þótt hér sé um einn bráönauð- synlegasta þátt starfseminnar aö ræða, meðan ekki fæst heimild til þess að ráöa aukinn starfskraft. Svipaða sögu er að segja um útgáfustarf sem einnig er mikUvægur þáttur í starf- seminni. Við gáfum út afmælisritið Kvikmyndir á Islandi 75 ára og á síðastUðnu ári, á síðustu mánuðunum, var unnið að útgáfu kynningarrits um íslenska kvikmyndagerð á ensku í samvinnu við kvikmyndasjóð sem stóð straumaðkostnaði. Ljóst er að við höf- um ekki getu til að sinna svona verk- efnum þótt reynt hafi verið. Sýnt hefur verið fram á hvað gera þarf, framhald- ið ræðst síðan af viðbrögöum réttra aðila. Hugsjónir þurfa byr,” sagöi Erlendur Sveinsson. -KÞ vegna afmælishátíðarinnar haustið 1981 þá köstuðu þeir að mig minnir 17 kópíum áður en þeir vora orðnir ánægðir með árangurinn. Hér má bæta því við að Jarðboranir ríkisins létu kópíera á sinn kostnað gamla mynd, sem þeir varðveittu hjá safninu, og safniö lét kópíera Slökkviliösæfinguna frá 1906.” Hvað um kvikmyndasýningar á veg- umsafnsins? „Við höfum ekki haldiö sýningar síð- an afmælissýningamar fóru fram í til- efni 75 ára afmælis kvikmyndasýn- inga á Islandi. Reynslan af því Á vegum safnsins er heilmikil upplýsingaöflun í gangi. Hér er „allt" um kvikmyndSjöströms, Fjalla-Eyvind. DV-myndirS HtJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.