Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1983, Síða 40
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 Frjáíst, óháð dagblað LAUGARDAGUR 5. MARS 1983. Fjölmiðlakönnun kynnt ígær: DV RYFUR EINOKUN MORGU NBLAÐSINS DV er aö rjúfa einokunaraöstööu Morgunblaðsins á íslenskum dag- blaöamarkaöi. Þetta kemur fram í fjöbniölakönnun Sambands íslenskra auglýsingastofa, en könnunin var kynnt á blaöamannafundi í gær. Hagvangur hf. vann könnunina sam- kvæmt tvö þúsund manna úrtaki úr þjóöskrá. Könnunin sýnir að nú mun- ar litlu á þessum tveimur stóru keppinautum á blaöamarkaðnum. Samkvæmt könnuninni er Morgun- blaðið lesiö af 69,83% þjóöarinnar en DV af 64,17% þjóðarinnar. Svipað gildir um helgarútgáfur þessara tveggja blaða. 73,71% þjóðarinnar lesa helgarútgáfu Morgunblaösins en 68,36% helgarblaö DV. Önnur blöö erulangtaðbaki. Flestir þeirra sem eru á aldursbil- inu 20—34 ára lesa DV eöa 64,77%. Næstflestir á þessu aldursbili lesa Morgunblaöiö. Þetta er sá hópur sem er aö stofna eða hefur nýlega stofnaö sitt heimili. Morgunblaöiö hefur aft- ur á móti vinninginn meöal þeirra sem eru komnir yfir fimmtugt, en DV fylgir þar næst á eftir. DV er langmest lesiö allra blaöa meöal fólks í sjávarútvegi. Svipaöur fjöldi fólks í iðnaði les DV og Morgunblaðiö. Flestir í opinberri þjónustu lesa Morgunblaöiö, en DV kemur næst. 1 landbúnaði lesa flestir Tímann en DV fylgir á eftir. DV er mest lesið blaða í kaupstöö- um landsins. Morgunblaðið fylgir þar á eftir. Á höfuöborgarsvæðinu er Morgunblaöiö mest lesið en DV fylg- ir á eftir. 1 dreifbýli er Tíminn mest lesinn en DV kemur þar á eftir. -JH Könnunin er nánar skýrð á bls. 4. Ottó Ólafsson hjá Gylmi, Krístín Þorkelsdóttir hjá Auglýsingastofu Kristinar og Gunnar Steinn Páls- son hjá Auglýsingaþjónustunni glugga hér i skýrsluna og leita svara við spurningum blaða- manna. DV-mynd: GVA SENDIRAÐSBILAR VORU STÖÐVAÐIR LOKI Morgunblaðið, góðan daginni Dýpkunarskipið Grettir: Sökk út af Garðskaga Bandarísk sendiráösbifreið var, aö tilmælum lögreglunnar á Keflavíkur- flugvelli, stöövuö viö Amarneshæöina af Kópavogslögreglunni um klukkan þr jú í gærdag. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Keflavíkurflugvelli var veriö aö kanna hvort viökomandi sendiráös- starfsmenn heföu heimild frá yfirmönnum sendiráðsins til kaupa á tollfrjálsum varningi á Keflavíkurflug- velli. En slík heimild er nauösynleg. 1 ljós kom aö sendiráösstarfsmenn- imir vom ekki meö slíka heimild þrátt fyrir að þeir hefðu keypt vörur á Kefla- víkurflugvelli og veriö heimilað aö fara í gegnum hliðiö. I framhaldi af þessu vom tvær bandarískar sendiráösbifreiðir stööv- aöar síöar í gær í hliöinu og sendiráös- starfsmenn beönir um heimildina. Einnig þeir höföu hana ekki. Itrekaö var viö sendiráðsstarfs- mennina aö þeir yröu að hafa þessa heimild og í framhaldi af því var þeim leyft aö fara feröa sinna. -JGH Dýpkunarskipið Grettir sökk um fimmtán sjómílur noröur af Garð- skaga um klukkan þrjú í gærdag. Varðskipið var meö Gretti ásamt prammaítogi og var verið aö draga skipiö f rá Hafnarf iröi til Húsa víkur. Lagt var af stað frá Hafnarfirði um klukkan fimm í fyrradag. Þegar skipin vom stödd um 25 sjómílur norðvestur af Garðskaga, um klukk- an fimm í gærmorgun, slitnaöi taug- in á mílli prammans og Grettis. Stuttu síöar tók Grettir aö hallast og hvolfdisíöan. Var hann dreginn þannig þar til skipin vora stödd 15 sjómílur noröur af Garöskaga klukkan þrjú í gærdag aöGrettir sökk. Grettir kom til landsins árið 1977 er hann leysti gamla Gretti af hólmi. Að sögn Aöalsteins Júliussonar vita- og hafnamálastjóra var Grettir aðfullutryggður. -JGH Kapalkerfí fái leyfi þingmenn úr þremur f lokkum leggja slíkt til „Alþingi skorar á ríkisstjórnina að beita sér fyrir að þau fjölmörgu kapalkerfi, sem nú eru starfandi víösvegar um landiö, fái leyfi til áframhaldandi starfsemi í samræmi viö túlkun gildandi laga.” Þannig hefst þingsályktunartil- laga sem Albert Guömundsson og fleiri þingmenn hyggjast leggja fram. Síöar í tillögunni stendur: „Ríkis- stjórnin skipi jafnframt nefnd fimm manna sem hafi eftirlit með starf- semi kapalstööva, þar til önnur skip- an er ákveöin með lögum.” Á meðal þeirra sem skrifaö hafa undir tillöguna ^sem flutningsmenn, auk Alberts, eru Halldór Blöndal, Pétur Sigurðsson, Friörik Sophus- son, Guðmundur G. Þórarinsson og Karl Steinar Guönason. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.