Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1983, Blaðsíða 9
DV. MÁNUDAGUR7. MARS1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Utlönd
ítalskir kommúnistar
fjarlægjast Moskvulínu
Enrico Berlinguer var endurkjörinn
leiðtogi kommúnistaflokks Italíu á
flokksþinginu, sem lauk í gær í Mílanó.
Sagði hann að þingið hefði áréttað
„frelsun ítalska kommúnistaflokksins
frá leifum hjátrúarfjarsýnar,” og er
taliö að hann hafi þar vísað til klofn-
Barbie lagður
á sjúkrahús
íLyons
Klaus Barbie er sagður á batavegi,
þar sem hann liggur á sjúkrahúsi í
Lyons, en þar hafði hann veriö lagður
inn í skyndingu til uppskurðar vegna
iðrakveisu.
Gestapoforinginn fyrrverandi frá
Lyons hefur lengi átt viö magasár að
stríða og nýrnakvilla, auk annars.
Hann er ákærður fyrir stríðsglæpi en
verður að liggja á sjúkrahúsinu undir
læknishendi næstu tíu daga aö minnsta
kosti. Strangur vörður er haföur um
hann.
Barbie var tvívegisdæmduraðhonum
fjarverandi fyrir stríösglæpi. Þegar
hann stýrði gestapo í Lyons á stríðsár-
unum var hann kallaður „slátrarinn
fráLyons”.
42 ára gömul dóttir Barbies, Ute
Messner, sem býr í Austurríki, heim-
sótti hann á sjúkrahúsiö á laugardag
og er það í fyrsta sinn sem leyft er að
heimsækja hann síðan yfirvöld Bólivíu
vísuðu honum úr landi í síðasta
mánuði.
Klaus Barbie „Slátrarinn frá Lyons”
gengur ekki heili til skógar.
Nkomo i felum
„Þaö er augljóst, að líf mitt og fjöl-
skyldu minnar er í hættu,” sagði
Joshua Nkomo við fréttamenn á leyni-
fundi í Bulawayo. Hann fer nú huldu
höfði eftir að hermenn stjórnarinnar
geröu húsleit heima hjá honum á laug-
ardag.
Sagðist hann hafa sloppiö á elleftu
stundu en einkabílstjóri hans og fleiri
hefðu verið drepnir af hermönnunum.
— „Það sýnist stefnt að því að útrýma
ZAPU-samtökunum algerlega. Margir
félagar þeirra hafa verið drepnir,”
ings ítalskra kommúnista frá Moskvu-
línunni vegna Póllandsmálsins.
Við setningu þessa þings, sem stóð í
fimm daga, hafði Berlinguer sagt að í
hinni „alþjóðlegu verkalýðshreyfingu
gæti ekki verið neinn móöurflokkur eða
móðurríki”. Hvatti hann til ,;fulls jafn-
ræðis og sjálfstjórnar sérhvers stjórn-
málahóps sem fylgdi kommúnisma”.
En flokksþinginu tókst ekki að
stofna til bandalags við jafnaöarmenn,
sem forystunni hafði leikið hugur á, til
aö bjóða kjósendum „lýðræöislegan
vaikost” annarrar ríkisstjórnar en
Kristilegra demókrata. Bettino Craxi,
leiðtogi jafnaðarmanna, sat þingiö
sem gestur, en í ræðu fyrir helgina
afþakkaði hann slíkt samstarf og sagði
það ekki tímabært ennþá.
Berlinguer lét á sér skilja að hann
gæfi ekki upp vonina.
Enrico Berlinguer var endurkjörinn
leiðtogi italskra kommúnista.
sagði Nkomo.
Nkomo segist munu halda sig í fel-
um þar til honum sé óhætt að koma
fram. Tók hann eið af fréttamönnun-
um að segja ekki til sín. Hann segist
ekki munu fara úr landi en lögreglan
lagöihald á vegabréf hans á dögunum.
Stjómin hefur sent herdeild, sér-
þjálfaða í N-Kóreu, inn í Matabele-
land, þar sem Nkomo átti mest fylgi.
Hefur herdeildin verið sökuð um morð,
nauðganir og gripdeildir, sem borið er
á móti af talsmönnum stjórnarinnar.
Endurtekið vegna
mikillar þátttöku
NÁMSKEIÐ í JAPANSKRI STJORNUN
FYRIR STJORNENDUR FYRIRTÆKJA OG STOFNANA
VERÐUR ENDURTEKIÐ ÞRIÐJUDAGINN 8. IVIARS
J. INGIMAR HANSSON
Fyrirlesari
Ingimar fór nýlega 1 námsferö til
Japan.
Feröin var skipulögö af Banda-
riska iönaöarverkfræöinga-
félaginu.
Auk námskeiöa í japanskri
stjórnun var fariö 1 heimsóknir
til iönfyrirtækja.
J. Ingimar Hansson er rekstrar-
verkfræöingur aö mennt og
stofnaöi Rekstrarstofuna 1974.
GUNNAR H. GUÐMUNDSSON
Fyrirlesari
Gunnar hefur annast athuganir
þær sem Rekstrarstofan hefur
staöiö fyrir á japanskri iönaöar-
uppbyggingu og áhrifum hennar
í Bandaríkjunum og á Vestur-
löndum.
Gunnar H. Guömundsson er
rekstrarverkfræöingur aö mennt
og er ráögjafi á sviöi stjórnunar,
skipulags, upplýsingakerfa og
tölvumala.
BOLLI MAGNUSSON
Fundarstjori
Bolli starfaöi um skeiö i Japan
sem fulltrúi togarakaupenda og
kynntist starfsháttum viö
skipasmiöar þar í landi.
Bolli Magnússon er skipatækni-
fræöingur aö mennt og er ráö-
gjafi á sviöi skipasmiða og
utgerðar.
&
n
Lærum af forystuþjóð á sviði stjórnunar.
Veist þú:
• Hvað núllgallastefna er?
• Hvers vegna aukin gæöi leiöa til lægri framleiöslu-
kostnaðar?
• Hvaöer Poka Yoke?
• Hvers vegna blönduð framleiösla er hagkvæmari en
f j öldaf ramleiðsla ?
• Af hverju verkföll eru nær óþekkt í stærri iönfyrir-
tækjumí Japan?
• Hvernig staöiö er að starfsmenntun í Japan?
• Hvernig unnt er aö ná og viðhalda miklum
afköstum?
• HvaÖ núllbirgðastefna er?
• Hver eru tengsl iönfyrirtækja og banka í Japan?
• Er allt sem sýnist?
Námskeiðið verður haldið að Hótel Loftleiðum,
Leifsbúð, þriðjudaginn 8. mars kl. 13.30 til 18.00.
Þátttökugjald kr. 2.500,-
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku í síma 44033
sem fyrst. Fjöldi takmarkaöur.
Ráðgjafaþjónusta
Stjórnun — Skipulag
Skipulagning — Vinnurannsóknir
Flutningatækni — Birgöahald
Upplýsingakerfi — Tölvuráögjöf
Markaðs- og söluráðgjöf
Stjórnenda- og starfsþjálfun
REKSTRARSTOFAN
— Samstarf sjálfstæðra rekstrarráðgjafa á mismunandi sviðum —
Hamraborg 1 202 Kópavogi Sími 91-44033
ÁSÆKIN SÝKLASTARFSEMI
ER AÐAL ORSÖKIN
FYRIR
SKAÐLEGRI
TANNSYKLU
C2tt*S
am®0
KEMURÍVEG
FYRIR
NÝMYNDUN
TANNSÝKLU
í ALLT
AÐ12
KLUKKUTÍMA
jsh
Heildsölubirgðir
J.S. Helgason h/f
Draghálsi 4
Símar 37450- 35395