Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
57. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — MIDVIKUDAGUR 9. MARS 1983.
FestiíGrindavík:
Forstöðumanni vikið frá
vegna óreiðu í bókhaldi
— forseti bæ jarst jórnar ráðinn í staðinn
Forstööumanni félagsheimilisins
Festi í Grindavík var sagt upp störf-
um fyrir nokkru og stendur nú yfir
athugun á bókhaldi hússins.
Samkvæmt upplýsingum bæjar-
stjórans í Grindavík, Eiríks Alex-
anderssonar, var bókhaldið ekki lagt
fyrir áriö 1981 og reyndist þaö ekki
hafa verið fært. Undanfariö hefur
verið reynt aö safna saman fylgi-
skjölum fyrir bæöi árin 1981 og 1982
og er endurskoöunarskrifstofa aö
vinna í málinu fyrir bæjaryfirvöld.
Ósannaö er aö um meira en óreiöu í
bókhaldiséaðræða.
Á grundvelli þessa og einnig þess
aö forstööumaöurinn var farinn aö
stunda verslunarrekstur í bænum
samhliða forstööumannsstarfinu,
sagði Eirikur aö hann hefði verið lát-
inn víkja. Auglýst var eftir nýjum
forstöðumanni og sóttu 15 manns um
starfið. Engar kröfur voru gerðar
um sérstaka menntun. Húsnefnd,
sem í sitja 4 fulltrúar félaga í bænum
og 1 kosinn af bæjarstjórn, valdi úr.
Fyrir valinu varö forseti bæjar-
stjórnar. Ráðningin sem miöast við
1. mars var ákveðin með 4 atkvæð-
um,lsathjá. JBH
Lögbannidá SVR:
Tekið
fyrir síðar
fþessari
viku
„Málið er nú ekki komiö úr
okkar höndum ennþá en búast
má viö að farið veröi af stað
seinni part vikunnar,” sagöiGIsli
Isleifsson, lögfræðingur
Verölagsstofnunar, er hann var
spurður frétta af lögbannskröfu
stofnunarinnar á hendur SVR.
„Þetta er fljótgert,” sagöi
Gisli, „fordæmiö höfum við frá
því fyrir stuttu.”
Athygli hefur vakið aö í einu
dagblaöanna birtist síöastliðinn
laugardag stór auglýsing frá
Verölagsstofnun þar sem frétta-
tilkynningin um lögbanniö var í
heild sinni. Georg Olafsson
verölagsstjóri sagöi í samtali viö
DV aö ástæöan fyrir því aö aug-
lýsingin hefði verið birt væri sú
aö hjá Verðlagsstofnun heföi ríkt
nokkur óánægja meö frétta-
flutning dagblaðanna. Hann hefði
verið villandi, aö sögn Georgs, og
sum þeirra væru greinilega í
nokkrum kosningaham. Sjónar-
miö Verðlagsstofnunar hefði ekki
komið nógu skýrt fram. „Viö
teljum okkur vera aö framfylgja
lögum og okkur fannst aö úr því
lögö hefði veriö svo mikil vinna í
tilkynninguna væri full ástæða til
aö birta hana í heild sinni. ”
-PÁ.
Lögregluvakt er við skipið í Vestmannaeyjahöfn.
D V-mynd Guðmundur Sigfússon.
Syiðsljósið
— Óli og Auðunn
eiga afmæli
— sjá bls. 36 og 37
■■■■liítoiifMÉiBiii
Tekinn fyrir meintar ólöglegar veiðar:
Er Einar togari eða bátur?
„Þaö er ekki deilt um hvort skipiö
var þama aö veiðum eöa ekki. Að-
eins um hvort þaö mátti þaö,” sagði
Kristján Torfason, bæjarfógeti í
Vestmannaeyjum.
Togskipiö Einar Benediktsson BA
377 var í gær tekið fyrir meintar ólög-
legar veiöar og fært til Vestmanna-
eyja. Var skipið aö veiðum rúmlega
fjórum mílum undan Vík í Mýrdal.
Eigendur skipsins telja aö þarna sé
þeim veiði heimil því Einar sé bátur.
Landhelgisgæslumenn telja hann
hins vegar til togara.
Réttarhöld í málinu hófust í Vest-
mannaeyjum klukkan 11 í morgun.
Þegar blaðið fór í prentun lá niður-
staöa þeirra ekki fyrir.
DS
Meiraum
Mezzoforte
— sjá bls. 3
Sandkom
- SÍS skoðar
Playboy
— sjá bls. 31
TónlistíHúsinu
— Þórir Baldurs-
son í viðtali
— sjábls. 11
Dægradvöl
- Vorið er komið f
kvennatískunni
— sjá bls. 34