Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Síða 2
2 Æra þingmanna í rannsókn: Póstmálið eintómur misskilningur Vilmundur Gylfason aiþingismaður. Takmörkun á prentun og dreifingu þingskjala fyrir einstaka þingmenn eða þingflokka hefur ekki tekiö gildi. Upplýsingar um slíkt eru eintómur misskilningur samkvæmt því sem Sverrir Hermannsson, forseti neðri deildar Alþingis, skýrði frá á þing- fundi í gær. Vilmundur Gylfason bar sig upp undan upplýsingum í ónefndu dag- blaöi eftir skrifstofustjóra Alþingis um takmörkun á prentun einstakra þingskjala fyrir þingmenn viö 500 eintök. Krafðist þingmaöurinn skýr- inga og kvaöst jafnframt hafa óskaö eftir því viö forseta neöri deildar aö hann gæfi upplýsingar um kostnaö Alþingis af þessu tagi og eins viö þingveislur. FriörikSophusson sagöi þingflokki Sjálfstæðisflokksins hafa veriö meinaö um fleiri en 500 eintök til dreifingar, vegna tveggja nefndar- álita skömmu eftir jól. Forseti neöri deildar, Sverrir Hermannsson, kvaöst geta gefið um- beönarupplýsingarámorgun (ídag) en hitt væri misskilningur að for- setar þingsins heföu ákveöiö tak- mörkun á prentun og dreifingu þing- skjala. Um þessi mál hefði verið rætt í þeirra hópi, en samþykkt aö slík takmörkun gengi því aðeins í gildi aö á henni væri nokkur fyrirvari og ekki nema í upphafi þings. Tildrög þessara umræöna voru frásögn Tímans af því aö vegna út- sendingar Vilmundar á 5.000 eintök- um af frumvarpi, sem hann flytur, hafi forsetar þingsins ákveöiö aö tak- marka slíkar sendingar framvegis viö töluna 500. HERB Góðar vörur Gott verð STEIUDUR ÁVALLT FYRIR SÍNU Enn á ný bjóöum við stórkostlegt úrval af þessum frábæru snyrtivörum í vor- og sumarlitunum 1983. Við kynnum Maybelline POT GLOSS í nýju vor- og sumarlitunum. Að sjálfsögðu erum við með hinn frá- bæra Dial-a-Lash maskara frá Maybelline sem þú stillir sjálf. Það er bylting í möskurum. Allir maskarar frá Maybelline eru í lofttæmdum umbúðum. Heildverslun Péturs Péturssonar SUÐURGÖTU 14, símar 21020 og 25101. DV. MIÐVIKUDAGUR9. MARS1983. Franska þyrlan lyftir staur upp á Klif. Heimaklettur í bakgrunni. Staurinn á að halda uppi loftneti vegna fyrirhugaðrar rásar tvö hjá Ríkisútvarpinu. DV-mynd: Guömundur Sigfússon. Spenni og staurum lyft upp á Frönsku þyrlurnar tvær fóru af landi brott í gærmorgun eftir þriggja vikna veru á Islandi. Á þessum tíma hafa þær flogiö til allra landsf jórðunga. Um síöustu helgi var önnur þyrlan í Vestmannaeyjum. Hún kom þangaö til aö flytja spenni og staura upp á Klifiö Klifið þar sem sendar útvarps og sjónvarps eru. Þyrlan lenti á Eiöinu í mjög hvassri norðanátt. Mikill sjór var og gusaöist yfirEiöiö. -KMU/Guðm. Sigfússon, Vestm. Hin nýja heilsugæslustöð á Fáskrúðsfirði er hið glæsilegasta hús. DV-mynd Ægir. Fáskrúðsfjörður: NÝ OG GLÆSILEG HEILSUGÆSLUSTÖD Ný heilsugæslustöö var tekin í notk- un á Fáskrúðsfirði. Nýja heilsugæslu- stööin bætir stórlega alla aöstööu lækna og hjúkrunarliðs sem var vægast sagt slæm í því húsnæöi sem hún varíáður. Viö opnunarathöfnina fluttu ræöur Siguröur Gunnarsson sveitarstjóri Búöahrepps, séra Þorleifur Krist- mundsson sóknarprestur Kolfreyju- stað, Aöalbjörg Magnúsdóttir og heilsugæslulæknirinn Einar Guömundsson. Rakti hann sögu heil- brigðismála á Fáskrúösfiröi, auk þess nefndi hann fjölda tækja sem Krabba- meinsfélag Austurlands, Kvenfélagið Kolfreyja í Fáskrúðsfjarðarhreppi og slysavamadeildin Hafdís á Fáskrúös- firði hafa gefið til nýju stöövarinnar. I ræðu Einars Guðmundssonar lækn- is skoraöi hann á viökomandi yfirvöld aö halda við húsnæöi eldri heilsugæslu- stöövar og byggja upp gamla Franska spítalahúsiö sem nú er í niðumíðslu í Hafnamesi, einnig lét hann í ljós ósk um aö á Fáskrúðsfirði yrðu 2 heilsu- gæslulæknar, en auk læknis starfa viö heilsugæslustööina Hulda Jóhanns- dóttir hjúkmnarfræöingur, Hjördís Garðarsdóttir læknaritari og Sóley Sigursveinsdóttir er vinnur í apóteki. Eftir aö gestir höföu skoöaö hina nýju heilsugæslustöð, buöu samtök kvenna um öldrunarmál öllum til veislukaffis í Grunnskólanum á Fáskrúösfirði. Ægir Fáskíúðsfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.