Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Page 4
DV. MIÐVHCUDAGUR 9. MARS 1983. Fjársöfnun bar góðan árangur: Bygging Breiðholts- kirkju hefst brátt Uppgjöri söfnunar vegna byggingar Breiðholtskirkju í Mjódd- inni er nú lokið. Samtals söfnuðust kr. 209.467,25. Er byggingarnefnd mjög þakklát einstaklingum og fyrir- tækjum fyrir hjálpina. Eins og Breiðholtsbúum hefur verið skýrt frá mun bygging kirkjuskipsins hefjast áður en langt um líður. Til landsins er komiö allt það efni sem á þarf að halda. Aformað er að bygging kirkju- skipsins fari fram eigi síðar en í aprílmánuöi og mun þaö þá gerast meö stórvirkum lyftitækjum á nokkrum dögum eftir því sem veður- far og aðrar aðstæður leyfa. Verður kirkjan síðan klædd utan og gerð fokheld á sumri komanda. Byggingamefnd Breiðholtskirkju hefur nú leitað eftir því við allar verslanir og fyrirtæki í Breiðholti að þar megi koma fyrir sparibaukum þar sem almenningur getur látið nokkurt fé af hendi rakna U1 stuönings kirkjubyggingunni. -MAM/ starfskynning. Póstburðargjöld hækkuðu 1. mars 1. mars síðastliöinn var tekin í gildi ný gjaldskrá fyrir póstþjónustu. Samkvæmt henni verður buröar- gjald bréfa í fyrsta þyngdarflokki (20g) innanlands og til Norðurlanda 4.50 kr., til annarra landa 5.00 kr. og flugburðargjald til annarra landa utan Evrópu 9.00 kr. Burðargjald fyrir póstkort og prent í fyrsta þyngdarflokki (20g) verður kr. 4.00 nema flugburðargjald til lands utan E vrópu sem verður kr. 4,50. Gjald fyrir gíróþjónustu verður 6.50 kr., fyrir almennar póstávísanir 11,00 kr., símapóstávísanir 48,50 kr. og póstkröfur 20,00 kr. (13,50 kr. ef um innborgun á póstgíróreikning er aöræða). Burðargjald böggla innanlands verður sem hér segir: 1 kg 23 kr., 3 kg 26 kr., 5 kg 41 kr., 10 kr 64 kr., 15 kg 92 kr., 20 kg 103 kr. Abyrgðargjald verður 9,50 kr. og hraöboðagjald 21,50kr. MAM/starfskynning Nemendur i Fjölbrautaskó/anum við Ármúla hafa að undanförnu haft sína starfs- daga eins og fieiri skóiar. Meðai annars sýndu nemendur hross í gerði skólans. DV-mynd EÓ. FAÐU ÞÉR í FINGUR- BJÖRG ÁINGIBJÖRGU — blómlegt f élagsstarf í Jónshúsi Félagsstarf Islendinga í Kaup- mannahöfn er að sprengja utan af sér gamla húsið við Austurbrú þar sem Jón Sigurðsson forseti bjó með konu sinni, Ingibjörgu. Islendingafélagið hefur um 900 skráða meðlimi en Námsmanna- félagið um 250. 1 raun er um fleira fólk að ræða þar sem ekki er skráöur nema einn úr hverri fjölskyldu. Skrifstofuhald félaganna fer fram í 30 fermetra húsnæði í kjallara Jóns- húss. Þar gefa félögin út blað sitt Þórhildi, sem væntanlega heitir í höfuðið á Danadrottningu. Kór- æfingar eru þar einnig haldnar. í sama kjallaraherbergi er einnig miðstöð Samtaka islendinga á Norö- urlöndum, sem hefur á milli 8 og 10 þúsund manns innan vébanda sinna. Hjá þeim er nú í undirbúningi tíu daga páskaferð til Islands meö leigu- flugi sem kostar krónur 5 þúsund íslenskar. Flogið er heim 25. mars og utan aftur 4. apríl. Ferðaskrifstofa stúdenta sér um ferö að heiman meö sömu vél. Samkomur eru margar í Jónshúsi og fara þær fram í veitingasalnum á fyrstu hæö hússins. Hann er opinn alla daga nema miövikudaga frá klukkan 17 til 22. Þar var þétt setiö á sunnudaginn var þegar lesið var úr jólabókum aö heiman. Nemendur úr íslenska skólanum í Höfn lásu úr barnabókum en þátttakendur á framsagnarnámskeiði úr fullorðins- bókum. Og fólk fékk sér kaffi og bjór við myndarlegan koparskenk, bar Ingibjargar. Á annarri hæð er fræðimannsíbúð, en á þeirri þriöju bókasafn í miklum vexti. Fjórðu og efstu hæð hefur þjónandi prestur. Hún stendur nú auö þar sem þjónandi prestur, séra Jóhann Hlíðar, lét af störfum vegna aldurs fyrir tveimur vikum og er flutturtil Spánar. Landar hér vona að nýr prestur fái leigða íbúð annars staðar í borginni, en hafi skrifstofu og fastan viðtals- tíma í Jónshúsi. Myndi þá rýmkast um félagsstarfið. Því er heldur ekki að neita að þaö er ónæöissamt fyrir prestinn að búa í J ónshúsi. Annars halda sumir því fram að farandprestur yrði bestur stuðn- ingur við trúarlíf islendinga á Noröurlöndum. Gæti hann búið á islandi en ferðast þaöan um Norður- lönd. Fordæmi fyrir slíku má finna í utanríkisráðuneytinu þar sem er sendiherrann fyrir Asíulönd. Hann ferðast milli höfuöborga þar í álfu hluta úr ái i en dvelur annars heima. IHH/Kaupmannahöfn Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Sigur öryggisvörslu í Þýskalandi Um nokkurra missera skeið hafa þau öfl riöið húsum í Vestur-Þýska- landi, sem telja að öryggi þess lands verði best tryggt með andstöðu við kjamorkuvamir og jafnvel með hlut- leysi. Kosningamar i sambandslýð- veldinu nú um helgina sýna hins vegar, að því fór víðs fjarri, að þýskur almenningur væri sömu skoð- unar. Það hefur ekki skort á marseringar og friðarherferðir og hefur þar talað með sinu nefi frá pattaralegum próföstum til atvinnu- mótmælenda á ilskóm. Og þessi mikla sókn eftir „friöi” hefur ekki farið fram hjá neinum, því að fjöl- miðlar hafa tíundan hvem fund og hverja görgu, þótt sóknin á þá sé ekki meiri en á meðalknattspymu- leik í viðkomandi borgum og tæplega það. Aðallega hefur friðarsóknin átt sér stað í Sósíaldemókrataflokknum. og varð hún loks svo mikil, að Helmut Schmidt varð að láta af embætti flokksleiötoga og við tók maður, sem er mjög undir handar- jaðri Willy Brandt, fyrrum kanslara, en hann hefur verið höfuðtalsmaður slökunarstefnunnar gagnvart austurblokkinni. Brandt hefur enn mikil áhrif í sinum flokki, þótt skuggl hafi fallið á skjöld hans, þar sem upp hefur komist um hvem njósnarann á fætur öðram, sem vann í þjónustu hans. Að ráðum Brandts mun Vogel núverandi leiðtogi sósíaldemókrata hafa stýrt fleyi flokksins til vinstri og lýst sig frekar andsnúinn kjamorku- vömum í Þýskalandi. Gekk hann þar þvert á stefnu Helmut Schmidts, sem var alla sína kanslaratíð talsmaður traustra varaa Atlantshafsbanda- lagsins. Það þarf ekki að fara í neinar grafgötur um það, að meginástæðan fyrir stórsigri kristilegu flokkanna í Þýskalandi er afstaða þeirra í varaar- og öryggismálum. Almenningur í Þýskalandi kærir sig ekkert um að vera ofurseldur heraaðarmætti Sovétríkjanna og vill þess vegna treysta varair lands sins á sem öruggastaa hátt. Það er athyglisvert, að Frans Jósef Strauss leiðtogi Kristilega þjóðarflokksins í Bæjaralandi bætti enn við sig fylgi og hlaut nú yfir 60% atkvæða. Hann hefur sem kunnugt er verið einna harðastur talsmaöur kjaraorku- varaa í Þýskalandi og vill fylg ja eftir stefnu Atlantshafsbandalagsins í þessumáll. Fylgistap sósialdemókrata verður ekki skýrt með öðru en þvi, að kjós- endur hafi yfirgefið hann vegna hik- andi afstöðu hans i öryggismálum. Fréttaskýrendur halda því nú fram, að úrslit kosninganna megi fyrst og fremst rekja til þess, að þýskur almenningur treysti kristi- legu flokkunum betur til þess að reisa atvinnulifið við en sósíal-demó- krötum. Vitanlega hefur þessi afstaða ráðið einhverju, en reynsla af fyrri kosningum bendir tU annars, — að menn kjósi tU vinstri í von um átak gegn atvinnuleysi, enda eru hægri menn yfirleitt merktir sem sérstakir áhugamenn um atvinnu- leysingja og kreppu. A sunnudaginn var flutti Ríkisút- varpið messu á vegum æskulýðs- nefndar þjóðkirkjunnar. Þar kvað að mestu við sama söng og hefur hljómað í Þýskalandi, sem sé að menn eigi að verjast ofbeldismann- inum með því að leggja niður vopn sin og bjóða honum aðgang að húsi sínu, konu og dætrum. Vonandi er nú, að leiðtogar hins íslenska æsku- lýðsstarfs dragi m.a. einhvera lær- dóm af kosningunum í Þýskalandi og geri sér grein fyrir því, að meðan úlfar eru á kreiki í skóginum verður smalinn að eiga vopn til að verja sauði sina. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.