Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Side 5
DV. MIÐVKUDAGUR 9. MARS1983.
5
Blaðið Pittsburgh Post-Gazette birti forsíðufrétt um skaöabætur Coopers og Lybrand og tölvufyrirtækisins.
Coopers og Lybrand
höfðu sölusamning
við tölvufyrirtækið
sem þeir mæltu með
Borgarlögmaður Pittsburgh í
Bandaríkjunum, Dante Pellegrini,
telur skaðabætur þær, sem endur-
skoöunarfyrirtækið Coopers og Ly-
brand og tölvufyrirtækið Software
Internatinal Corporation féllust á aö
greiða borginni, jafnvirði 1,2 mill-
jóna Bandaríkjadala eða um 24 millj-
óna íslenskra króna.
I viötali við blaðiö Pittsbárgh
Post-Gazette segir borgarlögmaöur-
inn að báðum fyrirtækjunum hafi í
október síðastliðnum verið tilkynnt
að borgin væri að íhuga að stefna
þeim. Hætt hefði verið við málsókn
þegar samkomulag náðist um skaða-
bætumar eftir fjögurra mánaða
samningaviðræður.
Coopers og Lybrand höfðu mælt
með því við borgaryfirvöld aö Soft-
ware sæi um að útvega tölvubúnað
vegna bókhalds borgarinnar. Tölvu-
búnaðurinn reyndist mjög illa.
Tölvurnar sjálfar voru ekki vanda-
málið heldur forritin.
I ljós kom að Coopers og Lybrand
höfðu sölusamning við Software-
tölvufyrirtækið. Yfirvöld í Pitts-
burgh vissu ekki af þessum samningi
þegar Coopers og Lybrand ráðlögðu
peim að versla viö Software. Ákvað
Pittsburgh að fá sér nýja endurskoð-
endur í framhaldi af máli þessu.KMU.
Hitaveita Rangæinga
Reyna að dæla
úr borholunni
Dómskerfið:
Veruleg fækkun á
óafgreiddum málum
Barátta dómskerfisins við að
minnka þá hauga af óafgreiddum mál-
um, sem hlaðist hafa upp í gegnum ár-
in, virðist nú loks vera farin að bera
árangur. I nýlegri skýrslu dómsmála-
ráöherra um meðferð dómsmála
kemur í ljós að um verulegan árangur
er aö ræða. 1 samanburði við síðustu
skýrslu dómsmálaráöherra, sem lögð
varifram 1980, kemur fram að 1.
janúar þaö ár voru 109 sakamál á land-
inu óafgreidd frá árinu á undan, en 1.
janúar í ár voru aðeins 68 sakamál óaf-
greidd frá því í fyrra.
Oafgreiddum einkamálum hafði
einnig fækkað. Þau voru 89 á öllu land-
inu 1980 en 46 um síðastliðin áramót.
Ef litið er á tölur frá Reykjavík sést
að árið 1980 voru 109 sakamál óaf-
greidd frá árinu á undan, en 1. janúar í
ár voru þau aðeins 24. Óafgreidd einka-
mál voru 36 1980 en einungis fjögur í
ár.
Allflestum umdæmum á landinu
tekst að fækka óafgreiddum málum,
með örfáum undantekningum. Á Isa-
firöi og í ísafjaröarsýslu voru óaf-
greidd sakamál 1980 sjö og sama tala
er gefin upp í ár. Einkamálum f jölgaði
hins vegar úr tveimur 1980 í níu um síð-
ustu áramót.
„Þetta sýnir að ástandið er í góðu
lagi. Það er sáralítiö af gömlum mál-
Ók á staur
— grunaðurum ölvun
Átján ára piltur var fluttur á slysa-
deild, eftir aö hann ók bifreið sinni á
ljósastaur á Miklubraut á móts við
Engihlíðina á sunnudagsmorgun um
klukkan hálfátta. Pilturinn er grunað-
ur um að hafa ekiö undir áhrifum
áfengis.
Við áreksturinn skekktist ljósastaur-
inn og ljósabúnaður datt niður. -JGH
um í gangi, þeim er lokið og það eru
bara þessi nýjustu mál á dagskrá,”
sagði Friðjón Þórðarson dómsmála-
ráðherra í samtali við DV. „Þetta
bendir til þess að meðferðin sé orðin
greiðari og gangi betur en áður.
Ástandið í meðferð virðist í góðu lagi
um allt land, með kannski örfáum und-
antekningum. Það er greinilegt að
þróunin er mjög jákvæð,” sagði
Friðjón.
SþS/Pá
Tilraunir með borholu Hitaveitu Rangæinga hetjast líklega ekki fyrr en
á morgun, fimmtudag. Dregist hefur að gera dælu klára til verksins.
Dæla verður sett niður í holuna að Laugalandi í Holtum í dag eða á
morgun. Sérfræðingar Orkustotnunar ætla að athuga hvernig holan
bregst við dælingu.
Hálfur mánuður er nú liðinn síðan borholan hætti að skila þeirri orku
sem til var ætlast af henni.
-KMU/DV-mynd Bjarnleifur
GOÐ
MATARKAUP
Kjúklingar
10 stk. í kassa. 96,00 kr. kg
Nautahakk 10 kg 110.00 kr. kg
Ærskrokkar
niðursagaðir 27,50 kr. kg
Lambaskrokkar 66,50 kr. kg
Kindahakk aðeins 48,50 kr. kg
Unghænur 48,00 kr. kg
Hangikjöt eldra verðið
London Lamb 152,00 kr. kg
Baconsneitt 119,00 kr.kg
Daglega ný egg 55,00 kr. kg
Veríð velkomin
m
m
Laugalæk 2 sími 3 50 20, 3 64 75
riAMC
^ BILAR A FRABÆRUM
é KJÖRUM
Gott úrval af jeppum á góðum kjörum, Wagoneer,
Scout, Toyota, allt bílar, sem komast allra sinna ferða í
ófærðinni.
Einnig ódýrir bílar af öðrum gerðum, á mjög góðum kjörum, Fíat
132, Fíat 131, Fíat 127, Fíat 126, Fíat 125 p, allt bílar sem fást á góðum
greiðsluskilmálum, einnig aðrar gerðir af bílum, öll skipti koma til
greina hjá okkur. Komdu og skoðaðu, það borgar sig.
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-18.
OPIÐ SUNNUDAG KL. 13-18.
VILHJÁLMSSON //oAvFsn
4 KOP. SIMAR 77200 - 77720. //sMIÐJUVEGM, KÓPÁ
ISLANDI
SIGURÐSSON hf.
. KOPAVOGI, SÍMAR 77202 - 77200