Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Qupperneq 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. MARS1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Bjargaöúrklóm
mannræningja
ítalska lögreglan bjargaði í gær
dóttur auðugs iðjuhölds úr höndum
mannræningja og náði þrem ræn-
ingjanna. Stúlkunni (27 ára) hafði
verið rænt af fimm mönnum í
desember, sem ráðist höfðu inn á
heimili hennar og bundið móður,
systur og tvo þjóna. Þeir kröfðust
lausnargjalds, en hversu hátt það
var eða hvort það var nokkurn
tíma greitt hefur ekki verið látið
uppi.
Tekur Kohl eitt ráðu-
neyti af frjálslyndum?
Búist er við aö Helmut Kohl kanslari
taki samstarfsmenn sína í ríkisstjóm-
inni, frjálslynda demókrata, á hval-
beiniö í dag og krefji þá um fórnir í
nýju ríkisstjóminni.
I fyrsta sinn eftir kosningarnar á
sunnudaginn mun Kohl hitta Hans-
Dietrich Genscher, formann frjáls-
-------------------m
Hans-Dietrich Genscher, formaður
frjálslyndra, á alvarlegar viðræður
fyrir höndum í dag við kanslarann.
lyndra, í Bonn í dag og mun hann þá
gera honum grein fyrir því sem honum
og Franz Josef Strauss fór á milli í
gær.
Kohl haföi ekki ætlað sér að hefja
viöræður um myndun nýrrar stjómar
fyrr en í næstu viku en sagt er aö
Strauss, leiötogi kristilega banda-
lagsins (hægrisinnaðasta afl V-
Þýskalands), hafi lagt mjög fast að
honum að stokka rækilega upp ráð-
herralistann eftir fylgistap frjáls-
lyndra í kosningunum.
Strauss mun hafa sótt fast að
hremma utanríkisráðherraembættiö
af Genscher, en margir kviðu því að þá
mundi mjög kólna sambúð V-Þýska-
lands og austantjaldsríkja, ef af yrði.
Frést hefur aö Kohl hafi talið Strauss
hughvarf og þá gengiö nærri vináttu-
tengslum sem þeir bundust þegar Kohl
studdi Strauss í kosningabaráttunni
1979.
En frjálslyndir höföu þrjú önnur
ráðuneyti í fyrri stjórn Kohls og þykir
viðbúiö að Strauss hafi ekki látið sér
duga annað en frjálslyndir misstu að
minnsta kosti eitt þeirra.
Heimut Kohl kanslari fékk með
naumindum haldið aftur af Franz-
Josef Strauss.
Lífverðir
hátignar-
innar í
árekstri
Þrír af lífvörðum Elízabetar
Bretadrottningar létu lífið í heim-
sókn hennar hátignar í Banda-
ríkjunum um helgina. Þegar
drottningin heimsótti Yosemite-
þjóðgaröinn í Kaliforníu lentu líf-
verðir, sem leyniþjónustan hafði
sent með henni til fulltingis, í bif-
reiöaárekstri. Lenti bifreiö þeirra
framan á bifreið sem kom úr gagn-
stæðri átt og varð áreksturinn
feikilega harður. Hinn bíllinn var
lögreglubill. Engansakaðiaf hinum
tignu gestum.
Bifrefð lífvarðanna sést hér á myndinni, sem tekin var eftir áreksturinn.
Carter styggir Begin
— Israelum líkar illa hve dátt Carter gerir sér
við fulltrúa Palestmuaraba
Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkja-
forseti, mun hafa ráðgert aö eiga fund
með einum af leiðtogum Palestínu-
araba án þess að þar yröi viðstaddur
fulltrúi ísraels og er Begin forsætis-
ráðherra Israels sagður mjög uppvæg-
urvegnaþess.
Carter kom til Israels í gær í sex
daga einkaheimsókn en hann hefur
verið á ferð í Egyptalandi. Hann ætlar
að hitta Elias Freij, borgarstjóra í
Betlehem, sem þykir einn af frjáls-
lyndari Palestínuaröbum á hernáms-
svæöunum, Gaza og vesturbakka
Jórdan. — Einnig ætlar hann aö hitta á
morgun Rashad A-Shawa, fyrrum
borgarstjóra frá Gaza.
Gestgjafar hans í Israel munu hafa
látiö í ljós óánægju sína með aö Carter
skuli ætla að heimsækja hernámssvæö-
in og hitta leiðtoga Palestínuaraba án
fylgdarlsraelskra embættismanna.
I einkakvöldverðarboði, sem haldið
var Carter til heiðurs í Jerúsalem í
gærkvöldi, þar sem Begin forsætisráð-
herra var meðal gesta stóð til aö þeir
Begin skiptust á skálum. En hætt var
við það. Hafði Carter styggt Israela
með því að hitta í Karíó fulltrúa PLO-
samtakanna en Israelar líta á þau sem
einber hryöjuverkasamtök.
I heimsókn sinni í Israel ætlar Carter
einnig aö hitta forystumenn Israels og
átti hann viðræöur við Begin forsætis-
ráöherra í gærkvöldi.
Handtökur
íPóllandi
43 voru handteknir þegar pólska
lögreglan dreifði mannsafnaði,
sem tvívegis gerði tilraun í gær til
mótmælagöngu í Wroclaw í Sílcsíu.
Bar þetta við að lokinni messu í
dómkirkju borgarinnar.
Samtimis'bafði lögreglan mik-
inn viðbúnað í Varsjá, þar sem bú-
ist var við mótmælaaðgerðum
stúdenta í tilefni fimmtán ára af-
mælis stúdentaóeirðanna, sem
spruttu upp úr kröfum um aukið
tjáningarfrelsi. Þar var allt með
kyrrum kjörum í gær.
Enn erfiöleikar
meöskutluna
Nýja geimskutlan, Challenger,
sem í tvo mánuði hefur átt í aUs
konar vélarbUunum og því ekki
komlst á loft í fyrsta geimflug sitt,á
að fljúga 26. mars. En nú er komið í
ljós örfínt ryk í lest skutlunnar,
sem gæti skaðað fínar myndatöku-
linsur og kann því flugið að frestast
enn um sinn ef ekki næst að hreinsa
lestinaítækatíð.
ÞurrkarfEþíópíu
Miklir þurrkar hafa ríkt á Gond-
ar-svæðinu í Eþíópíu og þykir horfa
í sama óefnið og 1974, þegar 200
þúsund manns féllu i landinu í
hungursneyð upp úr þurrkum. —
Vitað er um 100 manns sem dáiö
hafa á síðustu dögum og er óttast
um fólk sem býr afskekkt.
íleitaögullbjargi
Froskkafarar víða frá Kanada
safnast í næsta mánuði saman við
Breska Kólumbíu-vatnið í leit að
stærsta gullmola heims sem sögur
fara af.
82 ára gamall maður, Magnus
Jernberg, hefur tryggt sér námu-
réttindi á þessum slóðum vegna
sögu sem hann heyrði fyrir löngu af
Grettistaki úr gulli. í gömlu bréfi,
sem einn af gullleitarmönnum síð-
Froskkafarar í Kanada ætla að leita að stærsta gullmola héims í vatninu.
Fyrir 50 árum fann Jemberg
brotinn árabát, sem hann telur til
sanninda sögunni og býður nú 10%
fundarlaun hverjum þeim sem
finnur gullbjargið. Ef það er mass-
íft gull gæti verðmæti þess verið
um 400 milljónir króna.
ustu aldar hafði skrifað, var lýst
hvemig 4 gullleitarmenn hefðu
fundið heilt bjarg sem hefði verið
„100% hreint gull”. Þeir reyndu að
flytja það í árabáti en misstu það
niður í bátinn, sem brotnaði og
sökkþá gulliö.
i