Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Síða 12
12 DV. MIÐVIKUDAGUR9. MARS1983. J'Y A dagbLAÐIÐ-VISIR Útgáfufélag: FRJÁL5 FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaflur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLLSTEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjóm: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir,smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-ogplötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI1». Áskriftarverðá mánuði 180 kr. Verð í lausasölu 15 kr. Helgarblað 18 kr. Þeirmega fara Vonandi mannar meirihluti þings sig upp í aö láta á reyna, hvort alþýðubandalagsmenn fara úr ríkisstjórn, verði vantraust á Hjörleif Guttormsson samþykkt. Sama gildir um vísitölumálið. Alþýðubandalagsmenn væru bet- ur löngu farnir úr stjórn. Fyrir þinginu liggur tillaga í ábnálinu, sem felur í sér vantraust á Hjörleif fyrir viðskipti hans við Alusuisse. Allir þingflokkar, nema þingflokkur Alþýðubandalags, virðast styðja, að ný viðræðunefnd verði skipuð í máliö, nefndin kjósi sér sjálf formann og verði álviðræðurnar með því teknar af iðnaðarráðherra. Meirihluti þingsins virðist þeirrar skoðunar, að iðnaðarráðherra hafi blind- azt af hatri í garð Alusuisse-manna og því ekki reynt nægilega það, sem mestu skiptir, að ná samningum um stórhækkun raforkuverðs til Isals. Alþýðubandalagsmenn láta aö því liggja, að þeir gætu ekki setið í ríkisstjórn, eftir að samstarfsmenn þeirra, framsóknar- og sjálfstæðismenn í ríkisstjórn, hefðu staðið að vantrausti á einn ráðherra Alþýðubandaíags. Sætu þeir eftir slíkt, yrði það þeim mikil háðung. Svipað gildir um vísitölumálíð, nema hvað afstaða stjórnarandstöðunnar er þar nokkuð hulin. Ríkisstjórnin hafði lengi haft á prjónum að breyta vísi- tölukerfinu, taka upp nýjan grundvöll, lengja vísitölu- tímabilin og gera frekari breytingar, flestar til hins betra. Þegar á leið, tók Alþýðubandalagið aö tef ja málið. Svo fór, að forsætisráðherra flutti frumvarp um það með stuðningi Framsóknar en í harðri andstöðu Alþýðubanda- lags. Stuðning stjórnarandstöðunnar þurfti, ætti frumvarpiö aö ganga fram 1. marz, þannig að vísitölutímabilin yrðu þá strax lengd. Slíkt heföi hamlað gegn verðbólgu. Stjórn- arandstæðingar fengust þó ekki til skjótra viðbragða, heldur drápu málinu á dreif. Skammt er eftir af þinginu. Stjórnarandstæðingar sýndu mesta ábyrgð, ef þeir færu sem snöggvast upp úr skotgröfunum og stæðu að lagfæringu á vísitölukerfinu. Alþýðubandalagsmenn höfðu í heitingum, þegar for- sætisráðherra flutti þetta frumvarp sitt. Fyrst töluðu þeir um að fara tafarlaust úr stjórn. Síðar breyttist orðalagið í, að þeir færu úr stjórn, yrði vísitölufrumvarpiö sam- þykkt. Stjórnarandstaðan tók þann kaleik frá þeim, aö minnsta kosti að sinni. Alþýðubandalagð stendur einnig einangrað í flugstöðv- armálinu, sem þingmenn Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks hafa nú flutt inn í þingið að nýju. Samþykki við byggingu nýrrar flugstöðvar á Kefla- víkurflugvelli hefur lengi strandað á því einu, að Alþýðu- bandalagið hefur setið í ríkisstjórn. Það skilyrði stendur í sáttmála stjórnarinnar, að ekki skuli ráðizt í byggingu flugstöðvar, nema allir aðilar stjórnarinnar samþykki. Með þeim hætti hefur Alþýðu- bandalagfíThaft neitunarvald, þótt yfirgnæfandi þing- meirihluti hafi greinilega verið fylgjandi flugstöðvar- byggingu. Pálmi Jónsson ráðherra telur, að ríkisstjórnin eigi að fara frá strax eftir kosningar, hvernig sem þær fara. Ráð- herrar Alþýðubandalagsins mega vel fara fyrr. Meiri- hluti þingsins á ekki að láta hótanir þeirra hindra fram- gang þeirra nauðsynjamála, sem kostur er að koma fram. Forseti gæti, ef verkast vill, beðið Gunnar Thorodd- sen að stýra ríkisstjórn fram yfir kosningar og fá embætt- ismenn í stað alþýðubandalagsmanna. Verktakastarfsemin á Keflavíkurflugvelli: MISMUNUN Verktakastarfsemi á Keflavíkur- flugvelli er mikiö rædd í nágrenni flug- vallarins. Fullyrt er aö þar viögangist spilling af verstu gerö, ásamt hvers konar pólitísku braski. Á Suðurnesjum er og rædd sú mis- munun sem á sér staö gagnvart heima- fólki. Öllum má ljóst vera aö ótrúlegir fjármunir streyma um hendur verk- taka og þá einkum Islenskra aðal- verktaka sem sitja einir aö nýfram- kvæmdum þar. I krafti einokunar skammta þeir sér fjármuni, en aörir og þá á ég við þá sem búa í nágranna- byggöarlögunum, sitja hjá. Eru í þeirri aöstööu aö þiggja mola af boröum þeirra fjármálafursta er gína yfir aðstööunni á Keflavíkurflugvelli. Engin svör Fyrir nokkru ritaöi ég kjallaragrein í DV. Þá spuröi ég um ýmsa þætti í rekstri Islenskra aöalverktaka. Eink- um spuröi ég um samsetningu fyrir- tækisins, heimildir til aö flytja allan gróöa til Reykjavíkur og benti á hallirnar á Höföabakka. Þá spuröi ég um huldufyrirtækið Regin hf., sem okkur samvinnumönn- um er sagt aö sé í eigu SIS. Enginn ut- an lítillar klíku fær aö sjá reikninga Regins, hvaö þá upplýsingar um hvemig gróða þessa hermangsfyrir- tækis er variö. Engin svör hafa fengist viö þessum spumingum. Gefur þaö vissulega til kynna aö þar sé óhreint mjöl í pokanum. Þaö fer þó vissulega í taugarnar á mér og fleirum þegar fréttir berast af því aö Regin hf. hafi mokaö f jármunum í hin ýmsu hallæris- fyrirtæki úti á landi á meöan frystihús Kaupfélags Suðurnesja er á brauöfót- um, fær ekki neitt þegar erfiöleikar steöja aö og f jöldi fólks er atvinnulaus. Það er nefnilega skoðun okkar hér syöra að fjármunir fengnir af þessari starfsemi eigi aö fara til atvinnu- uppbyggingar í byggðarlögunum um- hverfis Keflavíkurflugvöll. Svartur blettur En þaö em fleiri fy rirtæki þama sem ástæöa er til aö spyrja um þótt mér þætti eðlilegast aö spyrja um Regin hf., því aö ef þaö er í eigu SIS hlýt ég Karl Steinar Guðnason sem félagsmaöur aö vera einn af með- eigendum þess fyrirtækis. Þaö er hins- vegar ljóst aö ekki er til þess ætlast að almennir félagsmenn kaupfélaganna fái neitt aö vita um gróðabrask SlS á KeflavíkurflugvelU. Þaö er svartur blettur á samvinnuhreyfingunni, hreyfingu sem ég vissulega ber hlýjar tilfinningar tii. Verktökueinokun Islenskir aðalverktakar hafa ýmis hliðarfyrirtæki sem taka aö sér sérstök verkefni. Má þar nefna Félag vatns- virkja. Það fyrirtæki sér um pípulagnir o. fl. fyrir vamarUöiö. Upprunalegir „eigendur” þess, sem voru 17 pípulagningarmenn, munu nú flestir dánir og því stjórna erfingjar því fyrirtæki aö mestu. Meistarar í pípulögnum era því ekki nema aö hluta tU eigendur þess fyrirtækis, heldur aUt aörir. Það hefur verið mjög gagnrýnt aö iönaöarmenn á Suöumesjum hafa ekki rétt á borö viö þessa erfingja. Þeir fá ekki aö bjóöa í verk. Þeir era settir til hliðar, verktaka er þeim bönnuö. Þetta gamla fyrirtæki, Félag vatnsvirkja, hefur einkarétt á þessum málum. Þangaö skulu fjármunirnir renna. Á meðan fjöldi pípulagningarmanna í byggðarlögunum á Suöurnesjum skortir verkefni sækir Félag vatns- virkja pípulagningarmenn um langan veg utan Reykjaness til aö vinna verkin. Suðurnesjaverktakar Fyrir nokkmm árum stofnuöu um 100 meistarar í hinum ýmsu iðngrein- um sérstakt félag, Suðumesjaverk- taka. Var þaö ætlun þeirra aö móta traust félag er gæti séö um verktöku á Keflavíkurflugvelli og almennt á Suðumesjum. Þessi félagsskapur hefur hinsvegar mætt ýmsum hindrunum. Suöurnesjaverktakar hafa harölega gagnrýnt þaö fyrirkomulag er nú tíökast í verktöku á vellinum. Þeim sem fleirum þykir eölilegt aö heima- menn sitji við sama borö í þeim efnum og t.d. Félag vatnsvirkja. Framkvæmdasjóður Suðurnesja Lengi hefur Suöurnesjamönnum sviðiö sú staðreynd að þeir skuli settir til hliöar á meöan gróðapungar Fram- sóknar- og Sjálfstæöisflokks í helmingaskiptastjóm þeirra flokka síöan árin 1952—56 mata krókinn. Mikið hafa menn rætt þá ósvinnu aö byggðar eru hallir á Höfðabakka og allt fjármagn þessara fyrirtækja IAV er geymt til útlána utan svæöisins. • „Það hefur mjög verið gagnrýnt að iðnaöarmenn á Suðurnesjum hafa ekki rétt á borð við þessa erfingja. Þeir fái ekki að bjóða í verk..” PRÓFKJÖR OG LÝÐRÆÐI Flestum k jósendum hefir þótt horfa í lýöræðisátt meö upptöku prófkjara til upprööunar frambjóðenda á framboðslista til alþingis- og sveitar- stjómakosninga. I staö þess, sem áöur var, að flokksbroddar í héraöum og/eða miðstjórnir flokkanna í Reykjavík, skömmtuöu kjósendum frambjóöendur til aö kjósa um, velur fólkiö sér sjálft frambjóöendur meö forvali og skipar þannig á framboðs- lista aö eigin vild. Hefir þaö reynst svo aö flokkarnir hafa í verki fallist á hinn r.ýja hátt viö val frambjóðenda til kosninga, þó á mismunandi hátt. Ekki hefir þetta þó verið gert aö öllu og er augljóst, að mér virðist, aö lögbinda þurfi reglur um forkosningar og fram- kvæmd þeirra. — Allt annaö skapar sundrang innan flokkanna og ósætti flokksmanna við forustu þeirra, einkum þar sem forastan í hinum einstöku kjördæmum, meö stuðningi miöstjórnar, sviptir kjósendum þessum, aö ég tel, lýöræöislegum réttindum. Forkosningar verði samtímis Ég tel nauðsynlegt aö forkosningar fari fram samtímis hjá öllum flokkum í hverju kjördæmi og helst samtímis í öllum kjördæmum. — Kæmi þaö í veg fyrir tortryggni, stundum ekki aö ástæðulausu, um aö kjósendur annarra flokka, jafnvel flokksbundnir menn, hafi áhrif á val frambjóðenda þeim andstæöra flokka. Þessi háttur var hafður á viö forkosningu frambjóöenda til bæjarstjórnar Akra- ness viö síðustu bæjarstjórnar- kosningar og reyndist vel. Kjörstjórnir viö forval ættu aö vera þær sömu og til alþingis- og sveita- stjómarkosninga, k jörstaöir hinir sömu og Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.