Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Blaðsíða 20
20
DV. MDÐVIKUDAGUR9. MARS1983.
DV. MIÐVDCUDAGUR 9. MARS1983.
21
íþróttir íþróttir (þróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Keppni heimsbikarsins íalpagreinum:
Phil Mahre
sigurvegari
3ja árið í röð
— sigraði í stórsvigi í Aspen, USA
Phil Mahre, USA, tryggði sér sigur
samanlagt í alpagreinum heimsbik-
arsins, þegar hann sigraði í stórsvigi á
mánudag í Aspen í Colorado, USA.
Hann hefur nú 250 stig og aðrir kepp-
endur geta ekki náð þeirri stigatölu.
Þriðja árið í röð, sém Phil sigrar saman-
lagt.
Tími hans í gær í stórsviginu var
2:31,49 mín. Marc Girardelli, Luxem-
borg, varð annar á 2:31,73 mín. og
Ingemar Stenmark, Svíþjóð, þriöji á
2:32,09 mín. Bætti stigatölu sína ekki
nema um 10 stig og er annar með 207
stig. Girardelli þriðji meö 168 stig.
Andreas Wenzel, Lichtenstein, fjórði
með 166 stig.
Phil Mahre náöi bestum brautar-
tíma í báöum umferðum í Aspen.
Fyrsti sigur hans í stórsvigi á keppnis-
tímabili. Þrjú svigmót eftir og þó Sten-
mark sigri í þeim öllum fengi hann
ekki nema 41 stig yfir þaö. Aðeins
fimm bestu mótin telja í hverri grein
hjá skíðamönnum.
-hsím.
ÍR-ingar
borguðu
dómaranum
Það hefur komið alltof oft fyrir í vet-
ur að leikir í yngri flokkunum hafa taf-
ist um lengri tíma eða hreinlega verið
frestað vegna þess aö dómarar hafa
ekki verið tii staðar.
Jim Dooley, þjálfari ÍR, er orðinn
mjög þreyttur á þessum kúnstum og
fyrir úrslitaleikinn í Reykjavíkurmót-
inu i 3. flokki um daginn slógu ÍR-ingar
saman í púkk og greiddu úrvalsdeild-
ardómara 200 krónur fyrir að mæta og
dæma umræddan leik. Er nú ástandið
orðið vægast sagt bágborið þegar hafa
þarf slíkar aðferöir í frammi. -SK.
DAHL GETUR
r Mahre sigr-1
aði aftur
Phil Mahre er kominn í mik-
inn ham. I Vail í Colorado í |
Bandaríkjunum í gær sigraði ■
hann aftur í stórsvigi heimsbik- |
arsins eins og í Aspen. Þetta .
eru fyrstu sigrar hans í stór- |
svigi heimsbikarsins í vetur.
Phil Mahre keyröi í gær á ■
3:03,00 mínútum. Ingemar I
Stenmark varö annar á 3:03,14
mín. og Max Julen, Sviss, þriðj i |
á3:03,14mín. hsím
Anders-Dahl Nielsen á veldisdögum sinum sem fyr-
irliði danska iandsliðsins í handknattleik.
VALIÐ MILLIFELAGA
— hann mun enga ákvörðun taka fyrr en
keppnistímabilinu er lokið hér á landi
„Ég hef enn ekki ákveðið
hvort ég verö þjálfari eða leik-
maður næsta leiktímabil. Ég
hef mikla löngun til að verða
eingöngu leikmaður eftir
keppnistímabil þar sem ég hef
ekki haft „yfirfrakka” í hverj-
um ieik. Þjálfari get ég síðan
alltaf orðið. Én við skulum
ljúka þessu leiktimabili fyrst.
Síöan mun ég hringja til þess
félags sem ég vel,” segir
Anders Dahl Nielsen, fyrrum
landsliðsfyrirliði Dana í hand-
knattleiknum, sem leikið hefur
með KR og þjálfað KR-inga við
góðan orðstír í vetur.
Dönsku blööin skrifa nú mik-
ið um þennan snjalla leikmann
og segja aö hann geti valið úr
félögum í Danmörku, hvort
heldur sem leikmaður eða
þjálfari, þegar hann kemur
heim frá Islandi hinn 1. maí
næstkomandi.
Mörg félög hafa hringt til
hans — til Reykjavíkur, segja
dönsku blöðin og Ribe HK, sem
hann yfirgaf til að verða spil-
andi þjálfari á eldfjallaeyjunni,
getur ekki verið öruggt að fá
hann til sín næsta keppnistíma-
bil. Kolding HK vill fá hann til
aö taka við af Jörgen Heide-
mann og þýska Bundeslígufé-
lagiö TSB Flensburg hefur sýnt
áhuga á að fá Anders-Dahl til
sín.
hsim
Reykjavíkur-
mótið verður
öllum opið!
Reykjavikurmótið í badminton fer
fram um næstu helgi i TBR-húsinu við
Gnoðarvog. Reykjavíkurmótið er
annað stærsta badmintonmót landsins
— á eftir sjálfu íslandsmótinu — og
hefur nú verið ákveðið að hafa það
opið.
Fá utanbæjarmenn þar með að taka
þátt í því, en keppa þar sem gestir.
Getur utanbæjarmaður að sjálfsögöu
ekki orðið Reykjavíkurmeistari, en ef
svo skyldi fara að utanbæjarmaður
sigraði í meistaraflokki yrði sá Reyk-
víkingur sem kæmi næst honum meistari.
-klp-
Knattspyrnufélagið Fram 75 ára 1. maí:
Stórkarlar á fjölskyldu-
hátíð í Laugardalshöll
— verður á fimmtudagskvöld en afmælishóf
að Hótel Sögu 22. apríl
Knattspymufélagið Fram,
eitt merkasta íþróttafélag
Iandsins, verður 75 ára hinn 1.
maí næstkomandi. Vegna af-
mælisársins verður ýmislegt
gert til hátíðabrigða og þegar
hefur eitt mót verið háð. Innan-
húss-knattspyraumót, sem háð
var í Laugardalshöll í janúar.
Á fimmtudagskvöld, 10.
mars, gengst Fram fyrir fjöl-
skylduhátíð í Laugardalshöll.
Þar verður viðamikil dagskrá.
Stjómarmenn KSÍ, sem
fengið hafa Albert Guðmunds-
son, fyrrum formann KSI, til
liös við sig, munu leika við
stjömuliö Omars Ragnarsson-
ar. Dómari verður Jörundur
Guðmundsson, fv. formaður
KDI. Þá leika „gullaldarlið”
Fram og FH í handbolta, sem á
ámnum 1958—1972, eða 14 ár-
um, unnu sjö Islandsmeistara-
titla hvort félag. Þar veröa
kunnir kappar eins og Björgvin
Björgvinsson, Fram, og Geir
Hallsteinsson, FH.
Urvalslið úr yngri flokkum
Fram leika knattspyrnu og
kvennalið Fram og Vals leika í
handbolta. Skemmtunin hefst
kl. 20 meö tónlist fyrsta hálf-
tímann meðan fólk er að koma
sér fyrir og mun Pétur W.
Kristjánsson, hinn kunni söng-
vari og hljómlistarmaður, sjá
umhana.
Afmælisfagnaöur Fram
verður haldinn í Súlnasal föstu-
daginn 22. april og afmælisdag-
inn 1. maí verður opið hús í Átt-
hagasal Hótels Sögu milli kl. 16
og 18. hsím.
Hamborg efst
Hamburger SV komst í efsta sætið í
l.deildinni þýsku í gærkvöld meö 2—0
sigri á Fortuna Dusseldorf. Thomas
van Heesen og Holger Hieronymus
skoruðu. Hamborg hefur nú 34 stig,
tveimur stigum meira en Bayem og
Dortmund.
í 8—liða úrslitum bikarkeppninnar
sigraði Fortuna Köln úr 2. deild, liðið,
sem Janus Guðlaugsson lék með,
Borussia Mönchengladbach 2—1 í
Köln. Borussia Dortmund vann
Bochum 2—1. hsím.
Stórsigur
KA á Þór
KA vann stórsigur á Þór, 31—51, í síð-
ari leik liðanna í meistaraflokki á
Akureyrarmótinu í gærkvöldi. Staðan í
hálfleik 18—6. Flest mörk KA skoruðu
Kjell Mauritsen og Jakob Jónsson 6
hvor, Guðmundur Guðmundsson 5, Er-
lendur Hermannsson 4 og Þorleifur
Annaníasson 4. Flest mörk Þórs skor-
uðu Gunnar Gunnarsson 5, Sigtryggur
Guðlaugsson og Éinar Arason 3 hvor.
AB/Akureyri.
Dagskrá: Fram —FH 1960 — 70 — handbolti old boys.
Stjörnulið Ömars Ragnarssonar — Stjórn
KSÍ + Albert Guðmundsson.
Ironheads í fyrsta sinn á íslandi.
old girls í handbolta.
Vítakeppni áhorfenda, Val Brazy og
Kristinn Jörundsson.
Hljómlist: Pétur Kristjánsson.
Flokkakeppnin í borðtennis:
KR-ingar meistarar í áttunda skiptið!
KR-ingar unnu sigur i 1. deildinni í
flokkakeppni karla í borðtennis í gær
þegar þeir sigruðu A-lið Amarins 6—4 í
Körfuknattleiksmenn Þórs á Akur-
eyri fá heldur betur að reyna á sig nú í
lok vikunnar. Þeir eiga að leika við Val
í undanúrslitum bikarkeppninnar á
Akureyri á fimmtudaginn og svo tvo
leiki í 1. deildinni við Borgames á
föstudag og laugardag.
Þetta gerir þrjá leiki hjá þeim á
þrem dögum. Verður það erfitt og ekki
bætir úr skák að þeir verða án Banda-
ríkjamannsins sem lék með þeim í vet-
ur, Robert McField, sem stakk þá af í
síðustu viku eins og við sögðum frá og
leikur því ekki meira með þeim.
mjög spennandi leik.
KR-ingarair höfðu sigrað í 1. deild
karla 7 sinnum í röð og var þetta því
Leikirnir í 1. deildinni skipta Þór
litlu máli, þar hafa Haukar þegar
tryggt sér sigur og útlit er fyrir að
Skallagrímur falli í 2. deild.
Staðan í 1. deildinni er nú þessi:
Haukar 15 13 2 1444-1082 26
IS 16 11 5 1408-1132 22
ÞórAk. 12 8 4 999-945 16
Grindav. 14 3 11 966-1181 6
Borgarnes 13 0 13 807—1284 0
Leikirnir sem eftir eru í deildinni eru
þessir: Þór—Borgames og Þór—Borg-
ames, Borgames—Grindavík, Grinda-
I vík—Þór og Haukar—Þór. -klp
þeirra 8. sigur á 8 árum. Einn leikur er
enn eftir í karlakeppninni. Vikingur A
og Örninn A. Skiptir sá leikur máli um
annað sætið en til þess að Vikingamir
nái því verða þeir að sigra í leiknum
6—2 eða meir.
I keppni kvenfólksins stendur slag-
urinn á milli A-liðs Amarins og A-liðs
UMSB. Er staðan hjá Erainum betri
en bæði liðin eiga eftir eitthvað af leikj-
um. -klp-
HMíBrasilíu?
Giulite Coutinho, formaður knatt-
spymusambands Brasiliu, vann stór-
an sigur i gær í baráttu sinni að
Brasilía fái að halda heimsmeistara-
keppnina í knattspymu 1986.
Brasiiiska þingið samþykkti með yfir-
gnæfandi meirihluta tillögu Coutinho
að leggja til við rikisstjórnina að hún
veiti ábyrgð fyrir fjárhagsstuðningi
við HM. Rikisstjórnin mun taka
ákvörðun nk. föstudag. Coutinho telur
að ágóöi af HM gæti orðið 197 milljónir
dollara. Samt er ríkisstjómin á báðum
áttum vegna hinnar siæmu fjárhags-
stöðu ríkissjóðs Brasilíu. hsím.
Nóg að gera
hjá Þórsurum
— leika þrjá leiki á þrem dögum
Islandsmeistarar Breiðabliks
Breiðablik varð á sunnudag Islandsmeistari í innanhússknattspyrnu annað árið i
röð, þegar liðið sigraði Þrótt, Reykjavík, í úrslitaleik. Hér eru meistararair. Efri
röð frá vinstri: Magnús Jónatansson þjálfari, Jón Ingi Ragnarsson, formaður
knattspyraudeildar, Þorsteinn Hilmarsson, Hákon Gunnarsson, Sigurður Grét-
arsson, Bjöm Þór Egilsson, Helgi Helgason og Pétur Omar Agústsson. Fremri
röð frá vinstri: Þorsteinn Geirsson, Trausti Omarsson, Vignir Baldursson fyrir-
liði, Sigurjón Kristjánsson og Ingvaldur Gústafsson.
DV-mynd G. Svansson.
Peter Withe — skoraði fyrir Aston
Villa á 28. mín. í gær.
Fylkir
í efsta sæti
— stigataflan leiðrétt
— vantaði leik Fylkis
og Skallagríms
Strákamir úr Reyni í Sandgerði
fengu ekki að halda lengi efsta sætinu í
3. deild íslandsmótsins í handknattleik
karla. Samkvæmt töflunni sem birtist í
blaðinu á mánudaginn voru þeir i
efsta sæti — einu stigi á undan Fylki.
Við höfum nú fengið fregnir af því að á
töfluna hafi vantað leik Fylkis og
Skaliagrims, sem var settur á án þess
að tilkynna neinum nema liðunum nú
fyrir nokkrum dögum.
I þeim leik sigraði Fylkir 33—6,17—
2 yfir í hálfleik. Þar með er Fylkir efst-
ur og verður varla breyting á því fram
að mótslokum. Staðan í 3. deild er
þessi:
Fylkir
Reynir S
Akranes
Þór Ak.
Týr Ve
Keflavík
Dalvík
Skaliagrímur
ögri
12 11 0
14 10 1
1 268-171 22
3 360-281 21
3 305-208 15
3 284-213 14
4 225-192 11
7 294-269 11
6 207—215 6
2 0 11 208-328 4
0 0 11 111-325 0
Um 20 leikir eru enn eftir í 3. deild,
þar af fjöldi frestaðra leikja frá í
vetur. Fara þeir fram á næstunni en
síðasti leikurinn í deildinni á sam-
kvæmt skrá að vera um miðjan næsta
mánuö.
-klp-
Nicklaus og
Millerað
komast íform
Kappamir frægu Johny Miller og
Jack Nicklaus röðuðu sér í tvö efstu
sætin í Honda Inverary Classic golf-
keppni atvinnumanna, sem haldin var
í Lauger HUl í Florida og lauk um helg-
ina.
Johny Miller, sem litiö hefur farið
fyrir í golfkeppni meðal hinna bestu að
undanfömu, varð sigurvegari í keppn-
inni. Lék hann á samtals 278 höggum,
sem er 10 höggum undir pari. Nicklaus
varð annar á 280 höggum, en hann lék
síðustu 18 holumar á 66 höggum, eða 6
undir pari.
Nicklaus fékk um 40 þúsund dollara
fyrir annaö sætið en Miller 72 þúsund
dollara — eða um 1,4 milljónir ís-
lenskra króna fyrir fyrsta sætið.
Þriðja til fimmta sætiö í keppninni
skiptist á milli Fred Couples, Mike
Sullivan og Mike Holland, en þeir voru
allir á 281 höggi. Aftur á móti varð
sigurvegarinn í atvinnumannakeppn-
inni þar á undan, Gary Koch, í 10. sæti.
Hann hafði þó forustu í þessari keppni
eftir 54 holur — var þá á 209 höggum.
Lék hann síðasta hringinn á 76 höggum
á meðan þeir Miller og Nicklaus léku
sama hring á 69 og 66 höggum. klp
McKinney efst
Roswitha Steiner, Austurriki, vann
sinn fyrsta sigur i keppni heimsbikars
kvenna í alpagreinum í Waterville
Valley í USA i gær. Það var í svigi og
tími hennar var 1:33,84 mín. Tamara
McKinney, USA, varð önnur á 1:34;21
mín. og náði við það forustu saman-
lagt. Hefur 182 stig.
Þeir keppa a Evropumotinu 1 judo. Fremri roð t.v. Kolbeinn Gislason, Bjami Asg.
Friðriksson. Aftari röð t.v.: Sigurður Hauksson, Kristján Valdimarsson og Hall-
dór Guðbjörnsson.
DV-mynd Friðþjófur.
FIMM A EVRÓPU'
MÓTIÐ í JÚDÓ
Júdósamband íslands hefur valið
fimm menn til æfinga og keppni fyrir
Evrópumeistaramótið í júdó, sem
haldið verður i Paris Frakklandi um
miðjan apríl nk.
Þeir sem keppa fyrir tslands hönd
em þeir Kolbeinn Gíslason, Ármanni,
Bjami Ásg. Friðriksson, Ármanni,
Kristján Valdimarsson, Ármanni,
Sigurður Hauksson, Keflavík, og Hall-
dór Guðbjömsson, JFR.
Eftir keppnina er þeim öllum boðið
að vera í æfingabúðum á vegum
ólympíunefndarinnar í júdó og verða
þæríParís.
Munu þeir allir ætla aö fara í þær,
enda fá þeir þar gullið tækifæri til æf-
inga með þeim bestu í íþróttinni í
Evrópu.
-klp-
75
ára
1983
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ
í LAUGARDALSHÖLL FIMMTUDAG 10. MARS
KL.20
Aston Villa
í fjórða sætið
— vann Notts County í gærkvöld
Evrópumeistarar Aston Villa skut-
ust upp í fjórða sætið í 1. deildinni
ensku í gærkvöld, þegar þeir sigruðu
Notts County 2—0 á Villa Park. Áhorf-
endur vora aðeins 17.452 og er það
minnsta aðsókn hjá Aston Villa á leik-
tímabilinu. Fyrirliði Villa, Dennis
Mortimer, slasaðist í leiknum og vafa-
samt er að hann geti leikið i bikarleikn-
um gegn Arsenal á laugardag.
Leikmenn Villa höfðu gífurlega yfir-
buröi í leiknum gærkvöldi og
hefðu átt að skora miklu fleiri mörk.
Til dæmis misnotaði Gordon Cowans
vítaspyrnu, þriðja vítaspyman í röð
hjá honum sem ekki ratar rétta leið.
Peter Withe skoraöi fyrir Villa í fyrri
hálfleiknum. Gary Shaw bætti við öðru
marki í þeim síðari. Villa hefur nú 48
stig. Tveimur meira en Nottingham
Forest, sem er í fimmta sæti en 18 stig-
um á eftir efsta liöinu, Liverpool. Hef-
ur leikiö 30 leiki eða einum leik meira
en efstuliðin þrjú.
Þetta var eini leikurinn í 1. deild. Þá
var líka einn leikur í 2. deild. Middles-
brough sigraði Shrewsbury 2—1 á
heimavelli og komst við sigurinn úr
næstneðsta sætinu í þaö fjórða neðsta.
Það er að segja úr fallsæti. Þeir
Kennedy og Hankin skoruðu mörk
Middlesbrough í gær. Ross MacLaren
fyrir Shrewsbury.
John Lukic, ungi markvörðurinn
snjalli hjá Leeds, fór fram á það í gær
að vera settur á sölulista. Vill komast
til liðsins í 1. deild. Vel yfir 1,90 m á
hæð og í hópi bestu markvarða
Englands. Þá eru Ulfamir að reyna að
fá Gary Owens til sín frá West
Bromwich Albion. hsím
Ömar Albert Geir Þórhallur
Ragnarsson, Guðmundsson, Hallsteinsson, (Laddi)
Sigurðsson,
Hermann
Gunnarsson,
Magnús
Ólafsson,
Ellert
Schram.
KNATTSPYRINIUFÉLAGIÐ FRAM.