Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Page 30
30 DV. MIÐYIKUDAGUR9. MARS1983. BREIÐHOLTI SÍMI76225 Fersk blóm daglega. \ MIKLÁTORGI SÍMI 22822 Vogar — Vatnsleysuströnd Til sölu gamalt timburhús á tveimur hæðum. Húsið er bárujárnsklætt. Getur losnaö fljótlega. Verðkr. 650.000. Uppl. í síma 92-6637. 1 Skipulagsstörf Hafnarfjarðarbær auglýsir til umsóknar starf skipulags- manns er hafi sérþekkingu á undirbúningi bæjarskipulags. I starfinu felst aðallega að finna gerð skipulagsuppdrátta, ásamt öðrum skipulagsverkefnum og málum tengdum þeim. Starfið heyrir undir embætti bæjarverkfræðings og veitir hann nánari upplýsingar. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf skulu berast undirrituðum eigi síöar en 30. mars nk. BÆJARVERKFRÆÐINGUR. Laus staöa hjá Reykjavíkurborg Reykjavíkurborg vill ráða starfsmann til eftirtalins starfs. Starfskjör skv. kjarasamningum. • Staða forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Arsels er laus til umsóknar. Menntun á sviði æskulýðs- og félagsmála æski- leg og jafnframt reynsla af stjórnunarstörfum. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykja- víkur, Fríkirkjuvegi 11, s. 21769. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Fríkirkjuvegi 11. Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a. frá menntun og starfsreynslu auk almennra persónulegra upplýsinga. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur- borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 25. mars 1983. YAMAHA- SKEMMTARI Til sö/u árs gamall Yamaha-skemmtari. Teg. B35N. Sem nýr. Upplýsingar ísíma 31206 eftir kl. 19. 4 NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ Fremur skoðana- könnun en fagleg umfjöllun — segir Jóhann Guðmundsson, f orst jóri Framleiðslueftirlitsins, um skýrslu Fiskmatsráðs „Eg lit á skýrsluna fremur sem skoðanakönnun en faglega umfjöll- un. Erfiðleikar Framleiðslueftirlits- ins eru þegar kunnir og stafa að verulegu leyti af stórauknum verk- efnum, án þess aö aukið rekstrarfé hafi fengist. Að mínu áliti eru niöur- stöður túlkunar Fiskmatsráðs allt aörar en skoðanakönnunin gefur til- efnitil.” Svo segir meðal annars í athuga- semdum sem Jóhann Guðmundsson, forstjóri Framleiðslueftirlits sjávar- afurða, hefur sent DV vegna fréttar í blaöinu á miðvikudag í síðustu viku um að Framleiðslueftirlitið hafi brugðist skyldum sínum. Var þar vitnað í skýrslu sem unnin var á veg- umFiskmatsráðs. En Fiskmatsráð er ekki eitt um þessa skoðun. 1 september 1979 skipaði sjávarútvegsráðherra nefnd til aö endurskoða lög um Fram- leiðslueftirlit sjávarafurða til ein- földunar og sparnaðar í rekstri stofn- unarinnar. Nefndin skilaði áfanga- skýrslu i janúar 1980. Þar segir að gagnrýni hafi borist á starfsemi stofnunarinnar frá hagsmunaaðil- um, hinu opinbera og frá starfs- mönnum. Hagsmunaaðilar hafi gagnrýnt fiskmatið fyrir ófagleg vinnubrögö, stífni og stirðleika og jafnvel hlutdrægni, ennfremur mis- ræmi á milli landshluta og milli manna á sama stað. Einnig segir þar að kvartað hafi verið yfir ósam- ræmdum innheimtuaðgerðum ein- stakra matsmanna. Gagnrýni hins opinbera hefur beinst að f jármálum stofnunarinnar og kostnaði við fersk- fiskmat sem hefur numið nærri helmingi af heildarkostnaði við Framleiðslueftirlitið. I skýrslu nefndarinnar segir enn- fremur: „Virðist sem innanhúss- ósætti hafi átt talsveröan þátt í því að minnka veg þessarar stofnunar og komi það bæði niður á þeirri þjón- ustu sem stofnunin á að veita og kostnaði við rekstur Framleiöslueft- irlitsins.” Niðurstaöa af starfi nefndarinnar var sú aö Framleiöslueftirlit sjávar- afurða verður lagt niður og stofnað Ríkismat sjávarafurða og hefur sjávarútvegsráðherra boðað að frumvarp þess efnis verði lagt fram á næsta þingi. ÓEF Frá námstefnu framkvæmdastjóra malmiðnaðarfyrirtækja i Borgarnesi. Læra að reka betur málmiðnfyrirtæki Þriggja daga námstefna fyrir fram- kvæmdastjóra málmiðnaðarfyrir- tækja var nýlega haldin á Hótel Borg- amesi. Samband málm- og skipa- smiðja og Iönþróunarverkefni SMS gengust fyrir námstefnunni. Fjallað var í fyrirlestrum og starfs- hópum um stjómunarlegt hlutverk og viðfangsefni framkvæmdastjóra. Dæmigert meöalstórt íslenskt málm- iðnaðarfyrirtæki var krufið. Viðfangs- efni þátttakenda var að skilgreina helstu vandamái fyrirtækisins, sem átti við verulega fjárhagsörðugleika að stríða, og leggja fram tillögur um endurbæturí rekstrinum. Að loknu endurmati á markmiðum fyrirtækisins var fjallaö skipulega um stjórnun þess, fjármál, framleiöni og markaðsmál með sérstöku tilliti til hlutverks og stöðu framkvæmdastjór- ans. Námstefna þessi þótti vel heppnuð. Þátttakendur voru á einu máli um að slík námstefna fyrir framkvæmda- stjóra málmiðnaðarfyrirtækja væri ákaflega þýðingarmikill liður fyrir hvern einstakan í að ná betri tökum á starfi sinu. -KMU. Fyrirlestrar á vegum heimspekideildar Heimspekideild Háskóla Islands gengst fyrir opinberum fyrirlestrum á vormisseri til að kynna almenningi rannsóknir sem deildarmenn eru að vinna að. Fyrirlestrarnir verða fluttir á laugardögum i mars og apríl í stofu 201 í Ámagarði og byrja klukkan 14 aila dagana. Næstkomandi laugardag flytur Arnór Hannibalsson fyrirlestur sem nefnist Heimspeki og saga, laugardag- inn 19. mars flytur Gísli Kristjánsson sagnfræðinemi fyrirlestur um verslun- arsvæði Isafjarðar á síðari hluta 19. aldar. Að loknum þessum fyrirlestrum verður tveggja vikna hlé, en laugar- daginn 9. apríl fiytur Kristján Arnason stundakennari fyrirlestur er hann nefnir Heimspeki og skáldskapur. 16. apríl flytur Ingi Sigurðsson lektor fyrirlestur um íslenska sagnfræði frá miðri 19. öld til samtímans í erlendu samhengi, Höskuldur Þráinsson prófessor og Kristján Árnason flytja saman fyrirlestur 23. apríl um málfar Vestur-Skaftfellinga og síðasti fyrir- lesturinn verður 30. apríl en þá ræðir Julian Meldon D’Arcy lektor um tál- myndir og átrúnaðargoð í Tess of the d’Urbanvilles eftir Thomas Hardy. Heimspekideild hefur áður gengist fyrirfyrirlestraröðenþað er nú nýmæli að stundakennarar og stúdentar taki þátt í fyrirlestrarhaldi. ÖEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.