Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Blaðsíða 30
30
DV. MIÐYIKUDAGUR9. MARS1983.
BREIÐHOLTI
SÍMI76225
Fersk blóm daglega.
\
MIKLÁTORGI
SÍMI 22822
Vogar — Vatnsleysuströnd
Til sölu gamalt timburhús á tveimur hæðum.
Húsið er bárujárnsklætt.
Getur losnaö fljótlega.
Verðkr. 650.000.
Uppl. í síma 92-6637.
1 Skipulagsstörf
Hafnarfjarðarbær auglýsir til umsóknar starf skipulags-
manns er hafi sérþekkingu á undirbúningi bæjarskipulags.
I starfinu felst aðallega að finna gerð skipulagsuppdrátta,
ásamt öðrum skipulagsverkefnum og málum tengdum þeim.
Starfið heyrir undir embætti bæjarverkfræðings og veitir hann
nánari upplýsingar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf skulu
berast undirrituðum eigi síöar en 30. mars nk.
BÆJARVERKFRÆÐINGUR.
Laus staöa
hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg vill ráða starfsmann til eftirtalins starfs.
Starfskjör skv. kjarasamningum.
• Staða forstöðumanns félagsmiðstöðvarinnar Arsels er laus
til umsóknar. Menntun á sviði æskulýðs- og félagsmála æski-
leg og jafnframt reynsla af stjórnunarstörfum.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykja-
víkur, Fríkirkjuvegi 11, s. 21769.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Fríkirkjuvegi 11.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a. frá menntun og
starfsreynslu auk almennra persónulegra upplýsinga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 25.
mars 1983.
YAMAHA-
SKEMMTARI
Til sö/u árs gamall Yamaha-skemmtari. Teg. B35N.
Sem nýr. Upplýsingar ísíma 31206 eftir kl. 19.
4 NÆSTA
BLAÐSÖLUSTAÐ
Fremur skoðana-
könnun en fagleg
umfjöllun
— segir Jóhann Guðmundsson, f orst jóri
Framleiðslueftirlitsins, um skýrslu Fiskmatsráðs
„Eg lit á skýrsluna fremur sem
skoðanakönnun en faglega umfjöll-
un. Erfiðleikar Framleiðslueftirlits-
ins eru þegar kunnir og stafa að
verulegu leyti af stórauknum verk-
efnum, án þess aö aukið rekstrarfé
hafi fengist. Að mínu áliti eru niöur-
stöður túlkunar Fiskmatsráðs allt
aörar en skoðanakönnunin gefur til-
efnitil.”
Svo segir meðal annars í athuga-
semdum sem Jóhann Guðmundsson,
forstjóri Framleiðslueftirlits sjávar-
afurða, hefur sent DV vegna fréttar í
blaöinu á miðvikudag í síðustu viku
um að Framleiðslueftirlitið hafi
brugðist skyldum sínum. Var þar
vitnað í skýrslu sem unnin var á veg-
umFiskmatsráðs.
En Fiskmatsráð er ekki eitt um
þessa skoðun. 1 september 1979
skipaði sjávarútvegsráðherra nefnd
til aö endurskoða lög um Fram-
leiðslueftirlit sjávarafurða til ein-
földunar og sparnaðar í rekstri stofn-
unarinnar. Nefndin skilaði áfanga-
skýrslu i janúar 1980. Þar segir að
gagnrýni hafi borist á starfsemi
stofnunarinnar frá hagsmunaaðil-
um, hinu opinbera og frá starfs-
mönnum. Hagsmunaaðilar hafi
gagnrýnt fiskmatið fyrir ófagleg
vinnubrögö, stífni og stirðleika og
jafnvel hlutdrægni, ennfremur mis-
ræmi á milli landshluta og milli
manna á sama stað. Einnig segir þar
að kvartað hafi verið yfir ósam-
ræmdum innheimtuaðgerðum ein-
stakra matsmanna. Gagnrýni hins
opinbera hefur beinst að f jármálum
stofnunarinnar og kostnaði við fersk-
fiskmat sem hefur numið nærri
helmingi af heildarkostnaði við
Framleiðslueftirlitið.
I skýrslu nefndarinnar segir enn-
fremur: „Virðist sem innanhúss-
ósætti hafi átt talsveröan þátt í því að
minnka veg þessarar stofnunar og
komi það bæði niður á þeirri þjón-
ustu sem stofnunin á að veita og
kostnaði við rekstur Framleiöslueft-
irlitsins.”
Niðurstaöa af starfi nefndarinnar
var sú aö Framleiöslueftirlit sjávar-
afurða verður lagt niður og stofnað
Ríkismat sjávarafurða og hefur
sjávarútvegsráðherra boðað að
frumvarp þess efnis verði lagt fram
á næsta þingi.
ÓEF
Frá námstefnu framkvæmdastjóra malmiðnaðarfyrirtækja i Borgarnesi.
Læra að reka betur
málmiðnfyrirtæki
Þriggja daga námstefna fyrir fram-
kvæmdastjóra málmiðnaðarfyrir-
tækja var nýlega haldin á Hótel Borg-
amesi. Samband málm- og skipa-
smiðja og Iönþróunarverkefni SMS
gengust fyrir námstefnunni.
Fjallað var í fyrirlestrum og starfs-
hópum um stjómunarlegt hlutverk og
viðfangsefni framkvæmdastjóra.
Dæmigert meöalstórt íslenskt málm-
iðnaðarfyrirtæki var krufið. Viðfangs-
efni þátttakenda var að skilgreina
helstu vandamái fyrirtækisins, sem
átti við verulega fjárhagsörðugleika
að stríða, og leggja fram tillögur um
endurbæturí rekstrinum.
Að loknu endurmati á markmiðum
fyrirtækisins var fjallaö skipulega um
stjórnun þess, fjármál, framleiöni og
markaðsmál með sérstöku tilliti til
hlutverks og stöðu framkvæmdastjór-
ans.
Námstefna þessi þótti vel heppnuð.
Þátttakendur voru á einu máli um að
slík námstefna fyrir framkvæmda-
stjóra málmiðnaðarfyrirtækja væri
ákaflega þýðingarmikill liður fyrir
hvern einstakan í að ná betri tökum á
starfi sinu.
-KMU.
Fyrirlestrar á vegum
heimspekideildar
Heimspekideild Háskóla Islands
gengst fyrir opinberum fyrirlestrum á
vormisseri til að kynna almenningi
rannsóknir sem deildarmenn eru að
vinna að. Fyrirlestrarnir verða fluttir
á laugardögum i mars og apríl í stofu
201 í Ámagarði og byrja klukkan 14
aila dagana.
Næstkomandi laugardag flytur
Arnór Hannibalsson fyrirlestur sem
nefnist Heimspeki og saga, laugardag-
inn 19. mars flytur Gísli Kristjánsson
sagnfræðinemi fyrirlestur um verslun-
arsvæði Isafjarðar á síðari hluta 19.
aldar. Að loknum þessum fyrirlestrum
verður tveggja vikna hlé, en laugar-
daginn 9. apríl fiytur Kristján Arnason
stundakennari fyrirlestur er hann
nefnir Heimspeki og skáldskapur. 16.
apríl flytur Ingi Sigurðsson lektor
fyrirlestur um íslenska sagnfræði frá
miðri 19. öld til samtímans í erlendu
samhengi, Höskuldur Þráinsson
prófessor og Kristján Árnason flytja
saman fyrirlestur 23. apríl um málfar
Vestur-Skaftfellinga og síðasti fyrir-
lesturinn verður 30. apríl en þá ræðir
Julian Meldon D’Arcy lektor um tál-
myndir og átrúnaðargoð í Tess of the
d’Urbanvilles eftir Thomas Hardy.
Heimspekideild hefur áður gengist
fyrirfyrirlestraröðenþað er nú nýmæli
að stundakennarar og stúdentar taki
þátt í fyrirlestrarhaldi.
ÖEF