Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Qupperneq 32
32 DV. MIÐVIKUDAGUR 9. MARS1983. Andlát Herbert Jósefsson Pietsch lést 25. febrúar. Hann fæddist 12. mars 1910. Herbert réöist sem gleraugna- fræöingur til Islands áriö 1933. Eftirlif- andi eiginkona hans er Fríöur Guðmundsdóttir. Þau eignuðust tvo syni. Utför Herberts verður gerð frá Fossvogskirk ju í dag kl. 15. Lára Guðmundsdóttir frá Vesturhóps- hólumlést6. mars. Sigurður Stefán Bjarnason pípulagningameistari er látinn. Guðjón Jóhannesson, Furugerði 1, lést 28. febrúar 1983. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hinslátna. ísak isaksson er látinn. Utför veröur gerö frá Innri-Njarövíkurkirkju miðvikudaginn 9. marskl. 14. Bálför Guðrúnar Marinar Guðjóns- dóttur frá Framnesi, Vestmannaeyj- um, Sporðagrunni 2 Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. mars kl. 15. Sérð þú < það sem ég sé? Börn skynja hraða og fjarlægðir á annan hátt en fullorðnir. ^ tflF*" / SMÁ- AUGLÝSING Esa ER ENGIN SMÁ- AUGLYSING SÍMINN ER 27022 Tilkynningar Byggingarhappdrætti Fram 1982/1983 Dregiö var hjá Borgarfógeta 15.2. síðastlið- inn. 1. vinningur : nr. 1116 2. vinningur: nr. 1052 3. vinningur: nr. 1565 4. vinningur: nr. 1307 5. vinningur: nr. 3753 6. vinningur: nr. 2011 7. vinningur: nr. 2270 Vinningshafar eru beðnir aö hafa samband við Knattspymufélagið Fram, Safamýri 28, sími 34792, virka daga milli kl. 13 og 15. Þökkum veittan stuðning, FRAM. Hallgrímskirkja Föstumessa i kvöld kl. 20.30. Einleikur á klarinett: Einar Jóhannesson. Kvöldbænir á föstu eru alla virka daga kl. 18.15 nema miö- vikudaga og laugardaga. Karl Sigurbjörnsson. Hallgrímskirkja Opið hús fyrir aldraöa verður í norðurálmu á morgun fimmtudag kl. 15. Gestir Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum og Hermann Eagnar Stefánsson. Safnaðarsystir. Digranesprestakall Kirkjufélagið heldur fund í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg fimmtudaginn 10. mars kl. 20.30. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson veröur gestur fundarins. Kaffiveitingar. Talía, leiklistarsviö Menntaskólans við Sund sýnir leikritið Galdra-Loft eftirfarandi kvöld kl. 20.30 miðvikudagskvöldið 9. mars, fimmtudagskvöldið 10. mars, laugardags- kvöldið 12. mars, sunnudagskvöldið 13. mars og mánudagskvöldið 14. mars. Sýningamar fara fram í húsnæði skólans og er hægt að panta miða klukkutíma fyrir sýningu í súna 37441. Skrifstofa FR deildar 4 er opin að Síöumúla 2, simi 34200, pósthólf 4344. Þriðjudaga kl. 17—19, miðvikudaga kl. 18—19. Formaður til viðtals fimmtudaga kl. 20—22, föstudaga kl. 17—19, og laugardaga kl. 14-16.' Samtök um kvennaathvarf Skrifstofa okkar að Gnoðarvogi 44, 2 hæð, er opin alla virka daga frá kl. 14—16, sími 31575. Póstgirónúmer samtakanna er 4442—1. Heimsþekktur trompetleikari hjá Sinfóníunni Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands, sem Páll Pampicler Pálsson stjórnar á fimmtudaginn kemur í Háskólabíói kl. 20.30, verður einn fremsti trompetleikari heimsins, Rolf Smedvig, einleikari. Hann er nú fyrsti trompetleikari hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Boston (Boston Symphony) en á sér langan frægðarferil sem einleikari með hljómsveitum og þátttakandi í kammermúsík. Hann fæddist í Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna og hóf fimm ára gamall að læra á trompet. Fyrsti kennari hans var faðir hans og brátt tóku þeir að leika opinberlega saman feðgamir við mikinn fögn- uð áheyrenda. Sem einleikari með hljómsveit kom Rolf Smedvig fyrst fram þrettán ára gamall og lék hann þá einleikskonsert með sinfóníuhljómsveit Seattleborgar. Bauðst honum þá hár styrkur til aö stunda nám við Juilliard, merkasta hljóðfæraskóla í New York en þáði hann ekki því honum bauðst að stunda nám hjá Armando GhitaUa sem þá var fyrsti tropettleikari í Boston. Eftir að hann lék trompetteinleik í Messu eftir Leonard Bernstein, þegar hún var frumflutt undir stjórn höfundar við opnun Kennedy Center í Washington, hefur hann varið talinn meðal aUra bestu trompetleikara austanhafs og vestan. Á tónleikunum hér mun Smedvig leika Trompettkonsertinn eftir Haydn en sá er af flestum talinn einn fegursti konsert sem saminn hefur verið fyrir þetta hljóðfæri. I upphafi tónleikanna mun Páll P. Pálsson stjórna „Snúningi’ eftir ianda sinn frá Graz, Werner Schulze, en þetta verk er tileinkað Sinfóníuhljómsveit Islands í tilefni Austur- ríkisfarar hennar veturinn 1981. Lokaverk tónleikanna verður svo önnur sinfónía Síbelíusar, eitt glæsilegasta tónverk þjóðlegr- ar róman’íkur og fyrir utan Finnlandíu vin- sælasta verk þessa mikla norræna snillings. í gærkvöldi í gærkvöldi Smiley kominn aftur! Þriöjudagskvöld sjónvarpsins hafa verið frekar homreka í vetur og ég er viss um aö aösókn í leikhús og kvikmyndahús hefur verið góð á þessum kvöldum. En nú er ég hrædd- ur um aö breyting verði á, því að í gærkvöldi hóf göngu sína nýr bresk- bandarískur framhaldsmyndaflokk- ur í sex þáttum — Endatafl — eftir njósnasögu Johns le Carré, Smiley’s People. I aðalhlutverki er hinn frá- bæri breski leikari Alec Guinnes sem einnig lék í þáttunum Blindskák sem sýndir voru 1980. Það er óhætt að segja að þeir sem sáu þá þætti hafa beöiö með mikilli eftirvæntingu eftir þessum þáttum. Fyrsti þátturinn lof- ar svo sannarlega góðu og er leikur Alec Guinnes hreint frábær og allra þeirra leikara sem fram komu í hon- um. Það var gaman að sjá hinn gamalkunna leikara Curt Júrgens í hlutverki gagnnjósnarans Vladimir en Curt er nýlega látinn og hefur þetta verið eitt af hans síðustu hlut- verkum. Leikstjórinn Simon Langton hefur svo sannarlega fundið rétta leikara í hvert hlutverk. Þegar þætt- irnú- Blindskák voru sýndir þá fannst mörgum þeir vera bæði lang- dregnir, tormeltir og jafnvel leiðin- legir. En staöréyndin er sú aö þeir sem ætla á annað borö að fylgjast með þessum þáttum verða aö vera með hugann viö það og ekki missa af einni einustu setningu því að at- burðarásin er flókin og spennandi. Það ber aö þakka sjónvarpinu þessa þætti og vonandi verður Lista- og skemmtideildin vakandi fyrir fleiri slíkum þáttum ef þeir verða gerðir. Þættirnir hafa verið nefndir Enda- tafl á íslensku og taka 50 mínútur. Mér fannst þegar upp var staðiö að þetta væru bara hálftíma þættir og hefði viljað sitja áfram og horfa á hina fimm sem eftir eru. Þátturinn Á hraðbergi einkenndist af því að Sverrir Hermannsson lék á als oddi og var mjög skemmtilegur. Spyrjendurnir Halldór og Ingvi komu Sverri aldrei í neina klípu enda hefur hann hingað til getað komið fyrir sig orði. Þó svo að Sverrir hafi sagt að hann væri ekkert viss um það að hann væri réttur maður á réttum stað þá held ég að eftir þennan þátt þurfi hann ekkert að efast, hann er á réttum staö. Magnús Ólafsson. Alec Guinnes er hreint frábær íhlutverki Smiieys. Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise sýnir í kvöld og á morgun kl. 20.30 í E-sal Regnbogans Morðingi á ferð (Un Assassin qui passe). Þetta er sakamálakvikmynd sem gerö var árið 1981 af Michel Vianney. I aðalhlutverkum eru Carol Laure, Jean-Louis Trinitignant og Richard Berry. Kvikmyndin er með enskum texta. Allar upplýsingar um K.A.F. og aðild að Allianee Francaise er að fá í síma 23870 eða 17621 og 17622. Hjálpræðisherinn Flóamarkaöur veröur á morgun, fimmtudag, og föstudag frá kl. 10—17. Breiðfirðingafélagið heldur sina árlegu árshátíö i félagsheimili Seltjamamess laugardaginn 12. mars kl. 19. Veislustjóri er Ámi Björnsson þjóöháttafræð- ingur. Heiðursgestir verða hjónin Sigurður' Markússon framkvæmdastjóri og Inga Árna- dóttir. Dagskrá hátíðarinnar: Ávarp for- manns, Eggerts Kristmundssonar, ræða, Sig- urður Markússon. Söngur Karlakórs Reykja- víkur. Gamanmál, Dóra Valdimarsdóttir. Lúdó og Stefán leika fyrir dansi. Breiöfirðing- ar fjölmennið. Tilkynning Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise endur- sýnir, miðvikudaginn 9. og fimmtudaginn 10. mars kl. 20.30 (í E-sal Regnbogans), Morðingja á ferli (UN ASSASSIN QUI PASSE), sakamálamynd sem gerð var árið 1981 af Michel Vianney. I aðalhlutverkum eru: Carole Laure, Jean-Louis Trintignant og Richard Berry. Allar myndir kvikmynda- klúbbsins eru sýndar með enskum texta. AUar upplýsingar um KAF og aöild að AIU- ance Francaise er að fá í síma 23870 eða 17621/22. Kvenfélag Langholtssóknar Kvenfélag Langholtssóknar er 30 ára 12. mars og verður afmælisins minnst með hófi í safnaðarheimUi Langholtskirkju að kvöldi af- mæhsdagsins. Afmælisveislan hefst meö boröhaldi klukkan 19. Skemmtidagskrá verður og lýkur hófinu með helgistund. Allar upplýsingar í síma 35314. Stjórnin. Aðalfundir Aðalfundur Ferðafélags íslands verður haldinn þriðjudginn 15. mars kl. 20.30, stundvislega, á Hótel Heklu, Rauðarárstíg 18. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar þurfa að sýna ársskirteini 1982 við innganginn. Að fundi loknum sýnir Björn Rúriksson myndir frá Islandi. Árshátíðir Árshátíð Útivistar Utivistarferðir, Lækjargötu 6, simi 14606, símsvari utan skrifstofutíma. Árshátíð Uti- vistar verður haldin í Garöaholti 12. mars kl. 19.30. Takið nú fram spariskapið, látið ekkert aftra ykkur og munið eftir dansskónum, rútu- ferð frá BSI kl. 18.30. Takið miða sem fyrst á skrifstofunni. Sunnudagur 13. mars kl. 13. Innsti dalur — heiti lækurinn (bað). Þeir sem hafa ekki komið á Hengilssvæðið ættu að nota tækifærið núna. Verð kr. 150. Brottför frá BSI, bensín- stölu, stoppað hjá barnaskólanum neðra Breiðholti og Shell bensínstöðinni Arbæjar- hverfi. Sjáumst. Leikfélag Akureyrar allra síðasta sýning á Bréfberanum frá Arles verður fimmtudaginn 10. mars kl. 20.30. Bréf- berinn frá Arles er eftir Emst Bruun Olsen, leikstjóri er Haukur Gunnarsson. Leikritið sem gerist á síðustu æviárum listmálarans van Gough sem kom til þorpsins Arles til að mála í Utadýrðinni við Miðjarðahafið. Bæjar- búar litu hann tortryggingsaugum en bréf- berahjónin Roulin reyndust honum betri en enginn einsog fjöldamörg málverk af þeim bera vitni um. Með aðalhlutverk fara: Rouhn hjónin leika þau Þráinn Karlsson og Sunna Borg en listmálarann van Gough leikur Viðar Eggertsson. Fundir Kvennadeild flug- björgunarsveitarinnar í Reykjavík Félagsfundur veröur haldinn miövikudaginn 9. mars kl. 20.30. Ostakynning frá Osta- og smjörsölunni. Stjórnin. Kvenfélag Bústaðasóknar 30 ára Afmælisfundur félagsins verður haldinn 14. mars í safnaðarheimilinu kl. 20. Kalt borð. Skemmtiatriði. Þátttaka tilkynnist í síma 36212 (Dagmar), 33439 (Björg) og 35575 (Lára) ísíðasta lagi miðvikudag 9. mars. Ath. breyttan fundartima. Samhygð Kynningarfundur verður hjá Samhygð alla fimmtudaga kl. 20.00 að Ármúla 36, 3. hæð (gengið inn frá Selmúla). Stofnfundur áhugamanna um ferðalög og búnað fjórhjóladrifsbíla Fimmtudaginn 10. mars kl. 20 veröur haldinn stofnfundur áhugamanna um feröalög og búnaö fjórhjóladrifsbíla í sal mötuneytis Sjómannaskólans í Reykjavík. Allir áhugamenn velkomnir. Hér er ég að reyna að megra mig Hjálmars vegna og svo býður hann Jytte út að borða í minn stað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.