Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Side 34
DV. MIÐVIKUDAGUR9. MARS1983.
DÆGRADVÖL
;*
DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL
,,Þessir glœsilegu kjólar gefa mjög
glögga mynd af tískunni og hvert
hún stefnir um þessar mundir, ”
sagdi Rúna Gudmundsdóttir.
,,Kjólarnir verða stöðugt síðari, kven-
legri og íburðarmeiri og það er
greinilegt að tískan leitar nú mjög í
sitt upprunalega jafnvœgi. Gleði-
konurnar í Róm urðu fyrstar til þess
Enn grúfir mjöllin yfir landinu,
ökumennimir baksa reiðir við bila sína
á morgnana og gnísta tönnum yfir
frostinu sem teygir sig langt inn í
læsingamar, seinþreyttir vegfarendur
keifa gegnum aumgt krapiö þungir á
brún — og þó, eitthvað hefur gerst; það
er fariö að stafa glaðlegri birtu af
Esjunni, sólin er farin að voga sér hátt
yfir Sveifluhálsinn og skimar með vel-
þóknun yfir byggðina við Faxaflóann.
Þótt ótrúlegt megi virðast er aðeins
hálfur mánuður fram aö jafndægri á
vori. Kannski er fiðringur vorsins þeg-
ar farinn að hreiðra um sig í yngstu
hjartabroddunum, því að vorið er tími
frelsis og nýjunga og þá fyllist kven-
þjóðin óumræðilegri löngun til þess aö
fitja upp á nýstárlegri og frjálslegri
tísku en vera þó jafnframt glæsilega til
fara.
Tískan frá París
Einn hugulsamur lesandi DV sem
lifir og hrærist í loftsölum tískunnar
sendi okkur nýlega skemmtileg
sýnishom af kvenfatatískunni, eins og
Nina Ricci suður í Parisarborg hefur
teiknað hana fyrir vorið og sumarið.
París er háborg kventískunnar og
myndirnar sýna gullfagran tilhalds-
klæðnað eins og hver má sjá sem
rennir augum yfir opnuna. Myndi
nokkur vera svo forhertur eftir frost-
hörkur vetrarins aö hann hefji ekki
..- i a .
brúnir andspænis dætrum Austur-
strætis svona klæddum?
Við fórum í skyndi með þessar
snotm myndir til hennar Rúnu
Guðmundsdóttur í Parisartískunni og
báðum hana að fjalla um þær eilítið
nánar. Rúna hefur ævinlega vakandi
auga á bylgjum tískunnar úti í heimi,
en það er allsendis óþarft að kynna
hana sérstaklega, svo mjög sem hún
hefur starfaö hér aö framgangi
tískunnar á liðnum árum.
Frekar hefðbundið
,,Ég er ákaflega hrifn af Ninu
Ricci,” sagði Rúna, „og mér finnst
alltaf gaman að fara á sýningar í
salarkynnum hennar í París. Hún er
óvenju djörf, bæöi hvað snertir snið og
liti, en föt hennar em jafnframt stór-
kostlega glæsileg. Hönnunin er alltaf
mjög vönduð, hún leggur sig fram um
að nota alfallegustu efni sem völ er á
og það liggur geysileg vinna aö baki
þessum fötum.”
— Það er verst að litirnir koma ekki
fram á myndunum.
„I sumar verða pastellitimir
ríkjandi, hvítt, bleikt og ljósblátt og
svo er einnig um þennan klæðnaö. En
auk tískulita sumarsins ber alltaf
mikið á hinum árvissu litum vorsins,
enþaðerrautt.hvítt ogdökkblátt.”
— Hvað finnst þér helst einkenna
sumarföt Ninu Ricci árið 1983 ?
„Þetta er frekar hefðbundinn stíll
að þessu sinni, einfaldur og látlaus en
þó er ýmislegt smálegt gert til þess aö
ljá honum nútímalegt yfirbragð. Eg
get nú ekki sagt að ég falli beinlinis í
stafi, en auðvitað er þetta afskaplega
fallegurfatnaöuralltsaman.” -BH.
Vonð j
er komið
í kventískunni
— Hvítt, bleikt og Ijósblátt ríkjandi
litir í ár, segir Rúna Guðmunds-
dóttir t Rarísartískunni
að klœðast þessum nœfurþunnu og
allt að því gagnsœju Siffon-efnum
sem hér má líta, en það er skemmst
frá að segja að þau breiddust út um
heimsbyggðina eins og eldur í sinu
og þykja ákaflega eftirsóknarverð. ”
„Ný vídd og ný sída
einkenna þennan
klœðnað. Buxurnar eru
beinar og dálítiö stutt-
ar og bœði þœgilegar og
frjálslegar. Mynstrið í
jakkanum er smágert
og áferðin tweed-kennd.
Efni hans dregur nafn
af prinsinum af Wales
og veitir búningnum á-
kveðna kjölfestu. ”