Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Blaðsíða 37
DV. MIÐVIKUDAGUR9. MARS1983. , 37 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Ævintýrið hjá Tomma byrjaði fyrir tæpum tveimur árum. Hér sjáum við hann steikja einn hamborgarann með tilþrifum. Hendir honum upp og lætur hann snúast i loftinu. „Hef verið samþykktur í lögfræði- deildina” — segir Tommi, sem nú íhugar hvort hann eigi að standa við „loforðið” Tommi á skrifstofu sinni við Grensásveg. ,,Þetta hefur verið mikii vinna, en þó mjög ánægjuleg." Tommi bjó þar sem skrifstofan er nú ásamt unnustu sinni, Helgu Bjarnadóttur, fyrstu tiu mánuðina eftir að hann opnaði staðinn sem aiiir aðrir en hann töldu dauðadæmdan. „Og það kemur enn oft fyrir að við Helga sofum hér niður frá þegar mikið hefur verið að gera. Tekur þvi þá hreinlega ekki að fara heim," segir Tommi. „Sjáðuþað eru svona margar karamellur i páskaegginu," sagði Tommi, en henn er með getreun sem snýst um þeð hve margar Freyju- karamellur eru i péska- egginu. DV-myndir: GVA. aukaverðlaun sem eru boösmiðar á hamborgara og franskar. í>á má geta þess að Tommaborgarar gefa fjörutíu þúsund karamellur fram aðpáskum. Hvað gerir Tommi? Eins og sést af þessu er Tommi enn sprækur og lætur ekki deigan síga við hamborgarasöluna. Þaö þarf þvi engan að undra þótt það vefjist fyrir Tomma þessa stundina hvort hann eigi aö standa við „loforðið” sem hann gaf á sínum tíma vegna milljónasta hamborgarans. Tommi er orðinn þjóðsagnapersóna hér á landi fyrir hamborgara sína og mjög umræddur á meðal fólks. Það kemur því ekki á óvart þótt fólk bíði eftir næstu leikjum hjá,honum, og þá helst auðvitað hvort hann hef ji nám við Háskólanníhaust. -JGH. Tómas Tómasson, áður þekktur sem Tommi í Festi, en nú sem Tommi í Tommaborgurum, seldi milljón- asta hamborgarann sinn á sunnudag- inn var. Þar sem Tommi lýsti því einu súini yfir aö hann ætlaði að selja milljón hamborgara og hætta síðan veitingarekstri og snúa sér að lögfræð- inni, leit Sviösljósið inn hjá honum inni á Grensásvegi og ræddi um framtíöarhorfur kappans um þessar mundir. , ,Tomma borgarar eruég...” „Jú, þaö er eðlilegt að þú skulir spyrja þessarar spurningar, því aö ég lýsti þessu yfir á sínum tíma,” sagði Tommi. „En það er ákaflega erfitt fyrir mig að svara þessari spurningu, því aö eins og þú getur rétt ímyndað þér er erfitt að slíta sig frá þessu.” „Tommaborgarar eru ég og ég Tommaborgarar,” bætti hann síðan við. Hann sagöi, að frá því hann opnaði fyrir tæpum tveimur árum hefði verið mikið aö gera hjá sér og þetta væri búið að vera mjög erfitt, en þó umfram allt ánægjulegt. „Anægjan sem maöur fær af þessu er að vera innan um kúnn- ana og það er líka mikils virðityrir þá að vita að maöur skuli enn vera á kafi í „þessu sjálfur”. Lögfræðin nánast hugsjón En hvað um lögfræðina hjá Tomma? Eg er enn haröákveöinn í því að veröa lögfræðingur. Þaö er nánast hugsjón hjá mér. Og auk þess hef ég nú verið samþykktur í lögfræðideild Háskóla Islands og get byrjaö þar strax í haust.” Þessu til staðfestingar sýndi Tommi okkur þar að lútandi bréf frá Háskólanum. Hann hefur þó ekki tekið ákvöröun á þessari stundu hvenær hann hefur lögfræðinámið. Þann 14. mars eiga Tommaborgarar tveggja ára afmæli og þann 20. mars verður haldið upp á þaö. Páskaegg og karamellur Vegna afmælisins er Tommi með eins konar getraun í gangi. Hefur hann látið gera í þessu sambandi sex risa- stór páskaegg sem sett verða upp á stöðum hans í Reykjavík, Hafnarfiröi, Keflavík og Akureyri. Spurningin er hve margar Freyju- karamellur eru í páskaegginu. En jafnmargar karamellur eru í páska- eggjunum. Og sá sem kemst næst því, eöa getur rétt, fær páskaeggið með innihaldinu. Keppnin er í gildi á öllum stööum, þannig að sigurvegararnir verða sex, hver staöur meö sinn sigur- vegara. Þá verða veitt hundraö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.