Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Blaðsíða 8
8 DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. StjámarformaOur og útgáfustjtfri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. FramkvæmdastjOriogúigáfustjðri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON ogELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjóm: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Atgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: PVERHOLTI11. SÍMI 27022. Simi ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-ogpkjtugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. Prerrtun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNIIV. Áskriftarveröá mánuði 180 kr. Verö i lausasölu 15 kr. Helgarblað 18 kr. Velferö án velferðar íslendingar geta meö réttu verið stoltir af þeirri al- mennu velsæld sem hér ríkir. Stéttaskipting yfirstéttar og almúga er nánast óþekkt og hér lifa og búa saman menn úr ólíkum starfsgreinum viö eðlilegt jafnræði. Jöfn- uður í efnum og högum er meiri en annars staðar þekkist. Við getum einnig hreykt okkur af því, að allur fjöldinn býr við félagslegt öryggi, samhjálp er almenn og heil- brigðis- og menntakerfi stendur öllum opið án persónu- legra útgjalda eöa byrði. Velferðarríkið er til fyrirmyndar að þessu leyti. I ljósi þessara staðreynda er það óhugnanleg stað- reynd, að stór hópur þjóðfélagsþegna býr við sult og seyru, ógæfu fátæktar og angistar. Auðvitað getur ekkert kerfi, hversu fullkomið sem það er, komiö í veg fyrir óhamingju eða sjálfskaparvíti. Eigin vesöld, slæpings- skap, veikindum eða auðnuleysi getur enginn utanað- komandi bægt frá. I þeim efnum er hver sinnar gæfu smiður. Þjóðfélagið á heldur ekki að hossa þeim eða hampa, sem enga björg vilja veita sér sjálfir. Viö eigum ekki að ala aumingjaskap upp í fólki eöa koma því upp á að lifa á kerfinu og velferðinni. En þjóðfélagíö á að hjálpa fólki til sjáifsbjargar, rétta lítilmagnanum hjálparhönd án þess að hann glati sjálfs- virðingu sinni og manndómi. Samtök áhugamanna um áfengismál hafa lyft grettis- taki í þeim efnum, að styðja alkóhólista til endurhæfingar og betra lífs. Þeim sem orðið hafa Bakkusi að bráð er rétt hjálparhönd en síðan er ætlast til þess að þeir hjálpi sér sjálfir. SAA er nú af stórhug að ráðast í byggingu nýrra húsa- kynna fyrir starfsemi sína og það framtak á allt gott skil- ið. Fréttirnar frá kvennaathvarfinu eru sömu ættar. Þar er verið að veita aðstoð bágstöddum konum, sem hvergi eiga höfði sínu að að halla í stundarörvinglan. 1 ljós kemur að slíkt athvarf gerir gagn, eignast fleiri skjólstæðinga en nokkurn óraði fyrir. Alvarlegust voru þó tíðindin frá Hjálparstofnun kirkjunnar. Þangað leita hundruð fólks, sem nánast er komið á guð og gaddinn, og verður aö ganga í gegnum þá auðmýkt að biðja sér ölmusu. Slíkt gerir enginn að gamni sínu. Það hlýtur að vera illa komið fyrir því fólki, sem þarf að leita sér bónbjargar hjá hjálparstofnunum. Ekki vegna atvinnuleysis eða veikinda, ekki vegna aumingjaskapar eða til að hafa fé af öðrum að óþörfu. Fátæktin hefur knúið dyra og þegar fokið er í öll skjól, rekur neyöin þetta sama fólk til örþrifaráöa. Og hvað með alla hina, sem ekki hafa stolts síns vegna eða sjálfsvirðingar leitaö á náðir SAA, kvennaathvarfs eða hjálparstofnunar? Hvað með þær þúsundir íslend- inga sem heyja sitt fátæktar- og sálarstríð afskiptir og einangraðir og bera neyð sína í hljóði? g Hversu illa sem efnahagsmálum þjóðarinnar er kom- ið, hversu langt sem erlendu skuldirnar og viðskiptahall- inn færast til hins verra, þá er það skylda íslenskrar þjóð- ar að rétta lítilmagnanum hjálparhönd. Aldrei veröur unnt að bægja frá hvers konar óhamingju, en hlutverk þjóðfélagsins er aö styðja bágstadda til sjálfsbjargar og búa svo um hnútana, að enginn þurfi að líða skort vegna ómegöar, sjúkdóma eða einstæðingsskapar. Velferðin rís ekki undir nafní, ef hún kemur þeim ein- um að notum, sem minnst þurfa á henni að halda. ebs EREKKI iitimitiw \«KKIKS VIKfM? Mér létti stórum, þegar ég horfði á þann ágæta sjónvarpsþátt, Á hrað- bergi nú í vikunni. Eftir japl og jaml og fuður; eftir stríðsfyrirsagnir á forsíðum blaðanna; eftir nöldur og nagg í leiðurum og eftir æsingaræður á þingi og framboðsfundum; eftir allt þetta kemur í ljós, aö það er akkúrat ekkert athugavert við rekst- ur Framkvæmdastofnunar. Hafið þið haft áhyggjur af fjár- austri í Þórshafnartogara? Látiðþað ógert, elskulegu vinir. Velviljaðir þingmenn í stjóm hinnar háu stofn- unar vaka yfir ávöxtun skattf járins, eins og emir yfir laxi. Hafið þið hrokkið upp af værum svefni, kófsveitt og meö hjartslátt, vegna Skagastrandartogara? Legg- ist á hitt eyrað, (það græna) og fallið mjúklega í faðm Morfeusar. Verð- tryggingin lánanna ver okkur áföll- um, og enn hafa þingmenn í stjóm- inni ekki blundað. Hafið þið setið agndofa yflr hundr- aðmilljónkróna togaranum Hólmvik- inga? (Þeim, sem sökk áður en hann komst á flot. Þeim, sem fór á fjör- ur?) Látið ykkur ekki bregða. Ef þingmennimir þola þaö, er ykkur engin vorkunn. Þetta var stórkostlegur þáttur. Sverrir Hermannsson sat stólinn vel, brosti breitt, og hélt nú ekki aö það væri nokkuö að athuga við þetta. Allt í himnalagi, og við verðum ein- faldlega að gera okkur grein fyrir því, að það kostar nokk, aö halda landiibyggð! Það kom mér reyndar á óvart, hversu rétt það reyndist, hjá Lao Tse karlinum, þegar hann sagði: „Að stjóma stóru ríki, er eins og að sjóða litla fiska”. Sverrir Hermannsson og félagar hans í stjóm Framkvæmdastofnun- arinnar, þurfa nefnilega fleira að starfa, en að lána fé til traustra út- gerðarfyrirtækja, (ef slíkt er þá til. Það er að skilja á ráðamönnum að öll útgerðarfyrirtæki landsins séu á hausnum, og em það vondar fréttir). Þeir fjölhæfu stjórnarmenn þurfa að líta í fleiri hom en pokahomin út- gerðarmannanna. Þannig kom í Ijós, að á ári hverju um páska mun áður fyrr hafa skapast vandræðaástand á Húsavík, þar sem foreldrar ferming- arbama urðu að eyða peningum og dýrmætum tíma til þess að keyra með fermdu bömin til Akureyrar, svo hægt væri að taka lögboðna fermingarmynd af þeim. Þetta er auövitað hiö alvarlegasta mál. Burt- séð frá vinnutapi foreldra og kostn- aði við bensín og slit á bíl, kostar þessi árstíðarbundni umferðarþungi auðvitað líka mikið slit á vegum. En stjómarmennirnir bmgðust hart við, og ljáðu áhugamönnum nokkurt fé, svo mætti setja upp ljósmyndastofu Úr ritvélinni ÓlafurB. Guðnason á Húsavík, og þannig spara foreldr- um fé og tíma, og vegavinnuflokkum vinnu og vegamálastjóra útgjöld. I augum þeirra, sem fjarri sitja þungamiðju valdsins og ekki vita það, að ekkert atkvæði er svo smátt að það endurgreiöi ekki ástúð, um- hyggju og hóflegan áburð, kann að virðast, sem þama hafi stjórnar- menn lotið aö litlu. En hver veit? Þaö er erfitt að spá, og sériega um fram- tíöina, en þó má fullyrða, að flest fermingarbörn á Húsavík muni, fyrr eða síðar fá kosningarétt, og hann drjúgum meiri en fermingarbörn flest í Reykjavík. Þannig eru stjóm- armennirnir, alltaf með annað augaö á framtíðinni. Það fór þó ekki hjá því, að Sverrir Hermannsson viðurkenndi, að sumt hefði ekki farið sem skyldi, og að víða væri rúm fyrir endurbætur. Hann hafði alls ekki verið sannfærð- ur um gagnsemi Skagastrandartog- arans. En hann var borinn ráðum. Það er nefnilega þannig, að í svona litlu þjóðfélagi, verða menn aö scmja um hlutina. Það er fyrir öliu, aö sam- komulagið sé gott. Og ef það tryggir gott samkomulag, aö lána smápen- inga til togarakaupa, jafnvel þó maö- ur sé ekki með öllu sannfærður um „rekstrargrundvöllinn”, enda erfitt að skoða það, sem ekki finnst, og hef- ur ekki fundist svo árum skiptir, ef marka má orð forsvarsmanna út- gerðarinnar. Það er hins vegar athyglisverð sú skoðun Sverris Hermannssonar, að ekki einasta sé samkomulag gott, í sjálfu sér, heldur hafi þaö sinn prís. Ef Hólmvíkingar vilja ekki halda friðinn, er það hundrað milljón króna virði, að friða þá! Það fylgir þessari röksemdafærslu, að væri Byggða- sjóður aðeins núgu fjársterkur, ríkti hér á landi alger friður, svo mikill friður, að ekki væri þörf nema á svo sem einum stjómmálaflokki. Og Byggðasjóður styrkti aDa til alls. Eru Bolvíkingar fótasárir? Byggðasjóður veitir fé til byggingar fótsnyrtistofu. Eru Eskfirðingar leiöir hver á öðr- um? Byggðasjóður veitir fé til upp- setningar vídeókerf is. Eru Islendingar leiðir á lífinu? Byggðasjóður veitir fé til þess að stytta þeim aldur. Það er reyndar einkennilegt, að þar sem byggðastefnu er mest þörf, þar er hún ekki leyfð. Það er degin- um ljósara, að byggð í Þingholtunum og á svæðum í vesturbænum er að veslast upp, vegna þess að það er svo dýrt að búa þar. Þingholtin og vest- urbærinn eru þeir staðir, þar sem ís- lensk borgarmenning varð til. Eig- um við að láta síðustu menjar þessa merka menningararfs hverfa, þegar byggðastefnan er til, og Byggðasjóö- ur er til? Er ekki löngu kominn tími til að styrkja það stórhuga unga fólk í Reykjavík, sem vill fylgja í fótspor feðranna, og halda hinni öldnu menn- ingarhefð lifandi? Er hér ekki komið enn eitt verðugt verkefni fyrir Byggðasjóð? Þarf ekki að greiða nið- ur kaupverð húsa, lána fé á vildar- kjörum til húsakaupa og greiða niður fasteignagjöld, fyrir þá sem búa á svæðinu? Jú, eins og Sverrir sagði, réttilega, þá er margt sem betur mætti fara í rekstri Framkvæmdastofnunar. Sumt nefndi hann, annað ekki, en lykilatriðið er það þó, að eftir þennan merkilega þátt er engin þörf fyrir samviskusama íslendinga að hafa áhyggjur af stofnuninni góðu. Hún er í góðum höndum, og engin hætta á því, að þær ágætu hendur sleppi af henni tökunum í bili.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.