Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983.
17
„Ættiaðnd
íullkmninni líkanis-
byggingu eftir 4-5 ár,”
Hamingjusöm fjölskylda að lokinni vel heppnaðri aðgerð. „Ég á samt eftir að fara tvisvar tH þeirra aftur.
Næst lengja þeir lærleggina og svo handleggina," sagði Helgi.
að sér og kom honum á fætur sem þótti
ótrúlegt afrek. Uizarov vakti óhemju
athygli fyrir þetta. Skömmu síöar tók
hann að sér frægan rússneskan geim-
fara sem hafði slasast illa. Hann komst
einnig á fætur. Og þaö var ekki að
sökum aö spyrja: Dizarov varð dáður
og virtur um öil Sovétríkin.”
„Engir uppskurðir —
ekkertblóð"
Og Oskar heldur áfram:
„Núna er verið að byggja nýjan,
fullkominn spítala á sömu lóð og sá
gamli er. Þar verður pláss fyrir 600
manns. Gamli spítalinn verður
notaður sem rannsóknarstöð og þar
verða vistaðir langlegusjúklingar.”
— En hefur engin önnur þjóð tekið
þessa læknisaðferð upp?
„Það hefur ekki verið hingað til, en
þar er að vera breyting á. Ilizarov
heldur ekki aðferðunum, sem hann
beitir, sem hernaðarleyndarmáli.
Öðru nær. Hánn hefur ferðast heilmik-
ið til aö kynna þetta. Hann hefur meöal
annars farið til Italíu, Japans og Kúbu,
svo að eitthvað sé nefnt til að kynna
þetta fyrir þarlendum læknum.
Japanir eru eitthvaö byrjaðir á þessu.
Og svo vissi ég til þess aö ítalir voru aö
fá send tæki þegar ég var þama úti.
Annars leita margir Italir til sjúkra-
hússins í Kurgan. Það byrjaði á því að
þekktur Itali, sem ég kann þó ekki að
nefna, hafði spurnir af IUzarov og
leitaöi til hans. Þetta var fyrir 4—5
árum og eins og gengur spurðist þetta,
og síðan hafa Italir streymt til Kurgan.
Italir eiga meö sér samtök fólks, sem
eiga við þennan bæklunarvanda að
stríða. Ég heyrði þá tölu að þar væru
um 1400 manns sem svo væri ástatt
fyrir.
Reyndar er þaö svo í hugum okkar
margra aö þegar talað er um læknis-
meðferð dettur okkur strax í hug
uppskurðir, blóð, lyfjameðferð og
annað í þeim dúr. En það er engu slíku
fyrir að fara á sjúkrahúsinu í Kurgan.
Á þessari mynd sjást tækin sem llizarov hefur hannað sjálfur og notar við
lenginguna. Á þremur stöðum eru nokkrus konar prjónar reknir i gegnum
beinið. . ..
Fólkiö fær að vísu einhver deyfilyf
meðan veriö er aö strekkja, til að lina
þjáningamar, en þau eru tekin eins
fljótt af og mögulegt er. Þama em
engir hnífar notaðir, því það þarf
sjaldan að skera. Þetta minnir mann
kannski frekar á smíðaverkstæði en
sjúkrahús!”
— Hver borgar fyrir læknisaðgerð-
irnar?
„Rússarnir borga það, en svo hitt,
það er að segja feröakostnað og annað,
borga sjúklingarnir.”
— Hvaðan eru sjúklingamir sem
leita til Ilizarov?
„Þeir eru víðsvegar að. Það em
margir Italir þarna, eins og ég sagði
áðan. Svo vom þarna á meðan við
vomm 2—3 Kurganbúar og svo fólk frá
Mongólíu, Tíbet, Rúmeníu, Búlgaríu,
Júgóslavíu, Tékkóslóvakíu, Ungverja-
landi og Kúbu. Og svo einn Islending-
ur!”
„Getur orðið 160-180
sentímetrar á hæð "
— Hvaö tekur hver aðgerð langan
tíma?
, ,Það er misjafnt. Það eru engir tveir
sjúklingar eins. Hver og einn er tekinn
í nákvæma röntgenmyndatöku og eftir
þeim er svo ákveðið hvar og hvernig
þessar svokölluðu þvingur á að nota.
Eg held ég megi segja að hver aðgerð
taki frá hálfu ári og upp í þrjú. Það er
svona 8 mánaða töm að lengja um 15
sentímetra og svo bætist þjálfunin viö.
Til dæmis kemur þarna fólk sem hefur
beinbrotnaö illa í slysum. Það hefur þá
verið gert að brotinu einhvers staðar
Helgi, ásamt nokkrum sjúklingum, á spítalanum iKurgan.
annars staðar og ekki tekist sem
skyldi, segjum annan fótinn hafa styst.
Þá er byrjað á því að brjóta upp brotið
og síðan er leggnum þrýst saman og
látið gróa vel, kannski í heilt ár. Þá em
tækin sett á og svo er fóturinn togaður
álengdina.
Ef við tökum Helga sem dæmi. Þá
vom fótleggir hans lengdir um 18 sentí-
metra. Það er hægt að lengja meira
eftir 1—2 ár, þegar fótleggirnir em
nógu sterkir aftur til að þola það. Fót-
leggirnir lengdust um einn millimetra
á dag. Það má ekki reyna um of, því að
fætumir þurfa hvíld á milli. Þessi að-
ferð hjálpar vaxtarstöðvunum til að
fara af stað aftur. Þær eins og taka við
sér, þó aðeins í stuttan tíma að vísu. Til
dæmis sögðu þeir eðlilegt að Helgi
myndi hækka eitthvað sjálfkrafa fyrir
utan lenginguna. Á stundum getur
fóturinn s jálfur skekkst við þessa með-
ferð, en þá era bara losaðar skrúfur á
tækjunum og fóturinn réttur.
Eftir svona 1—2 ár fer Helgi aftur út
og þá verða lærleggir hans lengdir um
svona 12—15 sentímetra og eftir 1—2 ár
þar frá verða handleggir hans lengdir
um 15 sentímetra.”
— Hvers vegna er þetta tekiö í
áföngum?
„Þetta er svo erfitt og það fylgja
þessu miklar þjáningar, þess vegna er
ekki talið rétt að gera þetta nema í
áföngum. Þar fyrir utan þurfa
strangar og erfiðar æfingar að fylgja
strax eftir aögerðina, en það væri
varla hægt ef allt væri gert í einu.”
— Hvemigerumvöðvana?
„Þaðtognar á þeim líka.”
— Hvað getur Helgi orðið hár að
lokum?
„Það má reikna með að hann verði
160 til 180 sentímetrar á hæð.”
„Eftir 4—5 ár ætti
Helgiaðhafa
náð fullkominni
líkamsbyggingu"
— Nú tók Helgi engin lyf meö þessu.
En er ekki strangt mataræði sem
hann þarf að fylgja?
„Hann má ekki þyngjast á meðan
beinin era að styrkjast. Með mataræði
þá er það kalk og aftur kalk, fiskur og
nóg af lýsi, sem er aðalatriðið.”
— Hvenær má gera ráð fyrir, aö
Helgi hafi náð fullkominni líkams-
byggingu?
„Það fer eftir því, hversu lengi hann
er að byggja sig upp, en ætli það megi
ekki gera ráð fyrir 4 til 5 ámm.”
— Hvernig hafa læknar hér brugðist
við þessari merkuaðgerð?
„Þeir voru nú heldur vantrúaðir á
þetta í fyrstu, en mér sýnist þeir vera
að taka við sér núna.”
— Nú varst þú með Helga allan
tímann úti þessa ellefu mánuði. Ætlar
þú líka með honum næst?
„Það er ekki ákveðið enn. Kannski
einhver læknir fari með honum til að
kynna sér þetta. Annars er mjög
algengt að foreldrar barnanna, sem
þarna eru, skiptist á um að vera hjá
þeim.” 4
— Eru það einkum börn sem þama
eru?
„Já, annars er þarna fólk allt frá
átta ára aldri upp í sextugt. Algengast
er þó að sjúklingarnir séu á aldrinum
14—16ára.”
— Taka þeir ekki yngri sjúklinga en
átta ára?
„Nei, fyrr verða krakkar ekki með-
vitaðir um skavanka sinn. Meðferðin
reynir svo mikið á þolrif in í s júklingun-
um. Þeir verða að vera harðir og
(DV-myndir Óskar Einarsson og GVAI.
— sjá næstu síðu