Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1983, Qupperneq 22
22 DV. LAUGARDAGUR12. MARS1983. Frumkvöðlar Hollywood- ævmtýrísins — þeir sem skópu stjörnur hvíta tjaldsins Pólskur sölumaður, lltháenskur verslunareigandi, ungverskur feldskeri, söngvari frá New York og sonur pólsks slátrara. Þessir voru litríkir frumkvöðlar, kapps- fullir ævintýramenn sem lögðu grunninn að bandaríska kvik- myndaiðnaðinum og skópu pen- ingaveldið og draumaheiminn Hollywood. ... Adolph Zukor.. .Luis B. Mayer.. .Samuel... Goldwyn— Harry Chon____Jack Warner. .. Eftir að hafa unnið sig upp úr fáfræöi og fátækt urðu þessir fágætu snillingar þeir sem skópu ógleymanlegar stjöm- ur hvíta tjaldsins, þeir sem gerðu óþekkt andlit að hvers manns eign, hefðbundin nöfn að þekktum, svo sem Pickford, Chaplin, Garbo, Gable, Fonda, Hayworth og Bogart. „Flöktandi myndir" Þetta hófst allt saman með starf i Ad- olph Zukor, sem nefndur hefur verið faðir kvikmyndarinnar. Fimmtán ára gamall fluttist hann frá Ungverjalandi til New York. I fyrstu hafði hann at- vinnu af aö þvo gólf hjá feldskera í Harry Cohn, stofnandi Columbia Pictures, ásamt stærstu uppgötvun sinni. borginni og launin voru tveir dollarar á Ktu Hayworth. • j K3S3636363Í3C3C3í3í3í^k % Lóðaúthlutun á Kjalamesi Hér með eru auglýstar til umsóknar í Grundarhverfi Kjalar- nesi einbýlishúsalóðir og raðhúsalóðir. Ennfremur er vakin athygh á lóðum fyrir iðnaðarhúsnæði. Nánari upplýsingar á skrifstofu hreppsins í síma 66076. REKSTRARSTJORI. Útboö Rafmagnsveitur ríkisins, Kröfluvirkjun, óska eftir tilboðum í flutning á sementi, stálpípum og borholuhljóðdeyfum frá Húsavík og Reykjavík að Kröfluvirkjun. Utboðsgögn verða afhent á skrífstofu VST hf., Armúla 4 Reykjavík, og Glerárgötu 36 Akureyri, gegn 1.000 kr. skila- tryggingu frá og með mánudeginum 14. mars 1983. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Kröfluvirkjunar, Strandgötu 1 Akureyri, mánudaginn 21. mars 1983 kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess kunna að óska. Reykjavík 10. mars 1983. RAFMAGNSVEITUR RIKISINS. viku. Fjórum árum síðar, árið 1892, stofnaði hann sitt eigið feldskerafyrir- tæki, sem dafnaöi ágætlega þegar framísótti. Á þessum árum festist hugur Zukors viö kvikmyndina og þá möguleika sem hann sá í f ramtíð hennar. Á þeim árum voru kvikmyndir harla lítilfjörlegar, reyndar ekki kallaðar því nafni þá heldur „flöktandi myndir”, og fáir gerðu sér grein fyrir því, að þessi tækni hefði eitthvert notagildi. En Zukor stóð fastur á því að hægt væri að segja samfellda sögu með kvikmynd- um, hægt væri að búa til nýja tegund afþreyingar fyrir almenning. Einungis þyrfti að yfirvinna nokkra tækniöröug- leika til þess að framleiðsla „kvik”- mynda gæti hafist. Hann setti á stofn lítið fyrirtæki sem vann að framgangi kvikmyndunarinnar. Það var árið 1912 og fyrirtækið hlaut nafniö „Famous Players”. Þar með má segja að vísir- inn að síðari tíma stjörnudýrkun hafi orðið til, því strax á þessu ári tók Zukor að ráða til sín unga leikara í hlutverk í stuttum leiknum kvikmynd- um, eða atriöum, því varla er hægt að nefna fyrstu verk Zukors kvikmynda- verk í þess orðs fyllstu merkingu. Zukor var strax í upphafi fullviss um að hann gæti gert iangar myndir. Draumur hans var að geta sagt heila sögu meö kvikmyndavélinni. Og sá draumur hans rættist nokkrum árum síðar þegar ný og þá fullkomin kvik- Luis B. Mayer, forsetí Metro-Goldwyn-Mayer-samsteypunnar, 6 tali viO eitt stímiO sitt, Jean Harlow. myndavél kom til sögunnar sem hrinti öllum efasemdum manna um mögu- leika k vikmyndanna til hliðar. Fyrirtæki Zukors, Famous Players, færöi smám saman út kvíamar. Það breytti um nafn og varð að samsteyp- unni Paramount Pictures, sem kom á framfæri jafnvinsælumstimum og Ru- dolph Valentino, John Barrymore, Bob Hope, Jack Benny, Bing Crosby, Henry Fonda, Helen Hayes, Gary Grant, Dean Martin, Jerry Lewis, svo fáeinir leikarar þessa fyrirtækis séu nefndir. Adolph Zukor seldi Paramount-kvik- myndafyrirtækið sitt árið 1966. Eignir þess voru þá að upphæð hundrað og þrjár milljónir Bandarikjadollara. Saddur lífdaga iést hann hundrað og þriggja ára gamall. Columbia Pictures Harry Chon var fæddur og uppalinn New York-búi. Hann leit þennan heim árið 1891. Hann hætti skólanámi fjórt- án ára gamall og hugðist gerast söngv- ari. Aldrei náði hann þó langt á þvi sviði. Það lengsta var að starfa sem bakraddari i hljóðupptökuveri. Nafns hans er þó hvergi getiö á plötuumslög- umþessaraára. Árið 1924 stofnaði Harry lítið kvik- myndafyrirtæki aö nafni Columbia Pictures. Hann þurfti ekki að ganga í gegnum eins mikla tækniörðugleika og Zukor haföi þurft rúmum áratug áöur, og því óx fyrirtæki hans að umfangi mun fljótar en Zukors. Menn voru líka mun örari á hlutabréfakaup i slíku fyrirtæki þá en á uppgangstimum Zuk- ors þegar enginn haföi trú á kvikmynd- um. Meðal kvikmyndastjarna sem Chon uppgötvaði voru Rita Hayworth og William Holden. Og hann gaf leikara- efninu Frank Sinatra einnig líf. Þegar hann lést, sextíu og sjö ára aö aldri lét hann eftir sig eignir sem námu fjórtán milljónum dollara. Misheppnaðist algjörlega... Louis B. Mayer fæddist í Litháen ár- ið 1885. Aðeins þriggja ára að aldri fluttist hann ásamt f jölskyldu sinni til New York. Nítján ára gamall hafði hann opnað sína eigin gjafavöruversl- un i borginni. Nokkrum mánuöum síöar varð þessi verslun hans gjald- þrota. Þá fluttist Mayer til Boston og gerðist miðasölumaður í leikhúsi þar í borg. Eftir aö hafa lagt fjármuni til hliöar i mörg ár og ávaxtað peninga sina af eljusemi, gerði hann sér lítið fyrir og keypti allstórt leikhús í Bost- on, New England Theater. Ásamt nokkrum vinum sinum stofnaði hann svo Metro Pictures og sína fyrstu kvik- mynd tóku þeir upp í Brooklyn. Hún misheppnaðist alg jöriega. Þá flutti firmað sig til Hollywood, og eftir samruna þess við nokkur önnur kvikmyndafyrirtæki varð Mayer for- seti Metro-Goldwyn-Mayer-sam- steypunnar. Undir hans forsæti urðu til stjömur á borö við Gretu Garbo, Clark Sam Goidwyn flengst tíl hægril ásamt nokkrum leikurum sem hann skaut upp á stjörnuhimininn; Douglas Fairbanks, Mary Pickford, Eddie Cantor og Ronaid Colman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.