Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1983, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1983, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR 61. TÖLUBLAÐ —73. og 9. ÁRG. — MÁNUDAGUR 14. MARS 1983. Karvel sigraði á 24 atkvæðum — óvíst hvort Sighvatur tekur sætí á listanum Karvel Pálmason alþingismaður fékk 24 atkvæðum meira í fyrsta sæti en Sighvatur Björgvinsson alþingis- maður í prófkjöri Alþýðuflokksins á Vestfjörðum. Karvel fékk 442 atkvæði en Sighvatur418. Alls kusu 937 manns í prófkjörinu, þar af 250 utankjörfundar. 866 atkvæði reyndust gild. 71 atkvæði reyndist ógilt sem er óvenju mikið. I síðustu alþingis- kosningum fékk flokkurinn 1188 atkvæði í kjördæminu. Að sögn Kristjáns Jónassonar, for- manns kjördæmisráðs, kusu miili 240 og 250 Bolvíkingar i prófkjörinu en 368 Hvað fellur þérillaífari kvenna? — sjá Sviðsljósið ábls.44og45 Tvöfalthjá Þrótturum — sjá 8 síðna blaðauka um íþróttir fsfirðingar. Hann taldi ástæðu hinna fjölmörgu ógildu atkvæða mega rekja til uppsetningar kjörseðilsins. Fólk hefði ekki haft nægilega aðgát þegar það greiddi atkvæði. Margir heföu ekki áttaö sig á að greiöa átti atkvæði um öll sætin þrjú. Sighvatur Björgvinsson fékk 694 atkvæði alls í annaö sæti. Þriðji frambjóðandinn var Gunnar R. Pétursson, Patreksfiröi. Hann hafnaði íþriðja sæti. Övíst er hvort Sighvatur tekur annaö sæti listans. Hann hyggst bíða meö að taka ákvörðun fram að næstu helgi. Péturheldur blaðamanna- fundíLeifsbúð — sjá Sandkom ábls.43 Húsið, trúnaðarmál — sjá leikdóm ábls.43 ,,Eg vil láta leiða það alveg í ljós hvemig úrslitin voru ráðin,” sagði hann í samtali við DV. A bls. 3 em viðtöl við þá Karvel og Sighvat. Þar segir Sighvatur meðal annars að andstæðingar Alþýðu- flokksins hafi ráðið úrslitum í próf- kjörinu. -KMU. — sjá einnigbls.3 FaraallirÞing- vallahringinn réttsælis? — sjá Lesendur á bls. 16 og 17 Stúdentaráös- kosningar ámorgun -sjábls.2 Opinber heimsókn forseta í Árnessýslu: Heimamenn fiykktust að tilaðheilsa upp á Vigdísi Forseti fslands, Vigdís Finnboga- dóttir, heimsótti Árnessýslu núna um helgina. Á laugardag leit hún við í Þorlákshöfn, á Selfossi, á Eyrar- bakka, Litla Hrauni, Stokkseyri og Flúðum. Aðvaranótt sunnudags gisti hún á Eystra-Geldingaholti, þarsem hún var í sveit mörg sumur sem lítil stúlka. Þaðan var haldið í gær til Skál- holts. Kirkjan var skoðuð og að því loknu snæddur hádegisverður í boði Lýðháskólans í Skálholtí. Þá hlýddi forsetinn og fylgdarliö hans á messu i Skálholtskirkju. Frá Skál- holti var haldið í Aratungu. Þar bauö Biskupstungnahreppur upp á kaffi og kökur. Kvenfélag sveitarinnar hafði staðið við bakstur undanfama daga. Ekki veitti af, allir sem vettlingi gátu valdið úr sveitinni komu tif þess að heilsa upp á forset- ann og þiggja kaffi, jafnt ungböm sem öldungar sveitarinnar. Að lokinni kaffidrykkju var haldið á Laugarvatn. Þarskoðaði forsetinn skólana fimm á staðnum og þáði að þvíloknukvöldverð. Á öllum þeim stöðum sem forseti sótti heim kepptust heimamenn við að sýna örlítiö brot af þeirri menningu sem á staðnum blómstrar. Hún skoðaöi söfn, hlýddi á leikrit, ljóðalestur og söng og spjallaöi við heimamenn. Þó veðrið væri leiðinlegt, þoka, suddi og jafnvel éljahraglandi, var mál manna aö ferð forseta hefði heppnast prýðilega. Myndir sem teknar voru fyrri dag heimsóknar- innar eru á bls. 4 og 5 í blaðinu í dag. Myndir sem teknar voru seinni daginn veröa síðan í blaöinu á morgun. -DS. Vigdfs Finnbogadóttir i hinum sögufrægu göngum undir Skálholtskirkju. Hún sagði að sér hefði þótt ákafiega gaman að sýna kirkjuna og göngin ferðamönnum þegar hún var starfandi leiðsögumaður. DV-myndBj. Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.