Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1983, Side 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR
61. TÖLUBLAÐ —73. og 9. ÁRG. — MÁNUDAGUR 14. MARS 1983.
Karvel sigraði
á 24 atkvæðum
— óvíst hvort Sighvatur tekur sætí á listanum
Karvel Pálmason alþingismaður
fékk 24 atkvæðum meira í fyrsta sæti
en Sighvatur Björgvinsson alþingis-
maður í prófkjöri Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum. Karvel fékk 442 atkvæði
en Sighvatur418.
Alls kusu 937 manns í prófkjörinu,
þar af 250 utankjörfundar. 866 atkvæði
reyndust gild. 71 atkvæði reyndist ógilt
sem er óvenju mikið. I síðustu alþingis-
kosningum fékk flokkurinn 1188
atkvæði í kjördæminu.
Að sögn Kristjáns Jónassonar, for-
manns kjördæmisráðs, kusu miili 240
og 250 Bolvíkingar i prófkjörinu en 368
Hvað fellur
þérillaífari
kvenna?
— sjá Sviðsljósið
ábls.44og45
Tvöfalthjá
Þrótturum
— sjá 8 síðna
blaðauka
um íþróttir
fsfirðingar. Hann taldi ástæðu hinna
fjölmörgu ógildu atkvæða mega rekja
til uppsetningar kjörseðilsins. Fólk
hefði ekki haft nægilega aðgát þegar
það greiddi atkvæði. Margir heföu ekki
áttaö sig á að greiöa átti atkvæði um
öll sætin þrjú.
Sighvatur Björgvinsson fékk 694
atkvæði alls í annaö sæti. Þriðji
frambjóðandinn var Gunnar R.
Pétursson, Patreksfiröi. Hann hafnaði
íþriðja sæti.
Övíst er hvort Sighvatur tekur annaö
sæti listans. Hann hyggst bíða meö að
taka ákvörðun fram að næstu helgi.
Péturheldur
blaðamanna-
fundíLeifsbúð
— sjá Sandkom
ábls.43
Húsið,
trúnaðarmál
— sjá leikdóm
ábls.43
,,Eg vil láta leiða það alveg í ljós
hvemig úrslitin voru ráðin,” sagði
hann í samtali við DV.
A bls. 3 em viðtöl við þá Karvel og
Sighvat. Þar segir Sighvatur meðal
annars að andstæðingar Alþýðu-
flokksins hafi ráðið úrslitum í próf-
kjörinu.
-KMU.
— sjá einnigbls.3
FaraallirÞing-
vallahringinn
réttsælis?
— sjá Lesendur
á bls. 16 og 17
Stúdentaráös-
kosningar
ámorgun
-sjábls.2
Opinber heimsókn forseta í Árnessýslu:
Heimamenn fiykktust að
tilaðheilsa upp á Vigdísi
Forseti fslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, heimsótti Árnessýslu núna
um helgina. Á laugardag leit hún við
í Þorlákshöfn, á Selfossi, á Eyrar-
bakka, Litla Hrauni, Stokkseyri og
Flúðum. Aðvaranótt sunnudags gisti
hún á Eystra-Geldingaholti, þarsem
hún var í sveit mörg sumur sem lítil
stúlka.
Þaðan var haldið í gær til Skál-
holts. Kirkjan var skoðuð og að því
loknu snæddur hádegisverður í boði
Lýðháskólans í Skálholtí. Þá hlýddi
forsetinn og fylgdarliö hans á
messu i Skálholtskirkju. Frá Skál-
holti var haldið í Aratungu. Þar bauö
Biskupstungnahreppur upp á kaffi
og kökur. Kvenfélag sveitarinnar
hafði staðið við bakstur undanfama
daga. Ekki veitti af, allir sem
vettlingi gátu valdið úr sveitinni
komu tif þess að heilsa upp á forset-
ann og þiggja kaffi, jafnt ungböm
sem öldungar sveitarinnar.
Að lokinni kaffidrykkju var haldið
á Laugarvatn. Þarskoðaði forsetinn
skólana fimm á staðnum og þáði að
þvíloknukvöldverð.
Á öllum þeim stöðum sem forseti
sótti heim kepptust heimamenn við
að sýna örlítiö brot af þeirri
menningu sem á staðnum blómstrar.
Hún skoðaöi söfn, hlýddi á leikrit,
ljóðalestur og söng og spjallaöi við
heimamenn.
Þó veðrið væri leiðinlegt, þoka,
suddi og jafnvel éljahraglandi, var
mál manna aö ferð forseta hefði
heppnast prýðilega. Myndir sem
teknar voru fyrri dag heimsóknar-
innar eru á bls. 4 og 5 í blaðinu í dag.
Myndir sem teknar voru seinni
daginn veröa síðan í blaöinu á
morgun.
-DS.
Vigdfs Finnbogadóttir i hinum sögufrægu göngum undir
Skálholtskirkju. Hún sagði að sér hefði þótt ákafiega
gaman að sýna kirkjuna og göngin ferðamönnum þegar
hún var starfandi leiðsögumaður.
DV-myndBj. Bj.