Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1983, Page 1
fbúðakaupendur verkamannabústaða á Eiðsgranda:
Greiða bílskýlin
nánast út í hönd
margirhafa
orðiðað
hætta við
vegna
þessara
skilyrða
Megn óánægja er ríkjandi meðal
tilvonandi íbúa nokkurra fjölbýlis-
húsa á Eiðsgranda, við götumar
öldugranda, Skeljagranda og Seylu-
granda, vegna þess að þeim er gert
aö greiða bílskýli sem fylgja hverri
íbúð nánast út í hönd. Verkamanna-
bústaðir sjá um bygginguna. DV
hafði samband við Kolbrúnu Ölafs-
dóttur, einn væntanlegra íbúa, og
innti hana eftir nánari málavöxtum.
„ Við þurfum að borga bílskýlin út í
hönd, áður en við fáum lykil að íbúð-
inni,” sagði Kolbrún. „Við fengum
úthlutað ibúð síðastliðið haust og
þurfum að borga 5% út af áætluðu
verði, 55 þúsund, og 29 þúsund í bíl-
skýlið. Eg veit ekki hvert áætlað
verð þess var þá, því þegar sótt var
um íbúðina í ársbyrjun 1982 var
áætlað verð íbúöarínnar 870 þúsund
og bílskýlis 70 þúsund. Þegar að
úthlutun kom i haust hafði íbúöin
hækkað um 110 þúsund og ef bílskýlið
hefur hækkaö svipað höfum viö borg-
aðútíþvírúm30%.
íbúöin á að af hendast um mánaða-
mótin mars-apríl á næsta ári og
samkvæmt þeim upplýsingum sem
við höfum fengið munum við þurfa
að borga á þriðja hundrað þúsund
samanlagt til að komast inn. Mikill
hluti þess er bílskýlið, því það verður
að klára að borga það upp.
Fólk er mjög óánægt meö þetta;
það fær þessar íbúðir miðaö við
ákveðnar tekjur. Þetta eru ansi
miklar greiöslur miðað viö þær
tekjur semfólk máhafa.”
„Við höfum spurt að því hvort ekki
sé hægt að borga bílskýlin á sama
hátt og íbúðirnar. Okkur finnast
þetta ekki nein verkamannakjör.
Svarið er, aö Húsnæðismálastjóm
fæst ekki til að lána í bílskýlunum.
Það er skylda að taka skýli með íbúð,
vegna þess að þau eru undir lóð-
unum, niðurgrafin, og síðan em bíla-
stæði þar sem hver íbúð fær hálft
stæði.”
Var vitað fyrirfram að þetta yrði
íbúunumsvona dýrt?
„Það var ekki ljóst í fyrstu en
okkur datt aldrei annað í hug en bíl-
skýlin fengjust með sömu kjörum og
íbúðimar. Þetta hefur því farið
nokkuð öðruvísi en haldið var og
ýmsir hafa hætt við vegna þessa,”
sagði Kolbrún Olafsdóttir.
-Pá.
MissElly
alvarlega veik
íalvöru
1 — sjábls.8og9
Vilmundur
vildiTrausta
-sjábls.2
Hvaökostar
„slikkeríið”?
— sjá Neytendur
á bls. 6 og 7
EKID A SEXTUGAN MANN í GÆRKVÖLDI
— og þrettán ára dreng
Sextugur maður slasaðist mikið er
hann varð fyrir bifreið á Miklubraut-
inni á móts við Reykjahlíð laust fyrir
klukkan ellefu í gærkvöldi.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
var maöurinn að fara norður yfir
Miklubrautina, á gangbraut, þegar
hann varð fyrir bifreið sem var á leið
vestur eftir Miklubrautinni. Maðurinn
mun hafa verið kominn langleiöina
yfir götuna þegar bíllinn ók á hann.
ökumaður bílsins mun ekki hafa séð
manninn fyrr en hann skall á bílnum.
Maðurinn er mikiö slasaður, fótbrot-
inn, mjaðmagrindarbrotinn auk
annarra meiðsla. DV tókst ekki aö fá
frekari upplýsingar um líöan hans í
morgun.
Þá var ekið á þrettán ára dreng á
Vesturgötunni rétt við Garðastræti um
klukkan hálfníu í gærkvöldi. Drengur-
inn var að hlaupa yfir götuna þegar
hann varð fyrir bílnum. Hann mun
hafa meiðst á fæti en ekki vera alvar-
lega slasaður.
-JGH.