Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Qupperneq 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 23. MARS1983.
Tílefnislaust
samningsbrot
— segir Ragnar Halldórsson
um yf irvinnubannið í álverinu
Yfirvinnubann verkamanna í ál-
verinu í Straumsvík, sem gekk í gildi
á sunnudaginn, hefur enn engin áhrif
haft á rekstur verksmiöjunnar. En
aö sögn Ragnars Halldórssonar, for-
stjóra Isal, má búast við að áhrifa
þess kunni aö gæta í framtíðinni í þá
átt aö draga verði úr framleiöslunni.
Yfirvinnubannið var sem kunnugt er
sett vegna mikils vinnuálags og ó-
þrifa í kerskála álversins.
Ragnar Halldórsson sagöi í sam-
tali við DV að ástandið væri að þessu
leyti mun betra en það hefði veriö
fyrir mánuði. Vinnuálagið og óþrifin
hefðu stafað af tímabundnum erfið-
leikum. Rafskaut hefðu blotnað og
skemmst og því hefðu sum kerin
þurft að standa opin. Ragnar sagði
ennfremur að það hefði verið löngu
ljóst aö starfsfólki myndi verða
fækkað. Ráðningartími margra hefði
hins vegar veriö framlengdur og
hefði verkalýðsfélagið kvartað und-
an því. Það væri því undariegt þegar
verkalýðsfélagið kvartaði einnig
undan því að ráðningartími þeirra
sem búiö væri að segja upp hefði
verið f ramlengdur enn lengur.
Ragnar sagðist álíta að boðun yfir-
vinnubannsins væri bæöi tilefnislaus
og auk þess brot á samningum.
OEF
Atvinnuleysisdagar:
Fækkm ntilli mánaóa,
fjölgun milli ára
Skráðum atvinnuleysisdögum hér
á landi fækkaði um 15 þúsund í
febrúarmánuöi síöastliönum miðað
við mánuðinn á undan. Atvinnu-
lausum fækkaði samtímis um 720 á
landinuöllu.
Rösklega 36 þúsund atvinnuleysis-
dagar voru skráöir í febrúar og
jafngildir það að 1676 manns hafi
verið skráðir atvinnulausir allan
mánuöinn, sem svarar til 1,6 af
hundraöi af áætluöum mannafla á
vinnumarkaðnum. I janúar í ár voru
hins vegar skráðir um 51 þúsund at-
vinnuleysisdagar sem jafngildir 2400
manns eða 2,2 af hundraði mann-
afla.
Miðað viö sama tíma í fyrra er
þetta þó engan veginn glæsilegur
árangur. I febrúarmánuði þá voru
skráðir á landinu rösklega 20 þúsund
atvinnuleysisdagar eða um 16 þús-
und færri en nú.
Glansinn fer svo gjörsamlega af
þeim tölum sem birtar eru nú ef
miðað er við meðaltal skráðra at-
vinnuleysisdaga í febrúarmánuði
árin 1975—1982 en það hljóðar upp á
14 þúsund daga. Gefur þetta glögga
mynd af því ástandi er ríkir á at-
vinnumarkaðnum hérlendis um
þessar mundir.
JBKS
Vöruskiptajöfnuður:
Hagstæður í febrúar
Vöruskipta jöfnuður landsmanna stofu Islands.
var hgstæöur um 260 milljónir króna Janúarmánuöur var Islendingum
ífebrúar. Verömætiútflutningsnam óhagstæðari. Séu tveir fyrstu
um 1.250 milljónum króna en verð- mánuðirnir lagðir saman er vöru-
mæti innflutnings um 990 milljónum skiptajöfnuöurinn óhagstæður um 80
króna. Þessar upplýsingar koma milljónirkróna.
fram í fréttatilkynningu frá Hag- -KMU
riAMC
VILTU
5 í nýjan — nýrri — eldri —
^ S dýrari — édýrari
Komdu á þeim gamla og veldu sjálfur.
ÚRVALAF NOTUÐUM
BÍLUM Á FRÁBÆRUM KJÖRUM
Fíat132'78 Ford Torino '72 Wagoneer '72
Fíat 125P '77 Chevrolet pickup '74 Scout '74
Fíat 127 '74 Wagoneer '74 Trabant station '79
Ford Cortina '75 Wagoneer '75 Fíat 126 '75
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-18.
OPIÐ SUNNUDAG KL. 13-18.
FIAT EINKAUMBOD A ÍSLANDI
EGILL
OAVHt SIGl/ROSSOH hf. // W|| U |H| MSSON
MIDJUVEGI4, KÖPAVOGI, SÍMAR 77202 - 77200 /f V ll_l lUrtLlllUUUIV
SMIÐJUVEGI 4 KOP- SIMAR 77200 - 77720.
t 1 # t & ■ÆeæB£aB&é | JHB huÍbB ^
ámi, ŒJ < Fi fp ‘ H/ 1
jMjHO-. «■ • 'fw'' gmm 1 1 'H í t %L’ J
mjý. * 'tfZ m-t v&æ'í ' > ‘Jwl £ k
'-2 • É- W* Wf Ijl
Mezzoforte tekur lagið fyrir breska áhorfendur í þættinum Top Of The Pops í
síðustu viku. Talið er að um 12 miiljónir manna horfi á þátt þennan í viku hverri.
Eins og sjá má er myndin tekin af sjónvarpsskermi en BBC neitar ljósmyndurum
alfarið um að taka myndir í upptökusölum sínum.
DV-mynd Einar Ólason
Mezzoforte:
UTLA PLATAN
MEÐAL TÍU EFSTU
A BRESKA LIST-
ANUMINNAN TÍÐAR
— segja sérfróðir
Að dómi sérfróöra manna er þaö
næsta víst að litla platan meö Mezzo-
forte, sem aö undanförnu hefur þeyst
upp breska vinsældalistann, verði
komin í hóp tíu vinsælustu platna
þarlendis áður en langt um h'ður.
Byggir þessi spádómur á því að þessa
vikuna færðist platan upp um 12 sæti,
úr 29. í 17. og það án þess að áhrifa
þáttarins Top Of The Pops sé farið að
gæta að ráði í sölunni, en sem kunnugt
er kom Mezzoforte f ram í þessum þætti
í síðustu viku. Að öllu jöfnu hefur þessi
þáttur síður en svo slæm áhrif á plötu-
sölu þeirra listamanna sem þarkoma
fram.
En það er ekki bara litla plata
Mezzoforte, sem selst í Bretlandi.
Stóra platan er einnig á hraöri leið upp
sölulistann og situr þessa vikuna í 28.
sæti hans en var í 43. sæti í fyrri viku.
Til að fylgja þessum vinsældum
hljómsveitarinnar eftir hafa Steinar
h/f ákveðið að gefa út tveggja laga
plötu í næsta mánuði og verða lögin á
henni tekin af stóru plötunni Surprise
Surprise eins og lögin á þeirri smá-
skífu, sem nú er hvað vinsælust. I maí-
mánuöi næstkomandi verða síðan
tekin upp glæný lög á litla plötu. Á
þannig að halda Bretum við efnið
þangað til hljómleikaferö Mezzoforte
hefst þar í landi í j úní.
-SþS
Laxárfélagið ályktar:
Engar veiði-
heimildir til
Færeyinga
— meðan þeir stunda laxveiðar í sjó
laxveiði í ám á norðausturhorni
Islands sem miklar líkur benda til að
stafi af mjög auknum laxveiöum
Færeyinga í hafinu milli Islands og
Færeyja. Skorar fundurinn því á
stjórnvöld að fella niöur allar
veiðiheimildir Færeyinga innan fisk-
veiðilögsögu Islands þar til laxveið-
um þessum verður hætt,” segir í
ályktuninni.
Stjórn Laxárfélagsins skipa nú:
Sigurður Samúelsson, Reykjavík,
formaður, Gísli Konráðsson, Akur-
eyri, Helgi Bjarnason, Húsavík,
Jóhannes Kristjánsson, Akureyri,
Ölafur Benediktsson, Akureyri og
önundur Ásgeirsson, Reykjavík.
-KMU
„Aðalfundur Laxárfélagsins
samþykkir að skora á ríkisstjómina
að beita sér fyrir alþjóðasamþykkt
um bann við laxveiði í sjó,” segir í
ályktun sem félag um Laxá í Þing-
eyjarsýslu hefur sent forsætisráð-
herra. Félög stangveiðimanna á
Akureyri og Húsavík em í Laxár-
félaginu.
„Fundurinn telur orðið augljóst að
laxveiði í sjó byggist nú mest á
ræktun fisksins og því sé eölilegt að
þeir, sem til slíkrar ræktunar stofna,
eigi að njóta ávaxta erfiðis síns og
tilkostnaðar.
Sérstaklega vill fundurinn vekja
athygli á hinni stórfelldu minnkun á