Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Blaðsíða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 23. MARS1983. 9 Útlönd Útlönd Spies fær nýja konu Simon Spies, danski milljónamœringurinn, hefur tilkynnt þad í Róm aö hann sé trúlofadur hinni tvítugu Jannie Brodersen og hyggst hann ganga að eiga hana í maí. Jannie kom til Rómar fyrir þrábeiðni Spies sem lengi hafði borið sig eftir henni og að þessu sinni lét hún undan. Brúðkaupið mun fara fram í Kaup- mannahöfn. Pravda gagn- lýnir lögreglu Sovéska dagblaöið Pravda gagnrýndi nýlega lögreglu í Sovétríkj- unum harðlega fyrir kæruleysi varö- andi óspektir og smáglæpi. Blaöið segir aö ólíkt því sem gerist meö sjúkrabíla og slökkvilið taki þaö lögreglumenn oft langan tíma aö komast til þeirra staöa sem þeir eru kallaöir á. Grein Prövdu birtist vegna lesendabréfs sem blaðinu barst. I einu tilfelli, sem blaðið sagði frá, braust drukkinn maöur, vopnaöur hníf, inn í íbúð og hótaði einstæðri konu sem þar var. Hún hringdi á lögreglu og henni var sagt aö bíöa eftir lögreglubíl. Hún hljóp út á götu og stöðvaði lögreglubíl en lögregluþjónninn, sem í honum var, sagðist hafa mikilvægari störfum að gegna. Blaðamaður Prövdu komst að því að starf mannsins var að keyra milli lögregluskrifstofa með skjöl. særöust í morðárásinni. Þeir saka dr. John Hopper um kæruleysi í sjúkdómsgreiningu sinni og meðferð á Hinckley siðustu fimm mánuðina áður en Hinckley sýndi forsetanum tilræðið. James Brady, blaðafulltrúi for- setans, vill átta milljón dollara skaðabætur, Timothy McCarthy öryggisvörður vill tvær milljónir og Thomas Delahanty, fyrrum lögregluþjónn í Washington, vill fjórarmilljónir. Við réttarhöldin var Hinckley dæmdur geöveikur og skipað að hann skyldi lokaður inni á spítala til meðferðar. Sprengja íbrjóstholi Suður afríski hermaðurinn Mario Ollveira varð fyrir sprengju sem gekk inn í br jóstkassa hans án þess að springa. Læknar, sem hlóðu upp vegg af sandpokum og stálplötum, náðu sprengjunni burt og Oliveira hefur náð sér. A myndinni má sjá örið þar sem sprengjan var skorin út og hann heldur á sams konar sprengju og hann varð fyrir. Andlit hans er hulið, samkvæmt beiöni suðurafrískra heryfirvalda, í öryggisskyni. Fyrir námsfólk jafnt og aðra sem við vinnu sína sitja er mikilvæg undirstaða árangurs að sitja rétt og þægilega. Stóll frá Stáliðjunni er því góð gjöf r kt handa fermingarbarninu, góður stuðningur áður en lengra er haldið. STALIÐJANhf SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211 Hverjir eru valkostir ungs fólks sem vill kaupa, byggja eða leigja? Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins boðar til opins fundar um húsnæðismál ungs fólks miðvikudaginn 23. mars, kl. 20:00, í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut. Stutt kynningarerindi flytja: • Þorsteinn Steingrímsson, fasteignasali. Hverjir eru möguleikar á að eignast eldra húsnæði? • Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðingur. Ástandið á leigumarkaðnum. • Bjami Axelsson, tæknifræðingur, formaður stjórnar Aðalbóls. Hvað er byggingarsamvinnufélag? • Ingi Valur Jóhannsson, félagsfræðingur. Fjármögnun húsnæðismála. • Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra. Alþýðubandalagið og húsnæðismálin. Á eftir inngangserindum verða pallborðsumræður þar sem tækifæri gefst til að beina fyrirspumum til frummælenda. Við hvetjum þig til að mæta á fundinn og kynna þér valkosti ungs fólks sem vill kaupa, byggja eða leigja. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.