Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Side 32
32
DV. MIÐVKUDAGUR 23. MARS1983.
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Borgfirðingafélagið
í Reykjavík
Spilakvöld verflur haldið að Síðumúla 35,
föstudaginn 25. mars ki. 20.30. Heildar-
verðlaun afhent. Mætið vel og stundvíslega.
Þóroddur Guðmundsson skáld frá
Sandi lést 13. mars. Hann fæddist 18.
ágúst 1904. Yfir þrjátíu ára skeið
stundaði Þóroddur kennslustörf. Hann
var einn af stofnendum Félags
íslenskra rithöfunda og hefur hann
gefið út átta ljóðabækur. Áriö 1936
kvæntist Þóroddur Hólmfríði Jóns-
dóttur, þau eignuðust tvær dætur.
Utför hans verður gerð frá Hafnar-
fjarðarkirkju í dag kl. 15.
Valtýr Bjarnason yfirlæknir lést 10.
mars. Hann fæddist 6. mars 1920 í
Meiri-Tungu í Holtum. Foreldrar hans
voru hjónin Þórdís Þórðardóttir og
Bjarni Jónsson. Valtýr fór til Banda-
ríkjanna áriö 1955 til sémáms í
svæfingalæknisfræði og kom aftur
hingað til lands með nýtt svæfingalyf.
Hann var kosinn heiðursfélagi
Svæfingalæknafélags Islands árið 1974.
Árið 1956 kvæntist Valtýr eftirlifandi
konu sinni, Sigríöi Jóhannsdóttur, þau
eignuðust fjögur börn. Utför Valtýs
verður gerö í dag klukkan 13.30 frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
Njáll Guðmundsson, fyrrv. skóiastjóri,
Klapparstíg 2, lést 18. mars. Jarðar-
förin fer fram fimmtudaginn 24. mars
kl. 10.30 fráBústaðakirkju.
Þórður Gunnar Jónsson, Samtúni 22,
verður jarösunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 24. mars kl. 15.
Guðbjöm Guðmundsson prentari,
Hagamel 18, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
25. marskl. 13.30.
Foreldra- og vinafélag
Kópavogshælis
minnir á giróreikninginn 72700-8 vegna fjár-
söfnunar til að fullgera sundlaug við Kópa-
vogshæU.
Konsert á Borginni
Á morgun, fimmtudagskvöld, verður konsert
á Borginni með Tappa tíkarrassi. Húsið
verður opnað kl. 21.00
Young-Hee Jeong, sem er kennari í
Kóreu, óskar fyrir hönd nemenda
sinna eftir íslenskum pennavinum.
Kórönsku nemendumir eru á aldrinum
13—19 ára. Young-Hee Jeong vonar að
þessi bréfaskipti geti orðið báðum til
gagns og gamans. Þá sem áhuga hafa
biður hann um að senda stuttorðar
upplýsingar á ensku um sjálfa sig
ásamtheimilisfangi til
Young-Hee Jeong
C.P.O. Box 9149
Seoul, Korea.
80 ára er í dag, 23. mars, Ólafur
Frimann Sigurðsson, fyrmm fram-
kvæmdastjóri, Vesturgötu 45 Akra-
nesi. Kona hans er Olína Asa Þórðar-
dóttir.
Þolinmóð könguló
Af ýmsum ástæðum nýtti ég mér
ekki þjónustu ríkisfjölmiölanna í
gærkveldi, utan hvaö ég fylgdist með
ferðum hins aldna njósnara, George
Smiley, þar sem hann spann, eins og
þolinmóð könguló, net umhverfis
Svefnálfinn. Eg hef lengi veriö
þeirrar skoðunar aö Alec Guinnes sé
besti leikari í heimi og ekki verða
þættimir um George Smiley til þess
að breyta þeirri skoðun minni.
Eg held ég megi segja að fyrsta
kvikmyndin sem ég sá, þar sem
Guinnes lék stórt hlutverk, hafi verið
The Lavender Hill Mob. Það var á
þeim árum sem íslenska sjónvarpiö
sendi út í svarthvítu og skömmuöust
forráðamennirnir sín þá ekkert fyrir
að sýna gamlar kvikmyndir, sem nú
sjást varla eftir litvæðingu. I þeirri
kvikmynd lék Guinnes ósennilegan
glæpaforingja, sem stjórnar ráni á
nokkrum tonnum af gulli. Frábær
mynd. Síðan þá hefur maöur séð
þennan meistara leika í mörgum
kvikmyndum, allt frá Brúnni yfir
Kwaifljót að Star Wars. Og hvort
sem textinn er léttmeti, svo sem í
Star Wars, eða ljóðaleikir Shake-
speares, vinnur Guinnes sitt verk af
sömu nákvæmninni og sannfærir
áhorfandann um það aö hér er stór-
leikari á ferð. Það er furðulegt hvað
blessuðum Bretunum tekst alltaf að
koma fram með stórkostlega
leikara.
Að lokum vildi ég geta þess að ég
er ekki alveg sáttur við handritiö að
Endataflsþáttunum. Bók le Carrés
er ekki fylgt af fuliri nákvæmni og
ýmislegt sem í henni er laglega gefið
í skyn er sett of hrátt fram í handriti.
En þetta eru frábærir þættir engu að
síöur.
Ólafur B. Guðnason.
SMÁAUGLÝSINGADEILD
sem sinnír smáaug/ýsingum, myndasmáaugiýsingum ogþjónustuauglýsingum eri
ÞVERHOLT111
Smáauglýsmgaþjónustan er opin frá k/. 12—22 virka daga og /augar-
Tekiö erá móti venju/egum smáaug/ýsingum þar og i sima 27022:
Virka daga kl. 9 - 22,
laugardaga kl. 9 — 14,
sunnudaga kl. 18 — 22-
TekiÖ er á móti myndasmáauglýsingum og þjónustuaug/ýsingum
virka daga k/. 9—17.
daga k/. 9—14.
ATHUGIÐ!
Ef s.náaug/ýsing á aÖ birtast i he/garb/aði þarf hún að hafa borist
f/rirk/. 17 föstudaga.
EE
SMAAUGLYSINGADEILD
Þverholíi 11, simi27022.
Pennavinir
Tilkynningar
Tónleikar
Afmæli
Hallgrímskirkja
opið hús
Opiö hús fyrir aldraöa er á morgun fimmtu-
dag kl. 15. Safnaðarsystir.
Hallgrímskirkja
Föstumessa verður í kvöld miðvikudag kl.
20.30. Jóhanna Möller syngur einsöng. Munið
sýninguna á passíumyndum Barböru Árna-
son sem opin er alla daga frá kl. 16—22, nema
mánudaga, fram að páskum. Karl Sigur-
björnsson.
Aðalfundir
Kvenfélag Kópavogs
Aðalfundur félagsins verður í félagsheimili
Kópavogs fimmtudaginn 24. mars kl. 20.30.
Stjórnin.
Ýmislegt
Ályktun stjórnar Leik-
listarsambands íslands
Stjórn Leiklistarsambands Islands lýsir
þungum áhyggjum yfir því aðstöðuleysi sem
frjálsir leikhópar á íslandi búa við.
Frjálsir leikhópar hafa þegar slegið hér
rótum og aukið á fjölbreytni íslensks leiklist-
arlifs, þannig það væri skaði ef þeir þyrftu að
hætta starfsemi sinni vegna húsnæðisekiu.
Stjórn Leiklistarsambands Islands skorar á
opinber yfirvöld að gefa þessu máli gaum,
þar eö með hugkvæmni og góðum vilja mætti
koma í veg fyrir að þessi mikilvægi þáttur í
leiklistarlífinu legðist af.
Fyrirlestrar
Laugardaginn 9. apríl flytur Kristján Áma-
son, stundakennari í almennri bókmennta-
fræði, fyrirlestur, sem nefnist Heimspeki og
skáidskapur.
Laugardagmn 16. apríl flytur Ingi
Sigurðsson, lektor í sagnfræði, fyrirlestur
sem hann kallar íslensk sagnfræði frá miðri
19. öld til samtímans i erlendu samhengi.
Laugardaginn 23. apríl flytja Höskuldur
Þráinsson prófessor og Kristján Ámason
lektor, báðir í íslenskri málfræði, fyrirlestur
um málfar Vestur-Skaftfellinga.
BELLA
Geturðu fundið tíkallinn, sem ég
lagði í bankann í gær? Ég skrifaði
mjög þýðingarmikið símanúmer á
hann.
Spilakvöld
»«
GEÐHJÁLP
Fyrirspurn hjá Geðhjálp
Geðhjálp, félag geðsjúkra, aðstandenda
þeirra og velunnara gengst í vetur fyrir fyrir-
lestrum um geðheilbrigðismál og skyld efni.
Fyrirlestrarnir verða haldnir á geðdeild
Landspítalans, í kennslustofu á 3. hæð. Þeir
verða mánaðarlega.
Næsti fyrirlestur verður fimmtudaginn 24.
mars 1983 kl. 20. Jónas Gústafsson sál-
fræðingur talar um nýjar aöferðir í geðlækn-
ingum. Fyrirlestrarnir eru bæði fyrir félags-
menn svo og alla aðra sem áhuga kynnu að
hafa. Aðgangur er ókeypis. Fyrirspurnir og
umræður verða eftir fyrirlestrana.
Listasöfn
NORRÆNA HÚSIÐ:t sýningarsal Norræna
hússins sýnir Jóhanna Bogadóttir málverk,
teikningar og grafík. Á sýningunni eru um 70
myndir sem unnar eru á sl. 3 árum. Jóhanna
hefur tekið þátt í mörgum alþjóðlegum
grafíksýningum og haldið margar einkasýn-
ingar, bæði hér heima og erlendis. Sýningin
stendur til 20. mars og er opin daglega frá kl.
15-22.
ÁSMUNDARSALUR FREYJUGÖTU: Þar
stendur yfir myndlistarsýning Erlu B. Axels-
dóttur. Á sýningunni er eingöngu pastelmynd-
ir, tæplega 50 að tölu alls og eru þær allar
unnar á síðustu tveimur til þremur árum.
Erla hefur stundað nám við myndlistar-
skólann undanfarin 6 ár. Hún hefur haldið
eina sýningu á verkum sínum. Sýningin er
opin virka daga frá kl. 16—22 en frá kl. 14—22
um helgar. Sýningunni lýkur 13. mars.
LISTASAFN ASÍ: A morgun, Iaugardag, kl.
14 opna Ölafur Lárusson og Kristinn
Guðmundsson sýningu á teikningum, mál-
verkum skúlptúr og ljósmyndum. Rúm 50
verk eru á sýningunni. Sýningin verður opin
alla daga frá kl. 14—22.
KJARVALSSTAÐIR: Engin sýning um þessa
helgi.
Andlát