Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Page 32
32 DV. MIÐVKUDAGUR 23. MARS1983. í gærkvöldi í gærkvöldi Borgfirðingafélagið í Reykjavík Spilakvöld verflur haldið að Síðumúla 35, föstudaginn 25. mars ki. 20.30. Heildar- verðlaun afhent. Mætið vel og stundvíslega. Þóroddur Guðmundsson skáld frá Sandi lést 13. mars. Hann fæddist 18. ágúst 1904. Yfir þrjátíu ára skeið stundaði Þóroddur kennslustörf. Hann var einn af stofnendum Félags íslenskra rithöfunda og hefur hann gefið út átta ljóðabækur. Áriö 1936 kvæntist Þóroddur Hólmfríði Jóns- dóttur, þau eignuðust tvær dætur. Utför hans verður gerð frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag kl. 15. Valtýr Bjarnason yfirlæknir lést 10. mars. Hann fæddist 6. mars 1920 í Meiri-Tungu í Holtum. Foreldrar hans voru hjónin Þórdís Þórðardóttir og Bjarni Jónsson. Valtýr fór til Banda- ríkjanna áriö 1955 til sémáms í svæfingalæknisfræði og kom aftur hingað til lands með nýtt svæfingalyf. Hann var kosinn heiðursfélagi Svæfingalæknafélags Islands árið 1974. Árið 1956 kvæntist Valtýr eftirlifandi konu sinni, Sigríöi Jóhannsdóttur, þau eignuðust fjögur börn. Utför Valtýs verður gerö í dag klukkan 13.30 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Njáll Guðmundsson, fyrrv. skóiastjóri, Klapparstíg 2, lést 18. mars. Jarðar- förin fer fram fimmtudaginn 24. mars kl. 10.30 fráBústaðakirkju. Þórður Gunnar Jónsson, Samtúni 22, verður jarösunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 24. mars kl. 15. Guðbjöm Guðmundsson prentari, Hagamel 18, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 25. marskl. 13.30. Foreldra- og vinafélag Kópavogshælis minnir á giróreikninginn 72700-8 vegna fjár- söfnunar til að fullgera sundlaug við Kópa- vogshæU. Konsert á Borginni Á morgun, fimmtudagskvöld, verður konsert á Borginni með Tappa tíkarrassi. Húsið verður opnað kl. 21.00 Young-Hee Jeong, sem er kennari í Kóreu, óskar fyrir hönd nemenda sinna eftir íslenskum pennavinum. Kórönsku nemendumir eru á aldrinum 13—19 ára. Young-Hee Jeong vonar að þessi bréfaskipti geti orðið báðum til gagns og gamans. Þá sem áhuga hafa biður hann um að senda stuttorðar upplýsingar á ensku um sjálfa sig ásamtheimilisfangi til Young-Hee Jeong C.P.O. Box 9149 Seoul, Korea. 80 ára er í dag, 23. mars, Ólafur Frimann Sigurðsson, fyrmm fram- kvæmdastjóri, Vesturgötu 45 Akra- nesi. Kona hans er Olína Asa Þórðar- dóttir. Þolinmóð könguló Af ýmsum ástæðum nýtti ég mér ekki þjónustu ríkisfjölmiölanna í gærkveldi, utan hvaö ég fylgdist með ferðum hins aldna njósnara, George Smiley, þar sem hann spann, eins og þolinmóð könguló, net umhverfis Svefnálfinn. Eg hef lengi veriö þeirrar skoðunar aö Alec Guinnes sé besti leikari í heimi og ekki verða þættimir um George Smiley til þess að breyta þeirri skoðun minni. Eg held ég megi segja að fyrsta kvikmyndin sem ég sá, þar sem Guinnes lék stórt hlutverk, hafi verið The Lavender Hill Mob. Það var á þeim árum sem íslenska sjónvarpiö sendi út í svarthvítu og skömmuöust forráðamennirnir sín þá ekkert fyrir að sýna gamlar kvikmyndir, sem nú sjást varla eftir litvæðingu. I þeirri kvikmynd lék Guinnes ósennilegan glæpaforingja, sem stjórnar ráni á nokkrum tonnum af gulli. Frábær mynd. Síðan þá hefur maöur séð þennan meistara leika í mörgum kvikmyndum, allt frá Brúnni yfir Kwaifljót að Star Wars. Og hvort sem textinn er léttmeti, svo sem í Star Wars, eða ljóðaleikir Shake- speares, vinnur Guinnes sitt verk af sömu nákvæmninni og sannfærir áhorfandann um það aö hér er stór- leikari á ferð. Það er furðulegt hvað blessuðum Bretunum tekst alltaf að koma fram með stórkostlega leikara. Að lokum vildi ég geta þess að ég er ekki alveg sáttur við handritiö að Endataflsþáttunum. Bók le Carrés er ekki fylgt af fuliri nákvæmni og ýmislegt sem í henni er laglega gefið í skyn er sett of hrátt fram í handriti. En þetta eru frábærir þættir engu að síöur. Ólafur B. Guðnason. SMÁAUGLÝSINGADEILD sem sinnír smáaug/ýsingum, myndasmáaugiýsingum ogþjónustuauglýsingum eri ÞVERHOLT111 Smáauglýsmgaþjónustan er opin frá k/. 12—22 virka daga og /augar- Tekiö erá móti venju/egum smáaug/ýsingum þar og i sima 27022: Virka daga kl. 9 - 22, laugardaga kl. 9 — 14, sunnudaga kl. 18 — 22- TekiÖ er á móti myndasmáauglýsingum og þjónustuaug/ýsingum virka daga k/. 9—17. daga k/. 9—14. ATHUGIÐ! Ef s.náaug/ýsing á aÖ birtast i he/garb/aði þarf hún að hafa borist f/rirk/. 17 föstudaga. EE SMAAUGLYSINGADEILD Þverholíi 11, simi27022. Pennavinir Tilkynningar Tónleikar Afmæli Hallgrímskirkja opið hús Opiö hús fyrir aldraöa er á morgun fimmtu- dag kl. 15. Safnaðarsystir. Hallgrímskirkja Föstumessa verður í kvöld miðvikudag kl. 20.30. Jóhanna Möller syngur einsöng. Munið sýninguna á passíumyndum Barböru Árna- son sem opin er alla daga frá kl. 16—22, nema mánudaga, fram að páskum. Karl Sigur- björnsson. Aðalfundir Kvenfélag Kópavogs Aðalfundur félagsins verður í félagsheimili Kópavogs fimmtudaginn 24. mars kl. 20.30. Stjórnin. Ýmislegt Ályktun stjórnar Leik- listarsambands íslands Stjórn Leiklistarsambands Islands lýsir þungum áhyggjum yfir því aðstöðuleysi sem frjálsir leikhópar á íslandi búa við. Frjálsir leikhópar hafa þegar slegið hér rótum og aukið á fjölbreytni íslensks leiklist- arlifs, þannig það væri skaði ef þeir þyrftu að hætta starfsemi sinni vegna húsnæðisekiu. Stjórn Leiklistarsambands Islands skorar á opinber yfirvöld að gefa þessu máli gaum, þar eö með hugkvæmni og góðum vilja mætti koma í veg fyrir að þessi mikilvægi þáttur í leiklistarlífinu legðist af. Fyrirlestrar Laugardaginn 9. apríl flytur Kristján Áma- son, stundakennari í almennri bókmennta- fræði, fyrirlestur, sem nefnist Heimspeki og skáidskapur. Laugardagmn 16. apríl flytur Ingi Sigurðsson, lektor í sagnfræði, fyrirlestur sem hann kallar íslensk sagnfræði frá miðri 19. öld til samtímans i erlendu samhengi. Laugardaginn 23. apríl flytja Höskuldur Þráinsson prófessor og Kristján Ámason lektor, báðir í íslenskri málfræði, fyrirlestur um málfar Vestur-Skaftfellinga. BELLA Geturðu fundið tíkallinn, sem ég lagði í bankann í gær? Ég skrifaði mjög þýðingarmikið símanúmer á hann. Spilakvöld »« GEÐHJÁLP Fyrirspurn hjá Geðhjálp Geðhjálp, félag geðsjúkra, aðstandenda þeirra og velunnara gengst í vetur fyrir fyrir- lestrum um geðheilbrigðismál og skyld efni. Fyrirlestrarnir verða haldnir á geðdeild Landspítalans, í kennslustofu á 3. hæð. Þeir verða mánaðarlega. Næsti fyrirlestur verður fimmtudaginn 24. mars 1983 kl. 20. Jónas Gústafsson sál- fræðingur talar um nýjar aöferðir í geðlækn- ingum. Fyrirlestrarnir eru bæði fyrir félags- menn svo og alla aðra sem áhuga kynnu að hafa. Aðgangur er ókeypis. Fyrirspurnir og umræður verða eftir fyrirlestrana. Listasöfn NORRÆNA HÚSIÐ:t sýningarsal Norræna hússins sýnir Jóhanna Bogadóttir málverk, teikningar og grafík. Á sýningunni eru um 70 myndir sem unnar eru á sl. 3 árum. Jóhanna hefur tekið þátt í mörgum alþjóðlegum grafíksýningum og haldið margar einkasýn- ingar, bæði hér heima og erlendis. Sýningin stendur til 20. mars og er opin daglega frá kl. 15-22. ÁSMUNDARSALUR FREYJUGÖTU: Þar stendur yfir myndlistarsýning Erlu B. Axels- dóttur. Á sýningunni er eingöngu pastelmynd- ir, tæplega 50 að tölu alls og eru þær allar unnar á síðustu tveimur til þremur árum. Erla hefur stundað nám við myndlistar- skólann undanfarin 6 ár. Hún hefur haldið eina sýningu á verkum sínum. Sýningin er opin virka daga frá kl. 16—22 en frá kl. 14—22 um helgar. Sýningunni lýkur 13. mars. LISTASAFN ASÍ: A morgun, Iaugardag, kl. 14 opna Ölafur Lárusson og Kristinn Guðmundsson sýningu á teikningum, mál- verkum skúlptúr og ljósmyndum. Rúm 50 verk eru á sýningunni. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 14—22. KJARVALSSTAÐIR: Engin sýning um þessa helgi. Andlát

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.