Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Blaðsíða 40
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 1983. Efstir hjá Bandalagi jafnaðarmanna Bandalag jafnaöarmanna hefur nú ákveðið framboðslista í öllum kjör- dæmum. Þessir eru í fjórum efstu sætunum í þeim kjördæmum sem DV hefur ekki þegar birt iistann í: Reykjavík: 1. Vilmundur Gylfason, Reykjavík, 2. Kristín S. Kvaran, Reykjavík, 3. Stefán Benediktsson Reykjavík, 4. Jónína Leósdóttir, Reykjavík. Reykjanes: Guðmundur Einarsson, Kópavogi, 2. Þórður H. Olafsson, Reykjavík, 3. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Mosfellssveit, 4. Pétur Finnsson, Grindavík. Vestur- Iand: 1. Kristófer Már Kristinsson, Reykholti, 2. Carmen Bonits, Borgar- nesi, 3. Hrönn Ríkharðsdóttir, Akra- nesi, 4. Hjörleifur Kristjánsson Olafsvík. Vestfirðir: 1. Kristján Jónsson, Reykjavík, 2. Lúðvík Helgason, Tálknafirði, 3. Guðni Kjærbo, Kjúku, Strandasýslu, 4. Helgi Sæmundsson, Isafirði. Norður- land vestra: 1. Þorvaldur Skaftason, Skagaströnd, 2. Ragnheiður Olafs- dóttir, Skagafirði, 3. Sigurður Jóns- son, Akureyri, 4. Valtýr Jónsson, Siglufirði. Austurland: 1. Grétar Jónsson, Stöðvarfirði, 2. Samúel Ingi Þórisson, Seyðisfirði, 3. Þorlákur Helgason, Selfossi, 4. Ami Róberts- son.Vopnafirði. -JBH. Söfnun SÁÁ: NÝ HRINA SÁA mun á næstunni senda út gjafabréf til allra karlmanna á landinu á aldrinum 20 tU 30 ára. Áður hafði öllum karlmönnum á aldrinum 30 til 70 verið sent gjafabréf að upp- hæö 1800 krónur. I aldurshópnum 20 til 30 ára eru um 25 þúsund manns. Að sögn Valdimars Jóhannssonar, framkvæmdastjóra fjársöfnunar- innar, er ástæðan fyrir þessari aukn- ingu sú að mikillar óánægju gætti meðal manna í þessum Eddurshópi aö fá ekki að taka þátt í söfnuninni. Sagði Valdimar að söfnunin gengi „ljómandivel.” -OEF. Banaslys Níu ára dengur lést á sjúkrahúsinu á Akureyri um hádegisbilið í gær af völdum meiðsla sem hann hlaut í umferðarslysi fyrr um morguninn. Atvik voru þau að drengurinn, sem var á reiðhjóli, kom út af bílastæði Glerárstöðvar OLIS við Tryggva- braut og lenti í hliðinni á olíubíl, sem ók vestur eftir Tryggvabrautinni. Drengurinn hlaut mikil meiðsli og var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann svo lést í hádeeinu í gær. -JGH. Bandalag jafnaðarmanns ætlar að reynast hið rétta herti. LOKI Stefna Sjálfstæðisflokksins í kosningunum: Eign fyr- ir alla — eitt meginmarkmiðanna Kosningayfirlýsing Sjálfstæðis- flokksins var kynnt á blaðamanna- fundi í gær og ber hún yfirskriftina Frá upplausn til ábyrgðar. Þar er megináhersla lögð á að ná verðbólgunni niður með samstilltu átaki og að rikiö gangi á undan með því að draga úr eyðslu sinni og skatt- heimtu. Skráning gengis sé miðuð við stöðu atvinnuvega og jafnvægi í milliríkjaviðskiptum. I yfirlýsingunni kemur og fram að eign fyrir alla sé og verði megin- markmiö Sjálfstæðisflokksins. Þannig fái þeir 80% lán sem eru að eignast sína fyrstu íbúð. Tekjustofn- ar Byggingarsjóðs ríkisins verði einnig efldir verulega. Flokkurinn vill að tekjuskattur á almennar launatekjur verði a&ium- inn, jafnframt því sem persónufrá- dráttur nýtist Iáglaunafólki að fullu. Eignarskattur á íbúðir verði lækkaður. I stað þess að atvinnu- fyrirtæki greiði í opinbera fjár- festingarsjóði verði heimilað að leggja hluta hagnaðar í eigin fjár- festingarsjóði. -pÁ. Hætta stuðningi við Bandalag jafnaðarmanna Bandalag Suðumesja og Bandalag Kópavogs, sem lýst höfðu yfir stuðn- ingi við Bandalag jafnaðarmanna, hafa nú hætt viö að styöja lista Bandalagsins í komandi kosningum. Ástæðan er sú að lista þeim er upp- stillingarnefnd félaganna tveggja lagöi fram, var hafnað af miðstjórn Bandalags jafnaðarmanna og lagði miöstjómin fram eigin lista, sem ekki er skipaður fólki úr fyrmefnd- um félögum. „Þessi vinnubrögð ero ekki nógu lýðræðisleg að okkar mati,” segir Loftur Þorsteinsson verkfræðingur, en hann skipaði efsta sæti þess lista, sem hafnað var. Loftur sagði aö þetta sé spuming um vinnubrögð og greinilegt sé aö miðstjóm Bandalags jafnaðarroanna hafi haft annaö mat á bæði vinnubrögðum og einstakling- um en uppstillingamefnd félaganna. Talið er líklegt að félögin tvö muni gefa út yfirlýsingu á næstunni, þar sem þau hvetjl stuðningsmenn sína til að styöja ekki lista miðstjómar- innar í komandi kosningum. -SþS Gluggar eru nú komnir i veggskreytinguna. DV-mynd: Einar Ólason. Gluggar skornir í verölaunamálverk „Það er alveg furðulegt að sömu menn og veittu stúlkunni verðlaun skuli hafa samþykkt þetta,” sagöi reiður Seltimingur í samtali við DV. Urgur er nú í ýmsum á Nesinu vegna glugga sem skornir hafa verið í skemmuvegg einn langan. Á veggnum er nefnilega stærsta málverk á Islandi. Gluggamir eru í því miðju. Tvær 17 ára gamlar skólastúlkur á Seltjamarnesi máluðu vegginn sumarið 1976. önnur þeirra, Fríða Gísladóttir, hafði sigrað í samkeppni sem efnt var til í skólum bæjarins, um skreytingu á vegginn. Skreiðargeymsla Isbjarnarins var í húsinu þegar myndin var máluð á vegginn. Nesval keypti síðan skemm- una og ætlaði að innrétta þar vöro- markað. Þegar leyfi fengust ekki til slíks var skemman seld Pétri Snæland hf. og saltfiskverkuninni Hilmi hf. I þeim hluta sem gluggarnir eru á er Pétur Snæland nú að innrétta aðstöðu fyrir starfsemi fyrirtækisins. „Þessi mynd var sett til bráða- birgða, til að fá léttleika yfir vegginn,” sagði Sigurgeir Sigurðsson, bæjar- st jóri Seltjarnamess. „Þessi húsveggur hafði farið mjög í taugarnar á okkur. Hann blasti mjög við þegar komið var innan frá Reykja- vik. Annað sjónarmið er komið upp núna. Búið er að breyta nýtingu hússins. Þama er komið verkstæði á tveimur hæðum. Jafnvel verður þarna verslun í endanum. Síðan er líka fyrirhugað að byggja handan Nesvegarins töluvert hærri hús þannig að þetta verður ekki sá staður sem áður var. Þetta kemur ekki til með að blasa eins við. En vitan- lega er eftirsjá að myndinni sem slíkri,”sagðiSigurgeir. -KMU. Svona leit veggurinn út sumarið 1976.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.