Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1983, Síða 40
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 1983.
Efstir hjá
Bandalagi
jafnaðarmanna
Bandalag jafnaöarmanna hefur nú
ákveðið framboðslista í öllum kjör-
dæmum. Þessir eru í fjórum efstu
sætunum í þeim kjördæmum sem DV
hefur ekki þegar birt iistann í:
Reykjavík: 1. Vilmundur Gylfason,
Reykjavík, 2. Kristín S. Kvaran,
Reykjavík, 3. Stefán Benediktsson
Reykjavík, 4. Jónína Leósdóttir,
Reykjavík. Reykjanes: Guðmundur
Einarsson, Kópavogi, 2. Þórður H.
Olafsson, Reykjavík, 3. Ragnheiður
Ríkharðsdóttir, Mosfellssveit, 4.
Pétur Finnsson, Grindavík. Vestur-
Iand: 1. Kristófer Már Kristinsson,
Reykholti, 2. Carmen Bonits, Borgar-
nesi, 3. Hrönn Ríkharðsdóttir, Akra-
nesi, 4. Hjörleifur Kristjánsson
Olafsvík. Vestfirðir: 1. Kristján
Jónsson, Reykjavík, 2. Lúðvík
Helgason, Tálknafirði, 3. Guðni
Kjærbo, Kjúku, Strandasýslu, 4.
Helgi Sæmundsson, Isafirði. Norður-
land vestra: 1. Þorvaldur Skaftason,
Skagaströnd, 2. Ragnheiður Olafs-
dóttir, Skagafirði, 3. Sigurður Jóns-
son, Akureyri, 4. Valtýr Jónsson,
Siglufirði. Austurland: 1. Grétar
Jónsson, Stöðvarfirði, 2. Samúel Ingi
Þórisson, Seyðisfirði, 3. Þorlákur
Helgason, Selfossi, 4. Ami Róberts-
son.Vopnafirði. -JBH.
Söfnun SÁÁ:
NÝ HRINA
SÁA mun á næstunni senda út
gjafabréf til allra karlmanna á
landinu á aldrinum 20 tU 30 ára. Áður
hafði öllum karlmönnum á aldrinum
30 til 70 verið sent gjafabréf að upp-
hæö 1800 krónur. I aldurshópnum 20
til 30 ára eru um 25 þúsund manns.
Að sögn Valdimars Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra fjársöfnunar-
innar, er ástæðan fyrir þessari aukn-
ingu sú að mikillar óánægju gætti
meðal manna í þessum Eddurshópi aö
fá ekki að taka þátt í söfnuninni.
Sagði Valdimar að söfnunin gengi
„ljómandivel.” -OEF.
Banaslys
Níu ára dengur lést á sjúkrahúsinu
á Akureyri um hádegisbilið í gær af
völdum meiðsla sem hann hlaut í
umferðarslysi fyrr um morguninn.
Atvik voru þau að drengurinn, sem
var á reiðhjóli, kom út af bílastæði
Glerárstöðvar OLIS við Tryggva-
braut og lenti í hliðinni á olíubíl, sem
ók vestur eftir Tryggvabrautinni.
Drengurinn hlaut mikil meiðsli og
var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri
þar sem hann svo lést í hádeeinu í
gær. -JGH.
Bandalag jafnaðarmanns
ætlar að reynast hið rétta
herti.
LOKI
Stefna Sjálfstæðisflokksins í kosningunum:
Eign fyr-
ir alla
— eitt meginmarkmiðanna
Kosningayfirlýsing Sjálfstæðis-
flokksins var kynnt á blaðamanna-
fundi í gær og ber hún yfirskriftina
Frá upplausn til ábyrgðar.
Þar er megináhersla lögð á að ná
verðbólgunni niður með samstilltu
átaki og að rikiö gangi á undan með
því að draga úr eyðslu sinni og skatt-
heimtu. Skráning gengis sé miðuð
við stöðu atvinnuvega og jafnvægi í
milliríkjaviðskiptum.
I yfirlýsingunni kemur og fram að
eign fyrir alla sé og verði megin-
markmiö Sjálfstæðisflokksins.
Þannig fái þeir 80% lán sem eru að
eignast sína fyrstu íbúð. Tekjustofn-
ar Byggingarsjóðs ríkisins verði
einnig efldir verulega.
Flokkurinn vill að tekjuskattur á
almennar launatekjur verði a&ium-
inn, jafnframt því sem persónufrá-
dráttur nýtist Iáglaunafólki að fullu.
Eignarskattur á íbúðir verði
lækkaður. I stað þess að atvinnu-
fyrirtæki greiði í opinbera fjár-
festingarsjóði verði heimilað að
leggja hluta hagnaðar í eigin fjár-
festingarsjóði. -pÁ.
Hætta
stuðningi
við Bandalag jafnaðarmanna
Bandalag Suðumesja og Bandalag
Kópavogs, sem lýst höfðu yfir stuðn-
ingi við Bandalag jafnaðarmanna,
hafa nú hætt viö að styöja lista
Bandalagsins í komandi kosningum.
Ástæðan er sú að lista þeim er upp-
stillingarnefnd félaganna tveggja
lagöi fram, var hafnað af miðstjórn
Bandalags jafnaðarmanna og lagði
miöstjómin fram eigin lista, sem
ekki er skipaður fólki úr fyrmefnd-
um félögum.
„Þessi vinnubrögð ero ekki nógu
lýðræðisleg að okkar mati,” segir
Loftur Þorsteinsson verkfræðingur,
en hann skipaði efsta sæti þess lista,
sem hafnað var. Loftur sagði aö
þetta sé spuming um vinnubrögð og
greinilegt sé aö miðstjóm Bandalags
jafnaðarroanna hafi haft annaö mat
á bæði vinnubrögðum og einstakling-
um en uppstillingamefnd félaganna.
Talið er líklegt að félögin tvö muni
gefa út yfirlýsingu á næstunni, þar
sem þau hvetjl stuðningsmenn sína
til að styöja ekki lista miðstjómar-
innar í komandi kosningum.
-SþS
Gluggar eru nú komnir i veggskreytinguna. DV-mynd: Einar Ólason.
Gluggar skornir í verölaunamálverk
„Það er alveg furðulegt að sömu
menn og veittu stúlkunni verðlaun
skuli hafa samþykkt þetta,” sagöi
reiður Seltimingur í samtali við DV.
Urgur er nú í ýmsum á Nesinu vegna
glugga sem skornir hafa verið í
skemmuvegg einn langan. Á veggnum
er nefnilega stærsta málverk á Islandi.
Gluggamir eru í því miðju.
Tvær 17 ára gamlar skólastúlkur á
Seltjamarnesi máluðu vegginn
sumarið 1976. önnur þeirra, Fríða
Gísladóttir, hafði sigrað í samkeppni
sem efnt var til í skólum bæjarins, um
skreytingu á vegginn.
Skreiðargeymsla Isbjarnarins var í
húsinu þegar myndin var máluð á
vegginn. Nesval keypti síðan skemm-
una og ætlaði að innrétta þar vöro-
markað. Þegar leyfi fengust ekki til
slíks var skemman seld Pétri Snæland
hf. og saltfiskverkuninni Hilmi hf. I
þeim hluta sem gluggarnir eru á er
Pétur Snæland nú að innrétta aðstöðu
fyrir starfsemi fyrirtækisins.
„Þessi mynd var sett til bráða-
birgða, til að fá léttleika yfir vegginn,”
sagði Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
st jóri Seltjarnamess.
„Þessi húsveggur hafði farið mjög í
taugarnar á okkur. Hann blasti mjög
við þegar komið var innan frá Reykja-
vik.
Annað sjónarmið er komið upp núna.
Búið er að breyta nýtingu hússins.
Þama er komið verkstæði á tveimur
hæðum. Jafnvel verður þarna verslun í
endanum. Síðan er líka fyrirhugað að
byggja handan Nesvegarins töluvert
hærri hús þannig að þetta verður ekki
sá staður sem áður var. Þetta kemur
ekki til með að blasa eins við. En vitan-
lega er eftirsjá að myndinni sem
slíkri,”sagðiSigurgeir. -KMU.
Svona leit veggurinn út sumarið 1976.