Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Page 6
DV. MIÐVHCUDAGUR 20. APRÍL1983. 6 Riminl-ströndm er alltaf vinsælust Á undanfömum árum hefur þaö áþreifanlega sannast hvílíkra vin- sælda hin eldfjöruga Rimini-strönd á að fagna. Þangaö flykkjast íslendingar í stórum hópum og stemmningin er frá- bær hvern dag, enda leitun aö hressi- legri sumarleyfisstað. Islendingar hafa komiö sér vel fyrir á Rimini meöal milljóna annarra feröamanna og þrátt fyrir stóra strönd og mikiö rými heldur landinn iöulega hópinn, sleikir sólskiniö í sameiningu og kann- ar fjölbreytt næturlífiö í smáum og stórum flokkum. Borgin sjálf telur um 150.000 íbúa og er hinn eiginlegi kjami þessa sumar- leyfisstaöar. Ut frá henni teygir sig tug- kílómetralöng strönd, fögur, breiö og sérstaklega aögmnn og því hentug fyrir börnin. Meðfram henni hafa risiö hótel og íbúöabyggingar, veitingahús, skemmtistaöir, næturklúbbar, diskó- tek, leikvellir, sundlaugar, hjóla- skautavellir, minigolfvellir, skemmti- garöar, tívolío.fl. o.fi. Verslanirskipta þúsundum og á útimarkaði og í stór- mörkuðum borgarinnarmá gera sann- köiluð reyfarakaup. Til lengri eöa styttri ferðalaga er tilvaliö aö leigja sér bíla, vespur eöa önnur mótorhjól, reiöhjól og fleiri hentug farartæki. Möguleikarnir em því ótæmandi aö ógleymdum skipulögðum skoöunar- feröunum sem ávallt njóta mikilla vin- sælda. En leitum ekki langt yfir skammt. Rimini borgin sjálf á sér langa og merkilega sögu og bera henni vitni fjölmargar fornminjar og minnis- merki t.d. Ágústusarboginn, Tíberí- usarbrúin og Malatestakirkjan. Á dýrðardögum hins mikla keisaraveldis Rómverja lék borgin þýöingarmikiö hlutverk og má víöa út frá Ágústusar- boganum finna háa veggi — leifar borgarmúra sem í eina tíö vom til verndar á viösjáverðum tímum. ENGINN SP YR ADALDRI Kynslóðabilið er óþekkt hugtak á Rimini-ströndinni. Börn og fullorðnir finna sér endalaust ný og spennandi viðfangsefni saman eða sitt í hvom lagi. Þegar kvölda tekur em bömin hvarvetna velkomin enda hefurRimini ávallt átt sérstökum vinsældum aö fagna meöal fjölskyldufólks. Hvar- vetna er aö finna fjölbreytilegt yfir- bragö heimsmenningarinnar. Á hverju horni er krökkt af kátu fólki úr öllum heimsálfum. Sirkussýningar, leiksýn- ingar og hljómleikar eru tíöir viö- burðir. Erlendir listamenn meö spenn- andi uppákomur í pokahorninu skjót- ast á milli skemmtistaöa og nær allan sólarhringinn iöa göturogtorg af lífi og fjöri. Og síst má gleyma undirstöðu allrar vellíðunar og ánægju, matnum. Veit- ingahúsin á Rimini em engu lík. Þar má fá fyrsta flokks fiskrétti, stórar steikur, ósviknar ítalskar pizzur eöa spaghettirétti, — allt boriö fram af al- kunnri þjónustulipurö og glaðværö Itala. Þú velur á milli stórra veitinga- staöa, lítilla veitingastaöa, fínna veit- ingastaöa og „snack” staöa og verður aldrei fyrir vonbrigðum. Viö bendum þó sérstaklega á La Traviata, veitinga- staöinn eldfjöraga á Riccione. Þar hafa Islendingar eignast sinnstað, lesa matseöilinn á íslensku og hrífast með í léttum söng, glaumi og gleði sem ávallt er ríkjandi. SKRIFSTOFA SAMVINDIUFERDA- LANDSÝNAR Aðalskrifstofa fararstjóranna við hliö Rialto hótelsins í Riccione er opin alla virka daga. Þar liggja íslensk blöð ogfréttaskeyti frammi og fararstjórar veita þar upplýsingar og fyrirgreiöslu sem óskaö er eftir. Fararstjórar hafa einnig skrifstofu í Bonini-húsinu sem er ejnkum hugsuö sem upplýsingamiöstöð fyrir farþeg- ana á Rimini-ströndinni. NÝJUNG FYRIRBÖRN Bamadagskrá og barnafararstjóri. Þessi bráöskemmtilega nýjung Sam- vinnuferöa-Landsýnar hitti sannar- lega í mark á Rimini sl. sumar. Lík- lega hefur jafnstór hópur íslenskra barna aldrei skemmt sér jafnvel sam- an á erlendri gmnd og tekið jafnríku- lega þátt í leik og áhyggjuleysi sólar- strandarinnar. Meö fjölbreyttri dag- skrá og hlýlegu viömóti vann barna- fararstjórinn hugi oghjörtu hinna smá- vöxnu ferðalanga og jafnframt traust þeirra f jölmörgu foreldra sem nutu að- stoöar hans. Auk leikvalla, sundlauga og leiktækja var boöiö upp á heimsókn í tívolí, smábílakappakstursbrautir, sædýrasöfn og síðast en ekki síst Italia in Miniatura og skemmtigarðinn Fia- bilandia. Garðurinn Italia in Miniatura ereins og Italíuskaginn aö lögun og þar er aö finna í smækkaöri mynd allar helstu borgir Italíu, merkustu byggingar, fjöll, dali, ár og vötn o.s.frv. Fiabil- andia er nokkurs konar Disneyland Rimini. Þar er að finna dæmigert indíánaþorp og þorp villta vestursins. Mississippi báturinn siglir um vötnin og tekur gesti undralandsins meö í ferðina. Á kvöldin fer fram í Fiabil- andia stórkostleg ljósasýning meö aö- stoð vatnsorgels. Aö auki stóö fararstjórinn fyrir leikj- um á ströndinni og bauð upp á opið hús bæði í RiminiogRiccioneþarsem böm og unglingar komu saman, kíktu í bók, spjölluöu um lífið og tilveruna og treystu kunningsskapinn sem hinn sameiginlega dagskrá stuðlaöi að. Hin góða reynsla af Rimini-ferðum síðustu þriggja ára hvetur Samvinnu- feröir-Landsýn til frekari dáða og aö sjálfsögöu veröur bamafararstjórinn til taks á þessu ári, bömunum til óblandinnar ánægju. ÍBUDIR - HÓTEL Gististaðir Samvinnuferöa-Landsýn- ar á Rimini eru fjölmargir en standa Fhtgferáir-ísleiðir hjóða fítsi verð þrátt fyrir genyissig Flugferöir-Isleiðir í Reykjavík er umboðsaöili þýsku járnbrautanna á Islandi og býður sérstaka ferðapassa sem gildir í allar jámbrauÚr V- Þýskalandsántakmarkana. Þettaer ferðamöguleiki sem margir kynnu aö hafa áhuga á en passarnir em ýmist gildir í 9 eöa 16 daga í senn. Með þessu móti er unnt aö ferðast um Þýskaland þvert og endilangt fyrir mun minna fé en margan gmn- ar. Ferðaskrifstofan Flugleiðir-Is- leiöir mun bjóöa ferðir í haust til Thailands, Brasilíu og Egyptalands, auk feröar til Lancjsins helga. Af öllu því úrvali ferða sem boönar em má t.d. nefna rútuferðir um Bandaríkin meö Gray Hound langferðabílum. Mallorca Flugferðir-Isleiðir bjóða upp á Hótel Trianon á Magaluf-ströndinni á Mallorca. Þar eru tvær einkasund- laugar, barir, veitingastaöir og gengiö beint úr sundlaugunum út í sandinn og sólina við sjóinn. Boðin er sérstök hóteldvöl með fæði, sérstak- ar golfferöir meö dvöl á lúxushótel- inu Rey Don Jaime í Santa Ponsa. Grikkland Boðiö er upp á ferðir og dvöl á glæsilegum loftkældum hótelum meö morgunverði og kvöldmat á Aþenu- skaganum í Grikklandi. Einnig eru boðin íbúðahótel, án fæðis en með mjög góðri þjónustuaðstöðu fyrir gesti. Rúmgóöar setustofur, gesta- móttaka og veitingastaðir em i sér- flokki. Þessar glæsilegu íbúöir munu vera þær einu á öllum Aþenuskagan-' um meö einkasundlaug í hótelgaröin- um en örstutt er á vinsælar baö- strendur. Boöiö er upp á fjölbreyttar skemmti- og skoöunarferðir um sögufrægar byggðir Grikklands og út í eyjarnar. Aöeins 20 mínútna akstur er til Aþenu þar sem skemmtanalíf iö er ógleymanlegt, aö ekki sé minnst á fomminjar. Franska Rivieran Boöiö er upp á ferö og dvöl á glæsi- hótelum eöa ódýrum fjölskylduhótel- um auk lúxusíbúða á ströndinni á milli Nizza og Cannes. Á þessum slóöum voru einungis filmstjörnur og auökýfingar fyrir nokkrum ámm en nú hafa Islendingar bæst viö og sækja á.aðsagter. Malta er stundum kölluð Sælueyja Jóhannesar riddara. Þangaö býöur ferðaskrifstofan Flugferðir-Isleiöir sérstakar fjölskylduferðir meö skipulögðum hópferöum og er um- talsverður afsláttur fyrir böm. Allar feröir Flugferða-Isleiöa em á föstu veröi óháð gengisbreytingum eftir aö þær hafa verið pantaðar. Polaris í Reykjavík býöur athyglis- verðan ferðamöguleika sem er í því fólginn að fara um Bandaríkin þver og endilöng og fyrir smávægilegt auka- gjald er unnt aö bæta annaðhvort Kan- ada eða Mexíkó viö. Polaris er, sem kunnugt er, umboösaðili Pan Ameri- can Airlmes á Islandi, en þessar hringferöir um Bandaríkin eru meö Republic Airlines. Þaö félag mun eiga stærsta flotaDC9farþegaþotna sem um getur hjá einu félagi. Fjórtán daga hringferöin kostar 350 dollara en fyrir aukagjald, 50 dollara, er hægt aö bæta Mexíkó eöa Kanada við ferðina. Til Bandaríkjanna er flogiö meö hvaöa félagi sem er, frá Islandi sennilegast með Flugleiöavél til New York. Farmiðinn er bókunargildur hvaöa dag sem er, hvar sem er og hjá hvaöa félagi sem er og er ekki takmarkaður viö nein sérstök flugnúmer, þ.e. kvöld- flug eða dagflug. Hægt er að fljúga til eins staöar, nota lest eöa bíl og fljúga frá hvaöa öörum staö sem er, ferða- langnum er algjörlega í sjálfsvald sett hvemig hann hagar ferðinni, miðinn gildir fyrir allt flug innan Bandaríkj- anna í 14 daga. Þeir em ekki fáir Evrópubúarnir sem hafa á undanförnum árum upp- götvaö þennan sérstaka og ódýra ferðamáta. Margir hafa gaman af því að ferðast skipulagslaust eða skipu- leggja einungis einn eöa tvo daga í einu. Fyrir þá er þetta kjörinn ferða- máti og sennilega er ekki unnt að sjá meira af Bandaríkjunum á 14 dögum meö neinni annarri aöferö. Polaris býöur einnig aðrar ferðir meö svipuöu sniði á mjög hagstæöu verði, t.d. er flugmiði sem gildir í 60 daga, mánaðarmiöi sem gildir í öllum áætlunarferðum Republic innan Bandaríkjanna og kostar einungis 340 dollara. Miðinn er þó ekki bókunargild- ur sem þýöir aö viðkomandi fær því aöeins far aö pláss sé ónotað í fluginu. Til að koma í veg fyrir misskilning skal þess sérstaklega getiö aö verö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.