Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Side 18
18 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. APRtL 1983. Ferðast með langferðabilum ogMsEddu Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónas- sonar býður athyglisverða ferð sem hún kallar „alíslenska Bretlandsferð eftir nýja veginum”. Farin er ferð um Bretland með nýtísku langferðabíl frá fyrirtækinu. Ferðin hefst 1. júní. Þá koma farþegar í Borgartún( 34 kl. 21.30, ekið er til skips í Sundahöfn og þaöan er brottför á miönætti. Um borö er gist í 2ja hvílu klefum. Skipið er aö sjálfsögðu Ms Edda. Fæði um borð er ekki innifalið í verði ferðarinnar en völ er á sjálfsafgreiðsluveitingasal eða veitingasal þar sem þjónar eru, auk þess sem um borð eru bæði dansstaðir og vínstúkur. Komið er til Newcastle laugardaginn 4. júní kl. 10 árdegis. Laugardeginum er varið til skoðunar í Newcastle og gist er þar um nóttina. Á sunnudaginn hefst svo hringferö um Bretland og Skotland. Fyrst er haldið í suðurátt til York sem er þekkt hérlend- is vegna nýlegra frétta um mikinn upp- gröft víkingaminja. Frá York er haldiö í vesturátt og til vatnahéraöa,nna og gist tvær nætur í borginni Carlisle. Þaðan er svo farið í norðurátt til Skotlands. Gist er tvær nætur í Glasgow og farið' til Loch Lomond. Næsti áfangi er Edin- borg. Ekið er um Stirling og gist tvær nætur í Edinborg. Laugardeginum geta farþegar varið að vild til aö versla eða skoða sig um, hvílast eöa hvaö sem er. Á sunnudag er ekið til Newcastle og gist síðustu nóttina á Bretlandi. Mánudaginn 13. júní er brottför frá Newcastle á hádegi meö Ms. Eddu og komið til Reykjavíkur kl. 20 þann 15. júní. Gisting í Bretlandi er á 4ra og 5 stjömu hótelum og er innifalinn bæði morgunverður og kvöldverður. Leiösögumaður er íslenskur og aö sjálfsögöu þaulkunnugur bæði hvaö varðar Bretland og sögu þeirra staða sem komið er til. Þessi tveggja vikna ferð er á mjög hagstæðu verði. TVEGGJA VIKNA FERDIR TIL SVISS Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónas- sonar býður tvær tveggja vikna hópferðir með langferðabíl um Sviss á þessu sumri. Brottför verður 5. júní og 21. ágúst með Ms Eddu til Bremerhav- en. Ferðunum er skipt í tvo hluta, annars vegar er 6 daga skemmtiferð um fjallalandið sem kallast „Zúrich til Zúrich” en þá er ekið frá Zúrich til Appenzell um Toggenburg, skoðuð hin dæmigerðu svissnesku fjallaþorp með sérstakri húsagerð, en eitt þeú-ra er hiö fræga Heidi á leiðinni til Lenzer- heide. Allar nætur er gist á góðum hótelum, hvert herbergi með baði og innifalið er hálft fæði, þ.e. morgunverður og kvöldverður. Næsta dag er ekiö frá Appenzell um Julier- skarðiö, í tæplega 2300 metra hæö, yfir til St. Moritz. Þessi leið er talin ein sú hrikalegasta og fegursta á þessum slóðum. Síðdegis er ekið um Maloja- skarðið og niður að Comovatninu á Italíu og snúið við til Sviss og komið til borgarinnar Lugano undir kvöldið. Þriðja daginn er ekið frá Lugano um St. Gotthard-skarð og áfram um Furkaskarö í 2430 metra hæð upp við Rhone-jökuúnn og síðdegis er ekið um Rhonedahnn tú Montraux og Lausanne. Fjórða daginn er farið frá Lausanne um Gruyéredalinn, sem aðdáendur svissneskra osta ættu að kannast við, og síðdegis komið til borgarinnar Bem sem er höfuðborg Sviss. Þar er margt áhugavert að skoöa en aö því loknu er ekiðtú Thun. Fimmta daginn er haldiö frá Thun til Lauterbrunnen og komið við hjá Trúmmelbach-fossunum en síðan haldið til Grindelwald. Hugsanlega verður farið í skoðunarferð með f jaúa- kláfferju upp á tind Jungfraujoch sem er í tæplega 3500 metra hæð en það fer eftir loftslagsskilyrðum. Síödegis er ekið til Brienz og skoðað frægt tréskurðarverkstæði en síðan haldið tú Vitznau á bakka Lucemevatnsins. Sjötta og síðasta daginn er farið með togbraut upp á fjalhð Mount Rigi með útsýni yfir miðbik Sviss. Síðan er ekiö af stað til Lucerne og komið þar um miðdegið. Eftú- miðdegisverð og skoðunarferð um borgina er haldið tú Zúrich og komið þangað um hálfsex síðdegis. NÆSTA VIKA UPPÁ EIGIN SPÝTUR Eins og áöur sagöi em þessar ferðir skipulagðar með nokkuö nýstárlegum hætti. Síðari vikan er ætluö tú dvalar á lúxushóteli, Strand- + Golf-Hotel sem er á bakka Thunvatns í einum fegursta fjalladal Sviss, Berner Oberland. I þessum dal em vötnin Thunersee og Brienzersee og er hann sannköúuð paradís ferðamanna með baðströnd- um, bátalægjum, skemmtilegum kaffi- og veitingastöðum meðfram vatns- bökkunum, auk þess sem togbrautir liggja upp á mörg fjallanna umhverfis vötnin. Hægt er að kaupa vikukort sem gúdir sem greiðsla í öllum ferðum á þessu svæði. Hægt er aö leigja seglbáta eða fara í bátsferðir á vötnunum, hægt er að leigja sér bíl og aka um þetta stórkostlega fjaúaland eftir skemmti- legum sveitavegum og njóta fegurðar landsins, blómaskrúðsins og fjöl- breytts dýralífs. I næsta nágrenni eru sérstakir heúsubaðstaðir og f jaúaþorp með sínum séreinkennum. Á kvöldin eru dansleikir á hótelunum, tennisvell- ir og önnur aðstaöa til hreyfingar, auk þess sem hægt er aö bregða sér á leiksýningu eða tónleika. Að vikunni Iiðinni er farið með lang- ferðabú frá Guömundi Jónassyni til Bremerhaven og siglt meö Ms Eddu heim. Hópferð á í Vínarborg Ferðaskrifstofan Farandi í Reykjavík efnir tú hópferðar á Vínarhátíðina í Vinarborg, en hún er haldin dagana 7. maí tú 12. júní. Ferð Faranda stendur hms vegar dagana 2. tú 9. júní. Vínarborg er ein helsta miðstöð tónUstar í veröldinni, auk þess að vera hrífandi fögur, með byggingar sem teljast tú þess markverðasta í sögu byggir.gar- Ustarinnar fyrr og síöar. Tú þess er tekið hve fallegt er í Vínarborg á vorin. Miðborgin stendur að hluta tú óbreytt frá miðöldum og eru menningarstofnanir þar margar svo sem Burgtheater, Theater an der Wien, Ríkisóperan, Stefáns- dómkú-kjan og fleiri og fleiri. Það eru um 2000 ár síðan Rómverjar völdu bæjarstæði í kvos umkringdri skógi vöxnum hæðum sem nú kallast Vínarhæðir. Saga Vínarborgar er bæði mikil og merki- leg enda hefur borgin öldum saman verið ems konar hliö á múU austurs og vesturs og því mikið á henni mætt eins og að líkum lætur. Hvernig fólk upplifU- Vínarborg er sagt vera undir hverjum og einum komið, hægt er að uppUía borgrna á marga mismunandi vegu. Vín er borg valsanna og valsakónganna, heimsborg með aldagamlar hefðir. Vín er borg óperunnar, borg mennUigar og lista og sem slík miðdepúl. VUiardrengjakórinn er aðeins eitt menningarfyrU-brigðið af mörgum sem þessi borg býður upp á. Að sjálfsögðu er Vínarborg höfuð- borg Austurríkis og sem slík er húr. áberandi á spjöldum veraldarsög- unnar en hún hýsir einnig erna múljón íbúa, hún er viðskiptamið- stöð, þingstaður og aðsetur margra alþjóðlegra stofnana. Vínarhátíðin Hér verður ekki greint frá dagskrá tónUstarhátíðarinnar í Vínarborg en nokkur nöfn gefa ef til vúl nægúega til kynna hvað þar verður um aö vera. Dagskráin er aftur á móti afhent hjá ferðaskrifstofunni Faranda í Lækjargötu. Meðal þeirra nafna sem við rekum auguníeru: Vínarfúhannóníuhljóm- sveitin, stjórnandi Lorrn Maazel, einleikari Daniel BarenboUn, Haydn tríó, einleikarar Wolgang Schulz og Yvonne Minton, VUiardrengjakórinn ásamt Vínarsinfóníunni, Vínar- kammersveitin undir stjórn PhiUppe Entremont og einleikari Alicia De Larrocha ásamt Hermann Bau- mann. Vladimir Askenazy, Alban Berg kvartettinn. Þetta er aðeins ör- lítið brot af því sem þarna verður á dagskrá að ekki sé minnst á óperusýningar, ballettinn og leiksýningamar. Feröaskrifstofan Farandi býður þessa Vínarferö á mjög hagstæðu verði og hægt er að panta aögöngumiða hjá Faranda en vegna mikúlar aðsóknar í Vínarborg er vissara fyrir þá, sem hug hafa á, að gera sem fyrst ráðstafanir til að útvega sér aðgöngumiða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.