Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Síða 21
DV.MIÐVIKUDAGUR20. APRÍL1983. á sem ferðast í bíl erlenúis rough Whitby 30miles 4kmsPÍC#kerÍn9c Scarborough Bridlington • York liggur með fljótinu og yfir á brú og er leiðin vel merkt Luxembourg. Er farið yfir fljótið og í áttina til Lux. Landa- mærabrú skilur löndin. Frá brúnni er haldið til Greve- machen í Lux, og er leiðin vel merkt til Luxembourgar. Farið er framhjá flug- vellinum í Lux á leiðinni til borg- arinnar. Tjaldsvæði eru tvö í borginni en fólki er ráðlagt að tjalda frekar í Esternach, sem er upp af götunni frá tjaldsvæðinu. Síðan er ekið aftur til Trier og þaðan inn á Autobahn, sem fylgt er til baka um Koblenz og Hannover. Gert er ráð fyrir öörum möguleika, en það er að aka yfir Liineborgarheið- arnar, þar sem er mjög fagurt, og til Liibeck. Þaöan er ekið um Hamborg til Bremerhvaen. Við akstur skulu menn hafa það í huga aö rétt er að fylgja veg- vísum á Autobahn-hraðbrautunum þannig, að ef maöur ætlar aö sleppa 'stórborg, þá fer maður að líta eftir næstu stórborg á eftir, því þá ekur maöur ósjálfrátt framhjá miðborginni, og tafir verða engar. Maður, sem ætlar t.d. ekki að koma við í Köln, byrjar að líta eftir skilti með leiðinni til Bonn, þegar hann fer að nálgast Köln og þegar þar að kemur finnur hann rétta braut til Bonn. Sama skulu menn gera [t.d. þegar þeir nálgast Hamborg, þá á að aka veg merktan Bremen. Mælt er meö aö menn skoði sig um í Osnabriick og Munster. Síðarnefnda borgin er mjög skemmtileg. Göngugötur og umhverfið geymir hús frá miðöldum. Þetta er rólegur bær, en þar er ekkert tjald- svæöi. Þá þurfa menn endilega að skoða dómkirkjuna í Köln sem er ein fegursta kirkja Evrópu. Þótt 90% húsa í Köln skemmdust eða eyðilegðust í stríðinu, þá slapp kirkjan að mestu við skemmdir. Hún sést langt að, gnæfir yfir. I miðborginni er að finna vegvísa um Autobahn Bonn, og halda menn ótrauðir áfram ferðinni. Frá Bonn tekur við yndisleg leiö þar sem nóg er af tjaldsvæðum í fegursta umhverfi. Trier er mjög vinsæl borg. Langar göngugötur. Þið spyrjið um Porta Negra, sem er borgarhliö frá dögum Rómverja og er þaö elsta mannvirki Þýskalands. Mjög gott er að versla í Trier. Koblenz er í raun og veru tvær borgir. Flestir kunna betur við sig í eldri hlutanum. En þaö verður hveraöeiga við sig. Að lokum er sérstök athygli vakin á Liibeck, borg Hansakaupmanna. Þar standa fomar byggingar. Þetta er ógleymanleg borg, þeim er þar hafa komið. Akið inn í miðja borgina, í elsta hlutann. Nóg er af hótelum og tjald- svæðum, og í Liibeck er gott að versla. Nokkrar vegalengdir: Trier/Frankfurt 208 km Frankfurt/Hannover 352 km Hannover/Liibeck 288 km Liibeck/Bremerhaven 230 km Til þess að hagnýta feröaáætlun þessa, fylgir ökumaðurinn listanum yfir borgii-nar og vegvísum. Borgimar em í sömu röð á listanum og þær em í vegakerfinu, þótt stöku þorpi sé sleppt. Þetta er hugmynd að leið en auövitaö er öllum frjálst aö hagnýta sér hana semþóknast; Góða ferð. AKSTilt SM.m 5 BREMERHAVEN BURG Þetta er hringferð suður Þýskaland, til Austurríkis um Brennerskarð, þar sem farið er um Evrópubrúna, sem liggur yfir heilan dal. Þaðan er haldið suöur Italíu aö Gardavatninu, síðan til austurs til Rimini og Feneyja. (Þaðan er skammt til Lignano ef menn vilja fara þangað í leiðinni. Eins og hálfs tíma akstur). Síðan er ekið aftur til Innsbruck, svipaða leið. Frá Innsbruck er nú ekið til vesturs, mjög tiikomumikla fjallaleið í ölpunum, til Brenner, en þaðan er komið til Sviss. Ekið er um Ziirich og Basel, þaöan til Freíborgar í Þýzkalandi og síðan á þýsku hrað- brautunum. Þegar norðar dregur, er fariö um Luneborgarheiöarnar. Ef tími er til, er rétt að aka framhjá Hamborg, til Liibek og þaðan um Hamborg til Bremerhaven. Þó er gerður sá fyrirvari að ef veður er ekki gott; rigning er í Austurríki, þá er ekki eins skemmtilegt að aka f jalla- leiöina. Ekki svo að skilja að Austurríki sé viðsjárvert rigningarbæli, en ef hann rignir í Innsbruck, þá er sól Italíu- megin — og öfugt. Þá geta menn dvalið á svæðinu Garda, Bolzano, Brixen, sem eru yndisleg svæði, eöa farið um Miinchen á hraðbraut og um hrað- brautir til St. Gallen og Bodensee (stöðuvatn). Sérstök athygli er vakin á eftirtöldum borgum: Niirnberg og Miinchen í Þýskalandi. Þetta eru „auðveldar” borgir. Þið akið inn í mið- borgina eftir vegvísum og auðvelt er að komast út aftur eftir vegvísum um Autobahn til næstu borgar, sem er Miinchen I Numberg, en Innsbruck í Miinchen. Innsbruck er geysilega skemmtileg borg. Sér í lagi latínuhverfið. Þar eru langar göngugötur. Háskólinn er 300 ára. Þarna eru fornar byggingar, sem draga dám af því að Innsbruck var vöruleið milli Italíu og Þýskalands og borg blómlegra viðskipta allt frá mið- öldum. Margir kjósa, ef svo stendur á, aö gista í Þýskalandi, rétt innan við landamærin ef myrkur er að detta á. Menn eiga helst að koma inn í borgir að . degi til, það er auðveldara. Brixen, Bolzano og Gardavatnið. Borgirnar eru ítalskar og yndislegar, og við Gardavatniö er fjöldi hótela og tjaldsvæða. Feneyjum, Rimini og Lignanoþarf ekkiaðlýsa. Frá Innsbruck er farið til Bregenz um ógleymanlega fjallaleið. Neðst í dalnum er hraöbraut, en síðan tekur við þjóðvegur. I Bregenz er komið að hinu fagra Constansce vatni. Bregenz er héraðshöfuðborg (Bodensee). Ferðinni er haldið áfram til Ziirichk Allgott tjaldsvæði er í Ziirick á vatns- bakkanum. Fjöldi tjaldsvæða í lúxus- klassa er í Sviss, einkum við vötnin. Þaöan liggur siðan leiöin um Basel og 'til Freiborgar, en þangað verða menn endilega að koma. Það veröur flestum ógleymanlegt. Þið leggið bílnum sem næst miðborginni, en flestar götur eru göngugötur í elsta hlutanum. Þar er gott aö versla. Góð tjaldsvæði eru víða, en mælt er sérstaklega með Tunisee, sem er skammt noröan við borgina, ef farið er aftur inn á Autobahn.. Síðan liggur leiðin um fögur héruð og stórar borgir. Viö minnum á Heidel- berg, Qiirzburg og Fulda. Nokkrar vegalengdir: Feneyjar/Innsbruck 400 km Innsbruck/Bregenz 205 km Basel/Heidelberg 245 km Hcidelberg/Bremen 600 km Liibeck/Bremerhaven 230 km Til að hagnýta sér ferðaáætlun þessa fylgir ökumaðurinn listanum yfir borg- irnar og vegvísum. Listinn yfir borg- irnar er í sömu röð og þær eru í vega- kerfinu, þótt stöku þorpi sé sleppt. Þetta er hugmynd að leið, en auðvitaö er öllum frjálst að hagnýta sér hana að svo miklu leyti sem honum þóknast. Góða ferð. AKSTURSLEIÐ 6 Leið þessi er hraöbrautaleið og liggur um frægar borgir. Nöfnin eru ekki viðkomustaðir, heldur vegvísar, þótt vitaskuld ráði ökumaður því sjálfur, hvort hann vill hafa viðkomu eða ekki. Ef fólk ætlar ekki að fara inn í stórborg, þá er að fylgja vegvísum til næstu borgar á listanum. Til dæmis, þegar farið er að nálgast Bremen, birtist Hannover á skilti og þá fylgir maður Hannoverskiltinu, og þá ekur maður framhjá Bremen. Sama gildir um aðrar borgir á listanum. T.d. kemur skilti fyrir Innsbruck í Austurríki skömmu áður en komiö er «1 Miinchen í Þýskalandi. Sem sag( maður ekur ekki gegnum stórborgir, eða borgir, þegar feröast er á hraöbrautum, nema maöur ætli aö hafa þar viðkomu. Leiðin Uggur suður Þýskaland eins og kortið ber með sér. Farið er um Austurríki og um Evrópubrúna til Italíu. Leiöin liggur meöfram Garda- vatninu og til Rómar og Napólí, sem er endastöð. — Þar er snúiö við. Vakin er athygli á eftirtöldum borgum og stöðum og ennfremur á því aö skriflegar leiðbeiningar um hrað- brautaakstur má fá hjá feröaskrif- stofum. Staöir sem mælt er með eru merki- legar og „auöveldar” borgir. Þið akið inn í miðborgina Staotmitte/Centrum og vegvísar eru til borga þegar leitað er leiðar út úr borginni á ný. Mælt er þannig með viðkomu í Niimberg, Inns- bruck, Brixen, Bolzano, Gardavatninu (svæði) Florens, Róm, Napólí, Genova, Monaco, Milano, Salzburg, Heidelberg og í Svartaskógi, (Schwarzwald), sem teygir sig frá Freiburg til Baden-Baden. Þar sem skógurinn teygir sig yfir stórt svæði, þá spyrjið til vegar og finnið með því móti hentugan áningar- stað, miðað viðakstur og tíma. Ef tími er tii, þá komiö við í Liibeck, þar er gott að versla og þar að auki er þetta fornfræg borg. Skoðið ráðhúsið og kirkjuna. Því er sleppt hér að reyna aö lýsa borgum eins og Rómaborg og Vatíkan- inu, Péturskirkjunni og öllu því, en í stað þess gefnar leiðbeiningar um aöra staði og akstursleiðina. Þeir sem nota tjaldsvæði Camping ættu aö fá leiðbeiningar á bensínstöðv- um á hraðbrautunum, eða spyrja aðra ferðamenn til vegar á áningarstöðum í vegkantinum. Spyrjið sér í lagi fólk, sem er með hjólhýsi. Það er oftast ferðavant og getur leiöbeint — og gerir þaö. Tjaldsvæði eru merkt á vegakort. Stærð borga sést á vegakortinu. Stór- borg er skrifuð með stóru letri og oft eru upplýsingar um mannfjölda í borgum er tilgreindar eru með ákveðinni leturstærð 10—40.000 manna bæir eru bestir að margra mati. Þannig er t.d. ekki nauösynlegt að gista í Napólí, heldur í grennd við Possuoli (fæðingarbæ Soffíu Loren). Bæði er bærinn skemmtilegur og svo eru mótel í grenndinni og skammt til Napolí. Sama gildir um Rómaborg. Gott er að nátta í nágrenni stórborg- arinnar í útborg, og halda siðan inn í borgina IStémma morguns. Einnig er gott að éista í Brixert og Bolzano. Forðist að aka inn í ókunna stórborg síðdegis, eöa að kvöldlagi, nema þið hafi ákveðiö aösetur í huga. Það er erfiðara að finna góða gistingu en t.d. fyrirhádegið. Vakin er athygli á því að ekki er hraðbraut alla leið frá Napolí til Rómar. Þetta er einkar fögur leið. Oftast er hægt að panta gistingu fyrir- fram og veita ferðaskrifstofur upplýs- ingar og panta hótel, ef óskað er. Sú aögerð hefur kosti, — og ókosti. Kost- irnir eru þeir að maður getur gengið að gistingu, eða öllu heldur ekið að henni, en þá er í staðinn komin stíf áætlun. Hentugra er að panta gistingu fyrstu tvær næturnar — og þær síðustu í ferðinni. Og á einhverjum stað, þar sem maður vill hafa lengri viðdvöl. Góða ferö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.