Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Blaðsíða 23
DV. MIÐVKUDAGUR 20. APRIL1983 23 AKSTIJRSLEIB 8 Þessi leiö er hugsuð sem hraöbrautarleiö, mestan part. Borgar- nöfn eru ekki endilega nöfn á viökomu- stöðum, heldur heiti er birtast á veg- vísum, eftir því sem ferö ykkar miöar áfram. Þó er vakin athygli á ferjunni yfir Ermarsund. Þar er gert ráö fyrir Dover/Calais í Frakklandi. Ferðaskrif- stofur og Farskip eru meö sérsamn- inga viö Townsend Thoresen, sem reka margar stórar ferjur á þessari leiö, og því möguleikar á mjög hagstæðum far- gjöldum. Leiöin liggur suöur England, til Lundúna og þaöan í ferju í Dover. Leiöin um England liggur um fögur og sögufræg héruö og sá sem skoöar kort getur haft viðkomu á ýmsum stööum — og ekið svo inn í vegaleiðina aftur. Gert er ráö fyrir aö flestir muni eiga viödvöl í London. Muniö aö ef þið dveljiö þar nokkra daga er betra aö leggja bílnum á meðan og nota heldur almenningsfarartæki. Þaö gera allir. Sama gildir raunar um París. Talið er óþarft að lýsa þessum heimsborgum í þessum línum, en þó er vert aö nefna nokkra staöi sérstaklega, fyrirsunnan París og a síöari hluta leið- arinnar. Nefndar eru þær Lyon, Orange, Monaco, San Remo, Milano, Bellinzona, Luzern, Zttrich, Freiburg, Triberg í Svartaskógi, Heidelberg og Lttbeck. (Vísaö er til leiöa um England, varöandi þau svæöi sem ekið erumíEngland). Tjaldsvæði er víöa aö finna á leiðinni og eru þau merkt og þau er unnt aö finna í vegakortum, meö táknum. I vegkanti eru notuð tákn og ennfremur orðin Camping, Camp Site eöa Caravan Site. Odýrara er að gista í smærri borgum en stórum svona yfirleitt og vakin er athygli á Suöur-Frakkland áður en komið er aö Miöjaröarhafinu. Fyrir sunnan Lyon t.d. er fjöldi bæja, þar sem tiltölulega ódýrt er að gista og matast. Franska Rivieran, Cote De Azur á frönsku, er hin fagra strandlengja sem teygir sig frá Menton í austri til St. Tropez í vestri. Og helstu borgir og skemmtistaöir eru í Níce, Cannes og Antibes. Þar er vel séö um ferðamenn og þangaö fer auðugt fólk og frægðar- menn, eins og flestir vita. Þó byggja þessir staöir ekki einvörðungu á því fólki, þannig að allir eiga aö geta fundiö staöi viö hæfi. Oteljandi sundstaöir, baöstaöir, skemmtistaðir, næturklúbb- ar og spilavíti eru á þessari munaöar- fullu strönd, og við teljum Monaco meö. Vegna hins mikla íburðar sumra hótela er feröamönnum ráölagt aö fastsetja sér gistingu á þessum stað, eöa kynna sér verð, því mjög mikill verömunur er milli hótela og matstaöa. Þaö væri aö æra óstööugan að reyna aö leiöbeina feröamanni um Milano (Milan). Þar eru frægar kirkju, stór listasöfn og hallir. Miðborgin er lokuö bílaumferö, þar eru göngugötur. Bellinzona í Sviss er merkilegur bær við stööuvatn. Þú býrö í Sviss og borðar á Italíu. Þá er mælt með Zttrich, Freiburg og Triberg í Svarta- skógi (skammt frá Freiburg). Gott er aö versla í Liibeck, Bellinzona (ttalíu- megin) og einnig í Freiburg, þótt þaö sé einstaklingsbundiö hvað séu góö kaup. Þó er skynsamlegt að versla á síðari hluta leiöar af augljósum ástæöum. Góða ferö. WM élnU 83240 Ferðin hefst í Madam SOLKJÖLAR STRANDSLOPPAR BIKINI SUNDBOLIR Wímíam íitmt't 83240 Póstsendum um land allt Strandfatnaður á dömur á öllum aldri:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.