Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Side 33
White house íbúðir Ibúðirnar í White House eru í senn nýtískulegar og þægilegar. I þeim eru eitt eða tvö svefnherbergi, eldhús með öllum nauðsynlegum eldunartækjum og boröbúnaði, setustofa, baðherbergi og rúmgóðar svalir. Allar íbúðir eru loftkældar. White House stendur við strandgötuna sjálfa og ströndin er í örfárra metra fjarlægð. Hótel Margi House Hótel Margi House býður nýtískuleg herbergi sem öll eru loftkæld, búin bað- herbergi, síma, útvarpi og svölum. Rúmgóð setustofa, bar, spilaherbergi, sjónvarpsherbergi, veitingasalur og verslun auka enn frekar á vellíðan. I hótelgaröinum er sundlaug og stutt er til strandarinnar. Skoðunarferðir Efnt er til fjölda skipulagðra skoð- unarferöa um meginlandið og nálægar eyjar. Auövelt er einnig aö ferðast um Grikkland á eigin vegum og víst er um þaö að endalaust má finna sér skemmtilega og áhugaverða áfanga- staöi í siglingum og ökuferöum. Aþena I hálfs dags skoöunarferö um Aþenu er ekiö um miðborgina, framhjá leifum hins mikla Seifshofs og íþrótta- leikvanginum þar sem ólympíuleik- arn.'r voru endurvaktir eftir nær 1500 ára hlé. Ekiö er inn til aðaltorgs Aþenu, Syntagma, en þar stendur m.a. þinghúsið (fyrsta konungshöll hins frjálsa Grikklands) og gröf óþekkta hermannsins. Frá torginu er haldið niður Háskóla- götuna, með öllum sínum þekktu byggingum, niður að Omonia-torgi og síöan ekiö aö dómkirkjunni og þaðan að Philopappushæð meö ágætu útsýni yfir á Akrópólis og úthverfi Aþenu sem umlukin eru fallegum f jallahring. Og þá er komiö aö Akrópólishæðinni sjálfri, hinum fornhelga stað Aþenu- manna, með leifum bygginga frá gullöld Aþenu, 5. öld f.Kr. I noröurhlíö Akrópólis er elsta hverfi Aþenu, Plaka, Standa atltaf fyvhr sínu sem iöar af lífi og f jöri fram eftir nóttu en hvílist í friðsæld að degi til. Argo/is Þetta er heils dags ferð þar sem ekið er yfir á Pelopsskagann, land goð- sagna og töfra. Það var ekki fyrr en 1882 að sægur fornra minja uppgötv- aðist í Mykenu og í þessari hringferð um Argolishéraðið má nánast við hvert fótmál ganga fram á rústir og leifar ævafornrar búsetu. Viö ökum meö ströndinni til Kórinþu- ákurðar, skoðum gömlu Kórinþu og höldum áfram til Mykenu með Ljóna- hliðinu og grafhvelfingunum frægu. Áfram er ekiö til Argos, Naupliu, fyrstu höfuöborgar hins frjálsa Grikklands, og Epidavros, þar sem grískir harmleikir eru enn fluttir á hverju sumri. Þetta er best varðveitta leikhús Grikklands, feikistórt og enn þann dag í dag hrífandi og glæsilegt. De/fi Véfréttastaðurinn helgi, Delfi, liggur í hlíðum Parnassosfjalls þar sem voru heimkynni listagyðjanna. Leiöin til Delfi er um 170 km löng og er ekið um sléttur Böotíu framhjá bænum Þebu þar sem Ödípus konungur ríkti forðum (sbr. leikrit Sófóklesar um þann harmleik). Stutt viökoma er í bænum Levadia en síöan haldið áfram norður til Arakova, lítils fjallaþorps sem þekkt er fyrir margs konar vefnað. Þar er áö í bakaleið og tækifæri gefst til að versla. Frá Arakova til Delfi eru um 10 km. Delfi var helgasti staöur Grikkja til foma og frægur fyrir véfrétt- ina. Landslag er hrikalegt og fagurt og Fedriadehamrar rísa þverhníptir fyrir ofan helgidóminn. Um síðustu aldamót grófu franskir fomleifafræðingar upp staðinn og eru fornminjar þær sem þar fundust geymdar í fornminjasafninu. Skoðaðar eru leifar Appolonshofsins og hringleikahúsið sem er næstum heilt og notað til leiksýninga og hljómleika- halds. Enn ofar í hlíöinni er íþróttaleik- vangurinn sem hefur lítiö látiö á sjá. Fyrir neðan helgistaðinn eru rústir bygginga, til dæmis Þolos og íþrótta- skólans (Gymnasium), þar sem íþróttamenn æföu fyrir kappleiki. Fom-Grikkir töldu Delfi vera „nafla heimsins” og staðurinn var í senn miðstöö trúariðkana, lista og líkams- íþrótta. „Beint í sólina á Kanarí.” Eitthvað á þessa leið hljóðuðu auglýsingar sem margir minnast. En hvar eru Kanaríeyjar? Þessar svokölluðu paradísareyjar eru 13 talsins, þar af sjö í byggð. Eyjamar eru undan norðvestnrströnd Afriku en þetta em eldfjallaeyjar. Það em Spánverjar sem hafa ráðiö yfir eyjunum frá því á 15. öld og því er töluð spánska á KanarL og spánskir siðir em alls- ráðandi. Veðurfarið er með afbrigðum gott og munar einungis 6 stigum á meðalhita hlýjasta og kald- asta mánaðarins. Reyndar er meðal- hiti vetrarmánaðanna um 20 stig og því varla að undra þótt Kanaríeyjarnar séu fjölsóttur ferða- mannastaður en þangað leggja leið sína ferðamenn hvaðanæva úr heiminum. Auk veðurblíðunnar eru eyjarnar mjög fagrar. Borgin Las Palmas er á þriðju stærstu eyjunni, Gran Canaría, og þar er baðströndin Playade las Canteras, fjögurra kíló- metra strandlengja í hjarta borgar- innar. Annars er Las Palmas stærsta borgin á Kanaríeyjum með 275 þúsund íbúa og borgin stendur á gömlum gmnni, sögu hennar má rekja aftur til 1470. Eins og gera má ráð fyrir eru ferðir frá Islpndi til Kanaríeyja boðnar yfir vetrar- mánuðina, eða frá því í nóvember og fram í síðari hluta apríl. Ferðaþjónusta áÆhureyri — beint flug í sólina Akureyringar n jóta nú þeirrar þjón- ustu að geta flogið beint til útlanda og auk þess ráðgerir Ferðaskrifstofa Akureyrar að bjóða ferðir beint frá Akureyri til sólarlanda ef næg þátt- taka næst en beina flugið hefur mælst mjög vel fyrir hjá Norðlend- ingum, bæði sparar þaö tíma, fé og fyrirhöfn. I sambandi við beint flug í sólina eru líkur til þess að það verði Mallorka sem fy rir valinu verður. Ferðaskrifstofa Akureyrar er um- boösaðili fyrir Ferðaskrifstofuna Or- val í Reykjavík og selur í allar ferðir sem Úrval býður, auk þess sem seld- ir em farseðlar í áætlunarflugi til út- landa og erlendis og farseðlar með Smyrli og Ms Eddu. Beint flug frá Akureyri vekur upp þá spurningu hvort ekki sé fyllilega tímabært að komið verði upp sambærilegri frí- höfn þar og farþegar njóta annars staðar. Eitthvað mun þó vera langt í land með það eins og annað í upp- byggingu þjónustu í sambandi við flug á Islandi; heyrst hefur að frí- höfn hafi strandað á því að ekkert húsrými sé á Akureyrarflugvelli fyrir slíkt fyrirtæki. ✓

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.