Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1983, Síða 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 22. APRIL1983. Spurningin Ætlar þú að fylgjast með Eurovision- söngvakeppninni annað kvöld? Jón Páll Sigmarsson dyravörður: Nei, ég verðaðvinna. Anna Öladóttir, verkakona og hús-l móðir: Já, ég fylgist meö henni. Mér; finnst mjög gaman að henni. Rakel Ólafsdóttir, 10 ára: Já. Mér finnst gaman aö henni, lögin eru skemmtileg. Bergþór Bergþórsson, 14 ára: Eg bara veit þaö ekki. Jú, ég hef nú séö hana áöur og fannst þaö bara ágætt. Smári Wiium vélstjóri: Eg hef hugsaö mér þaö. Mér finnst gaman aö þessu, þetta er lífgandi efni. Gunnar Skaptason tannlæknir: Nei,| elskan mín góða, ég hlusta aldrei á þessa verksmiöjumúsík. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Bjóraþjór eða heilbrigði — Einar J. Eiríksson svarar Ásgeirí Þórhallssyni Til eru þeir menn, sem ekki geta unnt löndum sínum aö ganga vakandi, heilbrigðum og óbrjáluöum gegnum lífiö, heldur þurfa þeir aö menga og eitra andrúmsloft, og síöar líkamaog líf meöborgaranna, með því aó stunda lævíslegan áróöur fyrir áfengisneyzlu, — í þetta sinn fyrir áfengum bjór. Bjór er bruggaöur og seldur hér á landi, en áfengisinnihald hans er lágt. I Dagblaöinu Vísi 14. apríl birtist kjallaragrein eftir Ásgeir nokkum Þórhallsson, þar sem hann vill taka upp þann ósiö Dana aö stunda bjór- þamb — og þaö að sjálfsögöu sterkan bjór, þ.e. með tiltölulega miklu áfengisinnihaldi — og venja Islend- inga á slíkt. Hann telur eins og aörir skoöanabræöur hans aö drykkja á sterku víni muni þar meö minnka — en hvaö segja opinberar tölur þar um? Þær leiða í ljós, aö bjórneyzlan sé aö- eins viðbót viö þá drykkju sem fyrir var, og aö heildarneyzlan aukist. Maður sem er ofurölvi vegna neyzlu sterkra drykkja, er ófær um aö sinna vinnu sinni, aka bíl ellegar yfirleitt aö taka þátt í daglegu lífi þjóöfélagsins. Maöur sem innbyrt hefur „aðeins” nokkra bjóra sterka, telur sig geta og reynir þvíaöstjóma vélum, tækjum og ekki sízt bíl sínum, en af því hefur slys- um fjölgaö gífurlega, meö örkuml og dauða oftlega sem afleiðingu. Ásgeir Bjórinn skiptir okkur öil máli — Svar til Halldórs Krist jánssonar Þaö er ekki hægt aö líkja saman heróíni og bjór eins og Halldór gerir i grein sinni. Því þar er töluveröur munur á, sérstaklega eru áhrifin frá- .brugöin. Halldór skrifar: „Af hverju heldur Ásgeir Þórhallsson aö mörgum sinnum meira sé um manndauða vegna lifrar- skemmda í Danmörku en á Islandi.” Þetta mál kemur lifrarskemmdum, lifrarsjúkdómum, lifrarfreknum eöa þorskalifur ekkert viö. Þetta fjallar hreint ekkert um lifur. Ég get alveg passaö upp á mina lifur sjálfur. Þetta fjallar um aö bera viröingu fyrir manneskjunni; sjálfsákvöröunarrétt. Hví er Halldór svo sannfæröur um, ef bjór yrði leyfður, aö hann veröi drukkinn daglega á öllum vinnu- stööum. Flestir þurfa aö vera algáðir viö vinnu sina og vita þaö sjálfir. I bjórlöndum er drukkinn bjór á vinnu- Kjallaragrein Ásgeirs Þórhallssonar i DV 14. apríl hefur orðið tveimur bréf- riturum tiiefni til andsvara. [ „Þetta fjallar um að bera virðingu fyrir manneskjunm; sjálfsákvörðunarrétt.” 1 stöðum, sérstaklega þar sem heitara er i veðri, en ekki á öllum vinnu- stööum. Bjór hefur miklu vægari áhrif en brennivín og þarf lagni til aö drekka sig öskrandi fullan. Mér hefur sýnst þetta einungis vera hjá iðnverka- mönnum í byggingarvinnu. Þaö eru til fleiri atvinnugreinar en hún. Ég hef unniö í Danmörku, þar var ekki þambaöur bjór í vinnutimanum. En hvern fjandann kemur Halldóri viö hvað aörir gera? Ekki hef ég áhyggjur af lifrinni hans. Hann veröur bara aö passa sína eigin lifur fyrst áður en hann fer að hafa áhyggjur af annarra. Geir Hallgrímsson lýsti því yfir i DV nýlega aö honum fyndist bjór góöur og aö hann myndi greiða bjórfrumvarpi atkvæði. En er þaö nokkur vissa fyrir því að Geir yröi fullur á hverjum degi inni á Alþingi, Halldór? Eg er ekki aö tala um aö bjór veröi seldur í matvöruverslunum, þaö er ekki nauösynlegt. En aö það sé hægt aö kaupa hann í ríkinu og á veitinga- stöðum þar sem fullorðnu og sjálfráöu fólki er gefiö vald til aö ákveöa sjálft hvaö fer inn fyrir varir þess. Þaö er spurning um aö okkar eigin ákvörö- unarréttur sé virtur. Okkur er treyst segir réttilega, aö þetta mál komi okk- ur öllum við — enda vilja allir halda heilsu, lifi og limum, en það virðist aukaatriöi hjá Ásgeiri. Hann reynir aö spila á hégómaskap sumra og spéhræöslu meö því aö segja útlendinga hlæja aö okkur. Lík- legra þykir mér, aö þeir heföu hlegiö aö Ásgeiri fyrir þaö hve auðtrúa hann er á sölumannslygar bruggaranna, en hann síöan heimfært upp á landann. Frelsi er vinsælt hugtak og því er þaö orö oft misnotaö. Hér vill A.Þ. frelsi til aö eitra fyrir sjálfan sig og aðra, fyrst meö vægu efni þ.e.a.s. bjór, en síðar sterkara. Sterku vínin fylgja alltaf í kjölfarið — bjórinn er aöeins undanfari sem „tryggir” síöar neyzlu og þrældómstak sterku drykkjanna. — Þrælslundin segir: „Bönnum öll bönn”, en þá setningumá einmittfinna í grein A.Þ. — Ég spyr: Ef ekki væru til bönn, sem segðu okkur hvaö má, hvaö er sæmilegt, til góðs, hollt, rétt, o.s.frv., hvar væri þá frelsið. Viö fynd- um ekki fyrir því, vegna þess aö viö þekktum ekki hið gagnstæða. Sá einn getur veriö frjáls, óháöur, stoltur, sjálfstæöur og þakklátur, sem finnur og veit aö hann getur og hefur valiö aö vera edrú, og aö hann þarf ekki aö lúta hinum ægilega harðstjóra, Bakkusi, heldur er hann frjáls aö því að velja frelsiö. Einar J. Eiríksson. Hótanir í keöjubréfí — „alvarlegur hlutur” segir bréfritari Magnea Guðmundsdóttir (6221-5860) skrifar: Tilgangur minn meö því aö senda þessar línur er aö vara viö keöjubréfa- faraldri sem gripiö hefur um sig. Bréf þaö sem hér fylgir með barst inn á heimili mitt frá bláókunnugum manni sem virðist hafa fundið nafn mitt ísímaskrá. I þessu bréfi eru engar smáyfirlýs- ingar og ekki laust viö aö maöur veröi skelkaöur viö aö fá hótanir um aö eitt- hvaö iUt hendi mann ef ekki sé farið eftir fyrirmælum bréfsins. Eg tel rétt aö vara fólk viö þessum ófögnuöi og því sendi ég DV bréfið til birtingar í staö þess að senda 20 einstaklingum þennan ófögnuð eins og farið er fram á í bréfinu. Keðjubréf sem þetta eru það alvar- legur hlutur aö mér fannst ég ekki geta látiðkyrrt Uggja. Sagt er að bréfið sé upphaflega skrifað af trúboða í Venezúela.1 Rakin eru örlög þeirra sem þver- skölluðust við að senda bréfið áfram. Einn missti vinnuna, annar lenti i bílslysi og fótbrotnaði skömmu síðar. En þeir sem sendu bréfið áfram unnu i happdrætti, gekk betur i starfi og svo fram- vegis. Bókarumf jöllun á Sælkerasíðu: Hvergi getið um höf und — bókarinnar 220 gómsætir sjávarréttir Anna Guðmundsdóttir (0333—2306), Hringbraut 37, hringdi: Á Sælkerasíðu DV16. apríl er f jaUað um bókina 220 gómsætir sjávarréttir. Þetta er ein albesta matreiðslubók sem fáanleg er hérlendis og aö auki og öfugt viö flestar aörar matreiðslubæk- ur, frumsamin en ekki þýdd. Á Sælkerasíðunni er • f jaUaö um þesssa bók og þess getið aö Sigurður Þorkelsson hafi myndskreytt bókina. En, þess er hvergi getið hver höfundur bókarinnar er. Mér finnst þetta hrein-' lega móögun viö höfundinn, Kristínu Gestsdóttur. Aö mínu mati á svona lag- að ekki að geta komið fyrir hjá Sig- mari B. Haukssyni. 220 g&msætir sjúvarréttir Það er ekki algengt að gefnar séu út íslenskar matreiðslubæk- ur. Flestar matreiðslubækur sem koma út hér á landi eru þýddar. 1981 gaf bókaforlagið Öm og Örlygur út bókina 220 gómsætir sjávarréttir. Bók þessa myndskreytti Sigurður Þorkelsson. Þessi bók er ón efa skelfiski, kröbbum o.fl. Upp- skriftirnar eru ítarlegar og greinagóðar. I bókinni eru einnig húsráð og leiðbeiningar, t.d. bendir höfundur á að upplagt sé að nota mjólkurmysu í stað hvítvíns, t.d. í sósur. Jú, þaö er hægt en einnig má nota óáfeng vín en best er auðvitað aðmotæ- Bréfritari er óánægður með að ekki skuli getíð um hver sé höfundur bók- arinnar 220 gómsætir sjávarréttir en um þá bók var fjallað á Sælkerasíðu DVlaugardaginn 16. aprii.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.