Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1983, Qupperneq 9
DV. LAUGARDAGUR 23. APRIL1983. 9 Þjóðfn kveður upp dðm sinn Þjóöin kveður nú upp sinn dóm. Urslit skoöanakannana liggja fyrir. Eftir aö þær voru gerðar, hafa enn veriö framboösfundir úti um allt landiö. Fulltrúar framboöanna hafa komið fram í sjónvarpi, síðast í hringborösumræöum. Þetta hefur vafaiaust einhver áhrif, aö minnsta kosti á þá sem enn voru óákveðnir í skoðanakönnunum. En skoöana- könnun DV fyrir viku gaf til kynna, aö breytinga væri að vænta. Þær breytingar veröa samkvæmt skoð- anakönnuninni mikilvægari en breytingarnar, sem urðu í kosning- unum 1978, eins mikilvægar og þær virtust þóvera. I þingkosningunum 1978 röskuöust hlutföll á Alþingi geysUega, eins og flestir muna. Alþýðuflokkur og Alþýöubandalag unnu mikinn sigur en Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokkur töpuöu miklu. Þetta var hin mesta röskun á flokkakerfinu í áratugi — en hún stóö ekki nema skamma hríð. Smám saman sótti aftur í sama farið. Skoöanakannanir sýndu, aö smátt og smátt hvarf fylgið aftur af A-flokkunum. Sjálf- stæðisflokkur og Framsóknarflokkur endurheimtu fylgi sitt. Það kom einnig fram í síðustu þingkosn- ingum, í desember 1979. Þá vann Framsókn sigur og Sjálfstæöisflokk- urinn vann nokkuð, þótt hann hafi vafalaust misst töluvert af unnu fylgi síöustu vikur kosningabarátt- unnar — vegna „leiftursókn- arinnar”. Þannig varð breytingin í kosningunum 1978, sem virtist í fyrstu svo mikilvæg, lítils sem einskis viröi, þegar fram í sótti. Hún skipti engum sköpum í sögu stjóm- mála á Islandi. Þess vegna gæti breytingin í þing- kosningunum, sem nú standa yfir, orðið sögulega merkilegri. Nú hafa komiö fram tveir nýir „flokkar”, Bandalcg jafnaöarmanna og Samtök umkvennalista, sem gætu vel enzt í einhverja framtíð. Skoöanakönnun DV, eins og reyndar aörarskoöanakannanir, benda til, að nýju framboöin verði sigurvegarar kosninganna. Gamla flokkaskipunin riölist. Hreyfíngar hjá Alþýðuflokki Ef skoðanakannanir sýna í stórum dráttum, hvert stefnir, munu Alþýðuflokkur, Alþýöubandalag og Framsóknarflokkur tapa, nýju framboöin vinna, og Sjálfstæöis- flokkurinn auka nokkuö fylgi sitt frá síðustu kosningum. Hinu munu margir nú hafa gleymt, að Alþýðu- fiokkur og Alþýðubandalag höföu tapað stórlega fylgi löngu áöur en nýju framboðin komu til. Alþýðuflokkurinn hlaut þannig 17,4 prósent atkvæöa í þingkosningunum 1979. Það varmikið tap frá þingkosn- ingunum 1978 en þó nokkur „vamar- sigur”. Augljóst er, að ýmsir, sem annars heföu kosið Sjálfstæðisflokk- inn, óttuðust svo „leiftursóknar- stefnu” flokksins, að þeir flýðu, aðallega yfir á Alþýðuflokkinn. Þetta forðaði Alþýðuflokknum frá enn miklu meira tapi í síðustu kosn- ingum. Alþýðuflokksmenn vitna gjaman til þessara kosninga og benda á, aö i skoðanakönnunum nokkm fyrir kosningarnar hafi þeir fengið minna fylgi en þeir fengu í kosningunum. Þetta er rétt, og olli óttinn við leiftursóknina því. En hvað varö síðan unl fylgi Alþýðuflokksins eftir síðustu þing- kosningar? Flokkurinn tapaði skjótt fylgi samkvæmt skoöanakönnunum. Þannig var fylgi hans aöeins 12,8% ífebrúar 1980. Það var 10,7% í janúar 1981 og komst niður í 8,8% í október 1981.1 október síðastliönum var fylgi Alþýðuflokksins 10,7% eða 6,7 prósentustigum undir fylgi flokksins í þingkosningunum 1979. Þá var Vil- mundur enn í flokknum. Með Vilmund í flokknum hafði Alþýðu- flokkurinn sem sagt þegar tapað þriðjungi fylgissíns. Um það þarf ekki að vitna bara til skoðanakann- ana. Sveitarstjórnarkosningarnar fyrir ári em mönnum í fersku minni. Þá kom fram tap Alþýðufl cksins af þessari stærðargráðu. Auðvitað kostaði það Alþýðuflokk- inn enn nokkuö, að Vilmundur Gylfason, einn þingmanna flokksins, stofnaði nýjan flokk. Fylgi Alþýöu- flokksins stóð í 7,3% samkvæmt skoðanakönnun DV fyrir viku, í staö 10,7% í október síöastliðnum. Vil- mundur hefur tekið töluvert, en mikilvægt er, aö menn sjái, að fylgis- tap Alþýðuflokksins, úr 17,4% í kosn- ingunum 1979 í 10,7% í október síðastliðnum var oröið, áður en Vil- mundur gekk úr Alþýðuflokknum. Fylgi Alþýðubandalagsins Og hvað um Alþýðubandalagið? Alþýöubandalagið hlaut 19,7% í þing- kosningunum 1979. Það var mikið tap frá kosningunum 1978. Nú tala menn um, aö k vennalistarnir og Bandalag jafnaðarmanna höggvi í raðir Alþýðu- bandalagsins. Ekki skal því í móti mælt. En hvemig hafði fylgi Alþýðu- bandalagsins þróazt, áður en nýju framboðin komu til? Samkvæmt skoðanakönnunum tapaði Alþýðubandalagið fylgi fljótlega eftir síðustu kosningar. Alþýðubandalagið hafði þannig 16,8% í skoðanakönnun í febrúar 1980 en komst upp í fylgi sitt í þingkosning- unum í könnun í maí 1981. Samkvæmt Laugardags- pistlll Haukur Helgason adstodarritstjóri skrifar skoðanakönnunum fór Alþýðubanda- lagið að tapa mjög í lok 1981 og árið 1982. Fylgi þess var aðeins 13,4% í febrúar 1982 og 14,5% í október 1982. Síöasta skoðanakönnun DV, fyrir viku, gaf Alþýðubandalaginu þó 15%. Þaö er að minnsta kosti öllu skárra fyrir Alþýðubandalagið en flokkurinn fékk í ýmsum fyrri skoöanakönnunum. Við vitum, að Bandalag jafnaðar- manna var stofnað fyrir tiltölulega fá- um vikum og kvennalistarnir komu fram fyrir skömmu. Staða Alþýöu- bandalagsins er samkvæmt sambæri- legum skoðanakönnunum álíka og hún hefur verið um skeið. Víst vitum við, að Alþýðubandalagið hefur oft sótt sig á síðasta sprettinum fyrir kosningar, og getur verið, að þess sjáist enn merki. Mönnum þætti einfaldast að segja, að fylgi Bandalags jafnaðarmanna og k ennalista komi frá Alþýðuflokki og Aiþýðubandalagi. Við þekkjum vafalaust dæmi um að þetta hafi gerzt í einstökum tilvikum. Samanburður milli sambærilegra skoðanakannana sýnir aö sjálfsögðu, aö Alþýðuflokk- urinn hefur haldið áfram að tapa fylgi, eftir að nýju f ramboðin komu fram. En hann hafði orðið fyrir mestu af fylgis- hruninu, áður en þau komu fram. Oljóst er, hverju Alþýöubandalagiö tapar á tilkomu nýju framboðanna, þegar niðurstöður skoðanakannana á þessu tímabili eru bornar saman. Framsókn Framsókn hefur hins vegar tapað fylgi snögglega síðustu mánuði. Framsóknarflokkurinn fékk 24,9% í síðustu þingkosningum. Fylgi flokksins h jakkaði í nánast sama fari samkvæmt skoðanakönnunum æ síöan, en var þó komið niður í 22,1% í febrúar síðastliðnum. Þá hafði Bandalag jafnaðarmanna verið stofnað, en kvennalistamir voru enn óákveðnir. Þannig hafði Fraitisókn tapað fylgi, en þó litlu, ef við segjum, að skoðanakönnun DV hafði mælt þetta hárnákvæmt. Nú gerist það í könnun DV fyrir viku, aö Framsókn reynist hafa farið niður í 17,9%. Tap Fram- sóknar hefur því einkum orðið síðustu fáa mánuði. Þetta segir okkur kannski að kvennalistarnir taki meira af Fram- sókn, en menn mundu ætla að óreyndu. Fylgi Sjálfstæðisflokks En hvað þá um Sjálfstæðis- flokkinn? Hefur hann verið ónæmur fy rir nýju f ramboðunum? Sjálfstæðismenn fengu í síðustu þingkosningum 37,3% atkvæða. Skoðanakannanir sýndu brátt, aö flokknum óx fylgi. Sjálfstæöisflokkurinn hafði 43,4% í könnun í febrúar 1980. Síðan var fylgi hans í skoðanakönnunum frá 45,6% allt upp í 53,5%. Hann jaöraði viö aö hafa helming. Hægrimenn og frjáls- lyndir, hvort sem þeir vom með eða á móti ríkisstjóm Gunnars Thoroddsens, sögðust ískoðanakönn- unum styðja Sjálfstæðisflokkinn. En síðan dró mjög úr þessu fylgi. 1 skoðanakönnun DV í febrúar síðastliðnum hafði Sjálfstæðisflokk- urinn fylgi 40,6% landsmanna. Nú hafði hann, fyrir viku, fylgi 41% landsmanna samkvæmt skoðana- könnun DV. Bandalag jafnaðar- manna var komið til, þegar skoðana- könnun var gerö í febrúar. Kvenna- listamir hafa komið til síðar. Skoðanakannanir segja ekki alla sögu um, hvemig kosningar fara Hversu réttar sem þær era, mæla þær aðeins stöðuna, eins og hún er þegar þær eru gerðar. Þær megna ekki aö „spá” neinu um, hvað síöar gerist. Þjóðin talar nú. Dómur hennar verður ákveðinn. Það, sem hér hefur verið sagt og rakið með samanburði milli skoðanakannana á síðasta kjörtímabili, kann að segja okkur, að nýju framboðin hafi verið að taka eitthvert fylgi af öllum hinum ftokkun- um, ef miðað er við úrslit skoðana kannana, til dæmis á síðasta ári, Meginhlutinn af tapi Alþýðuflokksins var kominn fram, löngu áður en Vil- mundur Gylfasnn stofnaði nýjan flokk „gegn flokkunum”. Tap Alþýðubandalagsins var þegar komiö fram, áöur en kvennalistar urðu til. Auövitað felst meginskýr- ingin í því, hversu gífurlega margir hafa verið óákveðnir, og það í fullri alvöra, í fyrri skoðanakönnunum Margir þeirra hafa snúið sér til nýju framboðanna. Era landsmenn sáttir við þá mynd. sem skoðanakönnun DV gefur? Vilja þeir breyta henni? Þaö kemur í ljós Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.