Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1983, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1983, Qupperneq 4
4 Haferninum hefur viðast hvar veriö útrýmt úr Evrópu á siðustu öidum og áratugum. Hans gætir þó ennþá i nokkrum mæii við strendur Noregs, Eystrasatts og á Balkanskaga. Þá eru heimkynni hans einnig við vestur- strönd Græniands, í Litlu-Asíu og um gjörvöii Sovótríkin. Og síðast en ekki sist á íslandi, en íverustaðir hans hórlendis eru nú einkum við útkjálka Vestfjarða, á Barðaströnd og nokkrir ernir dveija við Faxafióa. Alls teij- ast nú um áttatiu ernir á íslandi, en fyrr á öldum töldustþeir i besta falli um þrjú hundruð. ÖMIJVJV fremstur fugla! þær sem fundist hafa í hreiðrum séu þannigtilkomnar. I gömlum þjóðsögðum er víða frá því greint að emir hafi ráðist á ungböm eða jafnvel stálpaða krakka, drepið þau og haft sér til matar. Mun þetta vera í öllum atriöum rangt enda er það sannað að emir hræðast menn mjög og foröast aö vera í návist þeirra. Líklegt er aö þessar drápssögur arna á böm- um hnfi komið til af því að jafnan hafa unglingar hræðst amarferðir og er því borið við aööminnhafi verið notaður sem eins konar grýla á ungu kynslóð- ina á árum áöur meðan ernir voru enn-. þá talsvert algengir í sveitum lands- ins. Yngri unginn drepinn af þeim eidri... Ernir em fastheMnir við gamla varpstaði og verpa oft áratugum saman á sömu slóðum eða lengur. Venjulega eiga þeir fleiri en eitt hreið- urstæði á varpstöðvum sínum og verpa össumar því ekki alltaf í sama hreiður frá ári til árs. Hefur reynslan kennt þeim eins og mörgum öðmm fuglum að betra er aö skipta um hreiöur eða jafnvel að búa til ný heldur en að verpa í hreiður frá liðnu ári vegna óværðar- innar sem hrjáir bæði unga og full- orðna í gömlu hreiðmnum, til dæmis flær og lýs sem oftast veðrast ekki til fulls úr hreiömnum á einum vetri. Snemma á vorin fara emirnir að dytta að gömlum hreiömm eða að gera ný. Er talið að össurnar annist þetta starf að mestu. Hreiðriö er oftast dyngja eða hrúga og er undirlagið úr þangi, hrísi og lurkum alls konar. Að innan er hreiðriö fóörað með mosa eða öðm mjúku efni. Hreiðurstaöir amar- ins eru af ýmsum gerðum en jafnan ut- an alfaraleiða manna og búfjár. Stund- um er hreiðrið á syllu í bröttum hömr- um en oftast þó á kletti eöa stapa í fjallshlið. Einnig verpa emir oft í hólmum eöa hraunhólum. Hérlendis verpa ernir um sumar- mál eða í maíbyrjun ef illa árar, mjög sjaldan síðar. Eggin em oftast tvö en geta orðið þrjú, stundum aðeins eitt. Þau em ekki mjög stór, mun minni en ætla mætti af svo stómm fugli aö vera. Þau em hvít á lit og jöfn til endanna. Utungun hefst um ieiö og fyrra egginu er verpt og klekst það því fyrr út. Þetta veröur til þess að annar unginn (ef þeir verða tveir, sem oftast vill verða) er eldri og stærri og tekst honum þá oft að ná í bróðurpartinn af fæðunni sem for- eldrarnir koma með. Því kemur það fyrir að yngri unginn svelti til bana og jafnvel hendir það að hann sé drepinn af þeim eldri. Þetta er þó engan veginn algilt og oft komast báöir ungamir á legg, einkum ef fæðuskilyrði eru góð. Talið er að kvenfuglinn hafi mestan vanda af útungun eggjanna. Karlinn leysir hana þó af hólmi við og við, eink- um snemma á morgnana, en litla eirð ku hann hafa til þess aö liggja á eggj- unum lengi. Er því matmálstími frúar- innar oft í stysta lagi. Ekki er talið að bóndinn færi björg í bú fyrr en ungarn- ir eru komnir úr eggjunum en þá ligg- ur hann heldur ekki á liði sínu. Ungarnir eru lítilfjörlegir fyrst framan af ævinni. Arnamngi nýskrið- inn úr egginu vegur aöeins um níutíu grömm. Þurfa þeir mikillar umönnun- ar við fyrstu vikumar. Þeir eru í dún- fiðri allt að því fimmtíu daga og em í hreiðmnum um tíu vikna skeið áður en þeir verða fleygir. Þó yfirgefa þeir ekki hreiðrin fyrr en löngu eftir að þeir em orðnir sjálfbjarga. Fyrst framan af sofa þeir í hreiðrunum um nætur enda eru þeir lengi undir umsjá for- eldranna sem kenna þeim ítarlega allt sem að veiðiskap lýtur og vel uppöldum amarunga ber að læra. Er þessi náms- tími að minnsta kosti fimm vikna lang- ur. Að honum loknum er talið að foreldramir reki ungana á brott og geri þá útlæga úr næsta nágrenni sínu. Hérlendar athuganir virðast benda til þess aö fjölskyldan haldi hópinn fram á útmánuði næsta vetur og slíti því ekki samvistum fyrr en farið er að vora. Er þetta eðlileg aðlögun að stað- háttum þegar haföur er í huga hinn kaldi og langi vetur sem hér á landi ríkir. Þrátt fyrir þessa foreldraást ís- lenskra ama þykir sýnt að fyrsti vetur- inn sé ungum ákaflega erfiður og er vitaö til þess að margir ungamir lifa hann ekki af. Er dánartíðni arnarunga mjög há, og það ásamt því aö amar- hjón verpa að jafnaði ekki árlega stuöl- ar að því að vöxtur stofnsins er mjög hægur. Meöan amarfrúin liggur á eggjunum verður hún að sjá fyrir sér sjálf, eins og þegar hefur verið drepið á, en þegar ungamir eru komnir úr eggjum sínum fer bóndinn að draga björg í bú. Lætur hann þá greipar sópa hvar sem æti er að finna. Síðan tekur assan við vistun- um og sundrar ætinu og matar ungana á meðan þeir geta ekki séð um sig sjálfir. Fyrst í staö gefur hún þeim helst fiskmeti en kjöt fá þeir ekki fyrr en þeir eru farnir að stálpast og verða svotilsjálfbjarga. öminn fær ekki á sig fullkominn full- orðinslit fyrr en hann er kominn á kyn- þroskaskeið sitt en ungfuglar veröa ekki kynþroska fyrr en á sjötta aldurs- ári. A fyrstu lífdögum sínum er amar- unginn mógrár á lit en allföllitur. Þeg- ar hann vex úr hreiðri hefur hann náð ryð-móleitum lit. Þá er hann og dökkur á höfði og hálsi með stélið mósvart, augun dökk og nefið svarblátt. Að þessu leyti er amarungi auðþekkjan- legur frá fullorðnum erni. Gjammandi krí, krí, krí, eða djúpt geltandi krá Islenski haförninn var áður út- breiddur um alla Evrópu en sést ekki Iengur í mestu þéttbýlislöndunum eins og Bretlandi eöa Frakklandi og langt er komið að útrýma honum úr Svíþjóð. Heimkynni amarins em nú auk Is- lands, vesturströnd Grænlands, Nor- egsstrendur suður á Mæri, slæðingur viö Eystrasalt, á Balkanskaga, Litla- Asía og síöan öll Sovétríkin þver og endilöng austur á Kamtsjatka. Eins og áður greinir finnast þeir fáu ernir sem enn lifa á Islandi nær ein- vörðungu við Barðaströnd og á utan- verðum Vestfjarðakjálka. Þó er örninn einnig farinn að sjást sums staðar við Faxaflóa en þar vom heimkynni hans áður en honum tók að fækka svo mjög sem raun varð á á síðustu öldum. Gef- ur þetta tilefni til að ætla aö íslenska haferninum fari nú talsvert fjölgandi. Bjartsýnisvonir era þó ekki raunhæfar í því tilliti því ekki er taliö að eminum hafi f jölgað hérlendis á síðasta áratug nema í hæsta lagi um einn tug fugla. Teljast íslenskir hafemir nú um þessar mundir vera um átta tíu talsins. Rétt þykir að undirstrika sérein- kenni íslenskra hafarna í lokin og þau atriði sem aðgreina þá frá öömm fugl- um sem dvelja hér á landi allt áriö um kring. Þeir ferðamenn sem koma til með að eiga leið um heimkynni arnar- ins á næstu vikum og vilja sjá íslenska haföminn berum augum skal bent á að leggja vel á minnið þau tvö atriði sem greina haförninn frá öllum öðmm fugl- um en það er hvítt og fleyglaga stélið, sem sést vel þegar fuglinn er á flugi, svo og ófiðraðir fætumir. Þá er flug- mynstur amarins að nokkru leyti sér- stakt. Þegar hann hefur sig til flugs virðist hann ákaflega þungur á sér en þegar hann hefur náð vindi undir báða vængi er hann gjam á að iðka svifflug á miklum breiðum og sést þá mikið vænghaf hans greinilega. Nær hann oft mjög mikilli flughæð með þessu móti. Þegar öminn er í veiðihug sveimar hann um skimandi i litilli hæð og hremmir bráð sína jafnan við yfirborð láðs eöa lagar. Kemur hann þá á gífur- legum hraða, bráö sinni algjörlega aö óvörum, og gleypir hana oftast í einum bita. Em þetta að jafnaði stórkostleg- ar aðfarir og þykir mönnum heillandi að verða vitni að þeim. Loks er að geta amarraddarinnar. Hún er ákaflega hrjúf og ber með sér gjammandi „krí, krí, krí” eöa dýpra, geltandi „krá”. Aö svo mæltu lýkur þessu greinarkorni um íslenska haföminn, konung háloft- anna eins og hann hefur oftlega verið nefndur. -SER tók sáman. (heimildir meðal annars fengnar úr grein Kjartans G. Magnússonar og Olafs K. Nielsen um ránfugla og uglur í áttunda riti Land- verndar, úr Árbók Ferðafélags Islands 1939, Fuglabók Almenna bókafélagsins og Stóru fuglabókFjölva.) DV. LAUGARDAGUR 21. MAI 1983. AÐ LOSA GEYMSLUNA EÐA BÍLSKÚRINN SMÁAUGLÝSING í LEYSIR VANDANN Það mó vel vera að þér finnist ekki taka þvi að auglýsa allt það, sem safnast hefur í kringum þig. En það getur líka vel verið að einhver annar sé að leita að þvi sem þú hefur falið í geymslunni eða bilskúrnum. OPIÐ: Mánudaga — föstudag kl. 9 — 22. Laugardaga kl. 9—14. Sunnudaga kl. 18—22. SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLT111 SÍMI 27022 ATH: Lokað hvítasunnudag, opiðannan íhvítasunnu kl. 18 —22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.