Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Page 4
4
DV. LAUGARDAGUR11. JUNl 1983.
Áhrif laga um kerfisbundna skráningu á upplýsingum er varða einkamálef ni:
Skráning stjómmála-
skoðana manna óheimil
— segir meöal annars í svari tölvunef ndar við spurningum
Odds Benediktssonar prófessors
Tölvunefnd ríkissins hefur nýlega
svaraö spurningum sem Oddur
Benediktsson prófessor lagði fyrir
hana. Spumingamar vom bomar
fram til aö fá upplýsingar um áhrif
laga um kerfisbundna skráningu á
upplýsingum er varöa einkamálefni.
Oddur fór fram á, skömmu fyrir
þingkosningamar 23. apríl, aö nafn
sitt yröi máö af gögnum sem stjóm-
málaflokkarnir fá. Var því svarað
þannig að hagstofustjóri tilkynnti
Oddi að Hagstofan myndi má nafn
hans úr kjósendaspjöldum og lím-
miðum meö nöfnum kjósenda.
Venjan er að framboðsaðilar fá
slíkar upplýsingar frá þjóðskrá.
Hagstofan taldi sig hins vegar ekki
geta máð nafnið af kjörskránni sem
sumir flokkarnir fá sendar.
Þegar hér var komiö ritaöi Oddur
Benediktsson bréf þar sem í vom
þessar spurningar. Svör tölvu-
nefndar koma á eftir hverri
spumingu:
1. Stjómmálaflokkarnir fá til afnota
afrit af kjörskrá. Ná lögin yfir
þessi kjörskrárafrit og notkun
þeirra? Svar: „Stjórnmála-
flokkar hafa fengið í hendur svo-
nefnda kjörskrárstofna. Ef gögn
þessi eru notuð til „útsendingar
dreifibréfa, tilkynninga, auglýs-
inga eða áróðurs” getur sá, sem
þar er skráður óskaö þess að nafn
hans verði numiö af þeim og er þá
skylt að verða við því, sbr. 2. mgr.
13. gr. laga nr. 63/1981.”
2. Er stjórnmálaflokki heimilt að
skrá upplýsingar um stjómmála-
skoðanir á kjörskrárafrit? Svar:
„Hvorki stjómmálaflokki né
öðrum er heimil skráning stjóm-
málaskoöana manna, nema að
fenginni heimild þess, sem hlut á
aðmáli, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr.
63/1981. Stjórnmálaflokki er
heimil skráning félagsmanna
sinna.”
3. Er heimilt að tengja saman kjör-
skrárafrit og aðrar skrár svo sem
félagaskrár og stuðningsmanna-
skrár?
4. Er heimilt að tengja saman kjör-
skrárafrit og skrá um þá sem
neytt hafa atkvæðisréttar?
Svar: „Upplýsingar á kjörskrár-
stofni teljast ekki til þeirra
upplýsinga” sem sanngjamt er og
eðlilegt að leynt fari”, sbr. 1. mgr.
1. gr. laga nr. 63/1981. Akvæði 6.
gr. laganna sem fjallar um
samtengingu skráa taka því
heldur eigi til þessara upplýs-
inga.”
5. Eiga einstaklingar rétt á að láta
má sig út af kjörskrárafritum á
þeirri forsendu að kjörskrár-
afritin verði m.a. notuð til útsend-
ingar dreifibréfa og áróöurs við
undirbúning kosninga og á kjör-
degi? Svar: „Vísa má til þess,
semsegir uml.lið.”
6. Getur einstaklingur óskað þess
við stjómmálaflokk að honum sé
skýrt frá e&ii upplýsinga sem um
hann eru skráðar? Svar:
Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laganr.
63/1981 á sá, sem telur að upplýs-
ingar um einkamálefni sín séu
færðar á tiltekna skrá, rétt á því
aö skrárhaldari skýri honum frá
efni upplýsinganna.”
-JBH.
Aurelio Valls, sendiherra Spánar á Islandi, afhendir Guðmundi Magnússyni háskólarektor fyrstu bæk-
urnar. Spænskudeild Háskóla íslands verður nú stórum betur sett með bókakost vegna þessarar höfð-
inglegu gjafar spænska rikisins.
Spænskudeild Háskóla íslands fær merka bókagjöf:
SPÆNSKA RÍKIÐ
GAF 800 BÆKUR
Spænskudeild Háskóla Islands var
á dögunum færð merk bókagjöf
spænska ríkisins. Það var sendi-
herra Spánar á Islandi, Aurelio
Valls, sem afhenti Guömundi
Magnússyni háskólarektor gjöfina.
Sendiherrann hefur aðsetur í Osló og
kom hann hingað einnig til að
kveðja. Hann lætur af störfum innan
tíðar.
Að sögn spænska ræöismannsins á
Islandi, Ingimundar Sigfússonar,
em bækumar um 800 eintök. Em
þarna klassískar bókmenntir, saga,
ljóðabækur, bækur um listir og eitt-
hvaöafkennslubókum. Tilgangurinn
með gjöfinni er að efla menningar-
samskipti milli landanna.
Meö tilkomu þessarar gjafar
batnar bókakostur spænskudeildar
Háskólans mjög mikið. Hefur harui
verið harla rýr til þessa. Sagði Ingi-
mundur aö yfirvöld í Háskóla Islands
væru afar ánægð með að hafa fengiö
þessa viðbót.
Viöstaddir afhendingu bókanna
vom meðal annarra Þórður öm
Sigurðsson, lektor í spænsku við Há-
skóla Islands, Aitor Yraola sendi-
kennari og Delfin Colome, fyrsti
sendiráðsritari í Osló.
-JBH.
Akureyri:
Tónleikar Passíukórsins á morgun
Erient
láner
lausnin
— segir Albert
Guðmundsson
fjármálaráðherra um
þær 109milljónirsem
vantar til vegamála
„Eg tel vegagerð það aröbærar
framkvæmdir aö erlend lántaka til
þeirra sé réttlætanleg. Því verður tek-
ið slíkt lán þegar ríkissjóður þarf á því
aðhalda.”
Þannig fórust Albert Guðmundssyni
fjármálaráðherra orð er DV spuröi
hann hvernig væri fyrirhugað að brúa
það bil sem staðið hefði eftir varðandi
vegamál, við gerð f járiagageröar.
Sagöi Albert aö ríkissjóður stæði
undir þeim framkvæmdum sem nú
væm í gangi. Hins vegar vantaöi 109
milljónir króna til að hægt yrði að
fylgja eftir gerðri áætlun í vegamál-
um. Ekki kæmi til greina aö skera
niður framkvæmdir. Rætt hefði verið
um svokallað kílóagjald af bifreiðum
til að brúa bilið. Það kvað Albert ekki
koma til greina, né aðra skattlagningu.
„Það eru til fjölmargar aðrar lausn-
ir og ég tel erlenda lántöku þeirra
vænlegasta,” sagði Albert.
Aðspurður um fyrirhugaða sölu á
fyrirtækjum og stofnunum í eigu hins
opinbera, kvaðst Albert hafa beðiö um
lista yfir öll fyrirtæki svo og hlutaf jár-
eign ríkisins. Þegar sá listi lægi fyrir
myndi fjármálaráðherra leita heimild-
ar samráðherra sinna til að bjóða um-
ræddar eignir ríkisins til sölu. Annaö
væri ekki hægt að segja um málið á
þessustigi.
-JSS
Passíukórinn á Akureyri heldur vor-
tónleika sína á morgun, sunnudaginn
12. júní, í Iþróttaskemmunni á Akur-
eyri og hefjast þeir kl. 20.30.
A efnisskránni eru tvö verk: Messa í
F-Moll eftir Anton Bruckner og Te
Deum eftir Marc Antoine Charpentier.
Flytjendur ásamt Passíukómum á
Akureyri eru: Elísabet Eiríksdóttir,
sópran, Þuríður Baldursdóttir, alt,
Stefán Guðmundsson, tenór, Michael
Jón Ciarke, baríton.
Kammerblásarar Tónlistarskólans á
Akureyri og Nýja strengjasveitin,
Reykjavík. Stjómandi er Roar Kvam.
Launa-
gjaldkeri
Eimskips
dæmdur fyrir
fjárdrátt
I Sakadómi Reykjavíkur var i
gær kveðinn upp dómur yfir 48 ára
gamalli konu, Valdísi Björgvins-
dóttur, til heimilis að Tómasar-
haga 37 í Reykjavík. Hún var
dæmd til að sæta tiu mánaða farrg-
elsi. Sjö mánuðir eru skilorðs-
bundnir til þriggja ára en þrír
óskilorðsbundnir. Frá þeim dregst
fimm daga gæsluvarðhald.
Valdís Björgvinsdóttir var sek
fundin um að hafa í starfi sínu sem
launagjaldkeri hjá Eimskipafélagi
Islands dregið sér fé á sjö ára tíma-
bili, frá 1975 til 1982. Hún mun nú
hafa endurgreitt það f é.
Dóminn kvað upp Jón Erlends-
son. Verjandi var Hafsteinn Haf-
steinsson hæstaréttariögmaður.
-KMU.
Utanríkisráðherra:
„Athyglisverður
sigurhjá
íhaldsmönnum”
—íbresku
kosningunum
„Þetta er athyglisverður sigur
hjá íhaldsmönnum,” sagði Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra,
er hann var inntur álits á úrslitum
bresku þingkosninganna.
„Ihaldsflokkurinn sigrar þrátt,
fyrir að mikið atvinnuleysi ríki nú
á Bretlandseyjum. Það ber því
vitni að menn séu þeirrar skoðunar
að efnahagsbati sé framundan og
telji ekki öðrum betur treystandi
en ihaldsmönnum til að glíma við
þá erfiðleika sem við er að etja.
Mér skilst að þetta sé í fyrsta skipti
sem sitjandi forsætisráðherra úr
röðum íhaldsmanna sigrar í þing-
kosningum.
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra hefur verið mikið í sviðsljós-
inu og skilst mér að kosningabar-
áttan hafi fjallað mikið um persónu
hennar.
Tilkoma þriðja aflsins í bresk
stjórnmál varð til þess aö
kosningasigur íhaldsmanna varð
auðveldari en ella. Flokkurinn tap-
ar lítils háttar, um 1% atkvæða en
bætir þó viö sig fjölda þingsæta
vegna skiptingar atkvæða.
ás.
Biskup vígir
þrjá presta
Biskup Islands, herra Pétur
Sigurgeirsson, vígir á sunnudag
þrjá nýja presta, Bjama Theodór
Rögnvaldsson, Flóka Kristinsson
og Sólveigu Láru Guðmundsdóttur.
Athöfnin verður í Dómkirkjunni og
hefst klukkan 11, að því er fram
kemur í frétt frá biskupsstofu.
Vígsluvottar veröa séra Ölafur
Skúlason dómprófastur, sem lýsir
vígslu, séra Andrés Olafsson,
fyrrum prófastur Strandamanna,
séra Pétur Ingjaldsson, fyrrum
prófastur Húnvetninga, og séra
Hreinn Hákonarson í Sööulsholti.
Séra Hjalti Guðmundsson dóm-
kirkjuprestur þjónar fyrir altari
ásamt biskupi.
Bjami Theodór Rögnvaldsson
hefur verið settur prestur í Djúpa-
vogsprestakalli í Austfjaröa-
prófastsdæmi.
Flóki Kristinsson hefur verið
settur prestur í Hólmavíkurpresta-
kalli á Ströndum.
Sólveig Lára Guömundsdóttir
hefur verið ráðin aðstoðarprestur
viö Bústaðasöfnuö í Reyk javík.
-KMU.