Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Blaðsíða 8
DV. LAUGARDAGUR11. JUNl 1983. 8 ._________________;__________;_____.__ DAGBLAÐIÐ-VÍSIR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaflurogútgáfusljóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI 19. Áskriftarverð á mánuði 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr. Helgarblaö22 kr. Jámfrúin fékk umboðið „Járnfrúin” Margaret Thatcher hefur meö yfirburða- sigri í þingkosningum fengið umboð brezku þjóðarinnar til að halda áfram á braut frjálshyggju. Nú var ljósara en oftast áður, um hvað valið stóð. Fólk veit, hvar þaö hefur frú Thatcher. Línur hafa skýrzt síðustu ár milli tvegg ja stærstu flokk- anna. Ihaldsflokkurinn hefur undir stjórn frú Thatcher valið frjálshyggjuna í stað „miðjumoðsins”. Verka- mannaflokkurinn hefur j afnf ramt haldið til vinstri. Hörð hægri stefna ríkisstjómar íhaldsflokksins gerði hann óvinsælan fyrstu árin. Atvinnuleysi jókst geysilega. Jafnframt sáust lítil merki um efnahagsbata á öðrum sviðum. Straumhvörf urðu við stríðið á Falklandseyjum. Þá þjappaði brezka þjóðin sér um Margaret Thatcher og Ihaldsflokkinn, eins og vænta mátti. Hið athyglisverða er, að íhaldsmenn hafa síðan haft ótvíræða forystu eins og kosningamar í f yrradag sýna bezt. Þar kemur til vaxandi trú á, að verðbólgan hafi minnkað til frambúðar. Verð- bólgan fór úr 22 prósentum árið 1980 í 4 prósent miðað við síðastliðinn mánuð. Hagfræðingar telja, að verðbólga í Bretlandi verði um 7 prósent síðar á árinu, miðað við heilt ár. Þetta er mikill árangur. Þó mun almenningur engan veginn viss í sinni sök, að Thatcher komi Bretum upp úr öldudalnum. Enginn sér til dæmis fram á, að atvinnuleysi minnki. Miklu um sigur Ihaldsflokksins nú veldur vesaldómur Verkamannaflokksins. Með sveigju til vinstri hefur Verkamannaflokkurinn að miklu „spilað sig út úr”. Sú skoðun á mikið fylgi, að flokkurinn bjóði ekki lengur „val- kost”. Hann sé ekki hæfur til að taka við ríkisstjóm. Fólk hefur til dæmis hafnað stefnu Verkamannaflokks- ins um einhliða k jamorkuafvopnun. Flestum fyndist slíkt óðs manns æði gagnvart vígbúnaði Sovétmanna. Bretar vísa nú einnig á bug kenningum Verkamannaflokksins um úrsögn úr Efnahagsbandalaginu. Ösigur Verkamannaflokksins í kosningunum nú er hinn mesti í marga tugi ára. Því miður tókst kosningabanda- lagi frjálslyndra og jafnaðarmanna ekki að komast upp fyrir Verkamannaflokkinn í fylgi, þótt ekki munaði miklu. Vinstri menn í Verkamannaflokknum munu enn hugsa til algerrar valdatöku í flokknum, þótt foringi þeirra, Tony Benn, félli í kosningunum. Mikilvæg spurn- ing næstu árin verður, hvor fylkingin, Verkamanna- flokkurinn eða Bandalag frjálslyndra og jafnaðarmanna, verður „valkosturinn” á móti Ihaldsflokknum í næstu kosningum. Verkamannaflokkurinn þarf aðkúvenda, eigi hann að koma til greina sem fýsilegur kostur á næstu árum. Sigur frjálshyggjunnar í kosningunum er ótvíræður, þótt Ihaldsflokkurinn fengi minna fylgi en hinar tvær fylkingamar til samans. Við verðum að ganga út frá því kerfi, sem gildir í Bretlandi, kerfi einmenningskjör- dæma, rétt eins og kjósendur í hverju kjördæmi. Þegar úrslitin era metin, er sú kenning Sovétmanna lítils virði, að miklu skipti, að Ihaldsflokkurinn fékk ekki hreinan meirihluta atkvæða. Því hefur frú Thatcher fengið ský- laust umboð til að halda áfram þeirri stefnu, sem almenn- ingur í Bretlandi þekkir vel. Hún getur áfram beitt harðri aðhaldsstefnu í efnahagsmálum. Hún getur snúið sér að því að selja ríkisfyrirtæki. Hún getur skert vald forystu- manna verkalýðsfélaga, látið kjósa forystu þeirra al- mennum kosningum í félögunum og krafizt meirihluta- fylgis félagsmanna við verkföll. „Neytenda- vandamáV9 bænda Þegar vora tekur og menn vakna viö fuglakvak á morgni hverjum; þegar sólin stikar upp eftir himnin- um og ætlar aldrei aö setjast á kvöld- in, en svefnþurfi borgarbúar, meö allt of háan blóðþrýsting og stressaö- ir í meira lagi, velta sér í rúmunum, klemma aftur augun en allt kemur fyrir ekki, svefninn víkst fimlega undan ásókn þeirra, þá er komin röö- in aö „landbúnaöarvandamálinu”. Allan veturinn hefur lítið boriö á því en þeim mun meira á kvefi og öörum kvillum sem leggjast á fótkalda Is- lendinga. En þegar kvefið víkur fyrir hækkandisól stingur,,landbúnaöar- vandamálið” uppkollinumaönýju. Kannski er það vegna þess aö þaö er fyrst á sumrin, þegar menn fara í frí, aö þeim gefst tími til þess aö hug- leiða landsmálin. Kannski er þetta vegna þess aö bæir, bændur og búalið fara undir snjó snemma á vetri hverjum og ber lítið á þeim fyrr en í vorleysingum. En hvaö sem veldur er það víst aö eitt óbrigðulasta vor- merki sem finna má í íslenskum fjöl- miðlum er „landbúnaðarvanda- máliö”. Þaö fréttist yfirleitt af því nokkrum dögum fy rr en lóunni. Þó var „landbúnaöarvandamálið” seint á feröinni þetta áriö. Övenju- seint. Þaö var ekki fyrr en fréttist af ódýrri jógúrt í verslun í Reykjavík að það rifjaðist upp fyrir lands- mönnum aö „vorboðinn ljúfi” haföi ekki látiö til sín heyra til þessa. En þá var aö sjálfsögðu brugðið hart við. Kjarni málsins er sá aö hér í Reykjavík er þaö hiö ágæta fyrirtæki Mjólkursamsalan sem tekiö hefur aö sér aö sjá Reykvíkingum fyrir mjólk og mjólkurafuröum, á hverju sem dynur. Eins og gefur aö skilja gengur það á stundum misvel því Island er haröbýlt land og þar er allra veðra von. Því er mjólkin stundum súr, þegar hún kemur til Reykvíkinga, því hiti í sveitum landsins hefur ver- ið óskynsamlega hár! En því verða menn að taka meö rósemd því aö eins og áöur sagöi er allra veöra von á þessu isa kalda landi. En þrátt fyrir allt hefur tekist vel aö sjá Reykvíkingum fyrir mjólk og er þaö ekki síst að þakka ódeigum bændum þessa lands sem brjótast af hörku út í fjós, á öllum tímum sólar- hringsins, hvemig sem viörar, og hversu mikiö sem f óöurbætisskattur- innhækkar. Þannig hefur viöhaldist byggö í Reykjavík í áranna rás, byggöin vaxið og dafnaö, börnin vaxiö úr grasi glöö og hraust! En allar mjólkurafurðir eru for- gengilegar, og í mysunni leynist stundum maökur! Svo fór aö verslun í Reykjavík varö sér úti um jógúrt frá fyrirtæki sem ekki heitir Mjólkursamsala Reykjavíkur! Þessi verslun bætti síðan gráu ofan á svart meö því aö selja þessa aöfengnu jógúrt á lægra veröi en jógúrt þá sem Mjólkursamsalan bauöfram! Ef þaö er eitt einkenni umfram önnur, sem ræktast hefur upp meö Islendingum í aldanna rás, mótaö af því þrotlausa striti sem þaö útheimti aö krafsa lifibrauö sitt úr rýrri mold í vondum veörum, er þaö þraut- seigjan! Og nú sýndu forsvarsmenn Mjólkursamsölunnar þrautseigju ásamt íblandaöri staðfestu. Þeir geröu ekkert í máUnu! Eins og Nelson flotaforingi foröum settu þeir kíkinn yfir bUnda augað og vonuöust til þess aö þessu leiðindamáU lyki semfyrst. En jógúrtin hélt áfram aö berast! Og ábyrgðarlausir Reykvíkingar létu sem þeir hefðu aldrei heyrt af byggðastefnunni, létu sem þeh- vissu ekki af óeigingjörnu starfi bænda- stéttarinnar undir erfiðustu kring- umstæðum til þess aö sjá þeim fyru- mjólk. Þessir vanþakklátu, (svo maöur segi ekki óþjóölegu) Reykvík- Uigar keyptu jógúrtina, átu hana og, eins og Olíver Twist, báöu þeir um meU-a! Viö svo búiö mátti ekki standa, aö sjálfsögöu. Reykvíkmgar voru þama aö fóma langtímahagsmunum sín- um og þjóöarinnar, byggöastefnu- sjónarmiöum og menningararfleiö þjóöarmnar, á altari Mammons! Þessi jógúrtarsala varstöövuð. EðlÚeg ráðstöfun og sjálf- sögð, því þaö er aldrei að vita hvar þetta hefði tekið enda. Hver veit nema á eftir jógúrtinni hefði fylgt skyr? Og síðan mysa? Eftir þaö getur enginn spáð hvaö gerst hefði. Kannski heföi komið upp fjölda- hreyfing í Reykjavík fyrU- kjör- Úr ritvéHnni OlafurB. Guðnason dæmabreytingu? Hver veit nema stóriöjuspekúlantar heföu farið að færa sig upp á skaftið? Og kannski heföu Bandaríkjamenn sett hér upp eldflaugar! Þaö er löngu kominn tími til þess aö menn geri sér grein fýrir því aö þaö er ekkert tU sem heitir ,,land- búnaðarvandamál”! I landbúnaöin- um em engin vandamál! Nóg af bæjum. Nóg af bændum. Nóg af bú- fénaöi. I stuttu máli sagt, allt í himnalagi! Þaö er sem sagt ekki „land- búnaöarvandamál” sem viö er að eiga, þó fjölmiölar blási þaö upp á sinn ósanngjama máta. Hér er fyrst og fremst um „neytendavandamál” aðræða! Neytendavandamálið er í eöU sínu einfalt. Þaö er ekki svo aö neytendur séu of fáir! Það er heldur hitt að þeir eru lystarlausU-, og stundum jafnvel matvandir, sem er auðvitað hálfu verra. Þannig er þaö hlutverk yfir-, manna landbúnaöarmála, ráöherra og forsvarsmanna bændasamtaka að leika hrna þolgóöu húsmóður meðan Reykvíkingar og aörU þeir, sem ekki starfa beint að landbúnaöi, leika óvitann í eldhúsinu. Yfirmenn landbúnaðarmála plokka feitan síöubita úr frysti- geymslum lambakjöts og segja: „Einn fyrir pabba...” Ovitinn bregst hinn versti viö, ekki síst þegar fyrir hann era bomar ófriöar kartöflur, skorpnari en tU-æö langamma, og þá veröa yfirmenn landbúnaöarmála auðvitaö aö beita óvitann hörðu. Það verður aö hafa vit fyrir þessu fólki! Og ef ykkur líkar ekki viö jógúrtina, þá skuluð þið passa upp á eggin! Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.