Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Síða 13
DV. LAU GARDAGUR11. JUNl 1983.
S 1*0 skupaffl Guð
h t/njamis rét íið
Batakar á eynni Jövu kunna frá
eftirfarandi ævintýri að segja:
Skaparinn bjó til allt: Himin og jörð,
sól og mána, stjömur og tré, haf og
meginlönd. Og þá ákvaö hann að gera
líka lifandi verur. Hann tók jarðleir og
gerði úr honum mynd. Hún var líflaus.
Þá kallaði skaparinn einn af öndunum
sínum á sinn fund og lokaði hann inni í
höfði leirmyndarinnar. „Svona er
þetta gott,” sagöihann.
Andinn hreyfði sig inni í höfði
myndarinnar. Hann vildi komast út.
En leirinn gaf ekki eftir. Við umbrotin
féll leirmyndin þó um koll og datt sund-
ur í marga mola. Og allir voru þeir lífi
gæddir þar sem andinn hafði gætt þá
sál. Molamir þeyttust í skyndi í burtu
og bámst út um víöa veröld. Þeir urðu
að illvættum. Þannig urðu djöflar til í
heiminum.
Skaparinn braut heilann. Þetta var,
óþolandi! Einbeittur hnoðaöi hann
aðra mynd úr leimum. Hún liktist
manni. Skaparinn gaf honum þrenns
konar mátt: Líf og tilfinningu, vilja og
skaphöfn, anda og sál. Veran hreyfði
sig og vaknaði til lífsins. Maðurinn
varð til.
Þá sagði skaparinn: ,,Hví skyldi
maðurrn vera gleðivana í heiminum?
Og hvernig á hann einn að auðga jörð-
ina sem íbúi hennar. ”
Hann ákvað að gefa manninum
konu. En þá tók skaparinn eftir því að
ekkert efni var til í konuna. Hvað
skyldi nú til bragðs taka? „Það verður
að vera falleg kona,” sagði hann og
renndi augum yfir sköpun sína. Hann
veitti mörgu athygli: Hring mánans,
spengileika tágarinnar, hreyfingum
slöngunnar, vafningi klifurplöntunnar,
titringi grassins. Hann hnaut um ilm
blómanna og léttleika blaðanna, gleði
sólargeislans og tár skýjanna, sætleika
hunangsins, hræöslu fuglsins, hégóma-
girni páfuglsins, málæði dúfunnar,
þokka svölunnar. Hann nam fegurð
gimsteinsins, finleika dúnfjaðrarinnar
og hiö blíða augnaráð dádýrsins. Or
þessu öllu gerði hann leöju.
Or leðjunni hnoðaöi hann svo konu.
Hann gaf henni líka þrjá eiginleika
mannsins og hún vaknaöi til lífsins.
Skaparanum var það ljóst að hún bar
af öllu í heiminum hvað snerti yndis-
þokka og fegurð. Hann leiddi konuna
til mannsins og mælti: „Hún á að
verða konan þín. Verið nú hamingju-
sömsaman.”
Maðurinn tók í hönd konu sinnar og
leiddi hana burt. Nokkru síðar kom
maðurinn til skaparans og var i vondu
skapi. „Herra,” hrópaði hann, lyfti
höndum yfir höfuö sér og barði saman
hnefum og sagði því næst: „Þessi kona
er að gera út af við mig! Hvemig á ég
að geta fullnægt öllum kröfum hennar?
Hún er simalandi, alltaf full af nýjum
hugmyndum! Hún er meö sífellda
kveinstafi og er oftar veik en heil-
brigð!”
„Gott og vel,” svaraði skaparinn.
„Fyrst þú ert svona óánægður, skal ég
losa þig við hana!” Og hann tók aftur
viökonunni.
Varla var vikan liðin þegar maður-
inn kom aftur hlaupandi. „Herra,”
sagði hann. „Eg erhræðilega einmana
síðan konan fór frá mér. Hún söng og
nú er allt svo þögult. Hún dansaði en nú
er engin hreyfing. Hún lék sér með mér
en nú er enginn leikur lengur. Um
þetta hef ég hugsað síðustu viku. Lífið
er gleðisnautt og dapurt án hennar.”
Þá gaf skaparinn manninum konuna
aftur.
Skömmu seinna kom maðurinn enn
til skaparans.
„Herra,” kveinaöi hann. „Eg veit
ekki hvað ég á að gera. Núna, þegar ég
hef fengið konuna aftur, er mér það
ljóst að hún veldur mér meiri gremju
en gleði. Eg er alveg að gefast upp.
Taktu við henni aftur! ”
Þá hristi skaparinn höfuöið. „Þú
segir eitt í dag og annað á morgun.
Reyndu nú einu sinni enn. Komið ykk-
ursaman,kostiðkapps umþað!”
„Húnersvo þrætugjörn, herra! ”
„Láttu það lönd og leið,” sagði þá
skaparinn.
„Vel hefur þú mælt, herra. En þetta
endar með örvæntingu,” sagði þá
maðurinn.
En skaparinn lét ekki undan. Til þess
þó að gera máliö auðveldara fyrir
manninn, bauð hann aö konan skyldi
verða manninum undirlát, hún skyldi
hlýða honum í öllu. „Þá ætti allt að
ganga betur fyrir sig,” sagði skapar-
inn.
Og við það lét maðurinn sig — og bjó
með konu sinni, undirgefinni, eftir-
leiðis og svo er enn.
13
Notaðir lyftarar
Sýnum og seljum næstu daga raf-
magns- og dísillyftara á gamla
genginu.
Lyftararnir eru til sýnis hjá okkur
aðVitastíg3.
Opið nk. laugardag.
K. JÓNSSON & CO. HF.
s l ll.l.
Símar 91-26455
91-12452.
Vitastíg 3
Simi 91-26455
OPIÐ KL. 10 — 16 í DAG.
TÖCCUR HF.
SAAB UMBOÐÍÐ
SÍMI 81530
Seljum í dag
8 cyl.f sjálfskiptur,
ekinn aðeins 46.000 km.
Skipti möguleg,
góð kjör.
SÆNSK-ÍSLENZK
VERÐBYITING
Á ELEG’ROLUXbw2oo
UPPÞVOTTAVÉLUM
Við gerðum góð kaup með því að kaupa 213 Eledrolux BW 200
GOLD uppþvottavélar í einu lagi. Þannig fengum við verulegan
afslátt sem kemur þér til góða.
Fullkomin uppþvottavél á afsláttarverði, ein hljóðlátasta vélin
á markaðnum - frábær þvottakerfi (með sparnaðarrofa) - öfl-
ugar vatnsdælur sem þvo úr 100 ltr. á mínútu - þrefalt yfirfalls-
öryggi - Ryðfrítt 18/8 stál í þvottahólfi - Barnalæsing á hurð -
Rúmar borðbúnað fyrir 12-14 manns.
FuIIkomin Electrolux BW 200 uppþvottavél á tilboðsverði sem
þú trúir tæpast - og ekkert vit er í að hafna.
VERÐLISTAVERÐ OKKAR VERÐ .
Kf.25í271,^
i
Kr. 17.49
Vörumarkaðurinn hf.
ARMULA 1A S 86117