Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Blaðsíða 14
14 DV. LAUGARDAGUR11. JUNl 1983. „TARA EITT, SEAA EITT, SAADRA!9’ greint frá myndinni Skllaboðtil Söndru og rætt við leikstjðrann9 Kri§tínu Pálsdóttur myndin. Jökull sér þetta á ákaflega íronískan hátt og texti hans, t.d. día- lógamir, er mjög góöur. Okkur fannst þetta alveg rakiö efni í mynd! ” Kvikmynd — Þaö hefur veriö gagnrýnt aö flest- ir íslenskir kvikmyndageröarmenn sækja efniviö í bókmenntir. Jafnvel talaö um aö verið sé aö „myndskreyta bækur”. Hvað viltusegja umþaö? Alex De Waal kvikmyndatökumaður i kulda og trekki en tílbúinn i Veitingahúsiö Naustiö var iðandi af lífi mánudaginn 6. júní. I matsalnum sátu gestir veitingahússins og fengu sér kaffi og annaö góögæti. En á efri hæö hússins var annað uppi á teningn- um. Harðsnúiö liö frá kvikmyndafélag- inu Umba var aö leggja síöustu hönd á nauösynlegan undirbúning fyrir fyrstu töku myndarinnar Skilaboð til Söndru. Er blaöamenn DV bar að garði var Ragnheiður Harvey aö leggja síöustu hönd á föröun Bessa Bjarnasonar, aðalleikara myndarinnar, og leikstjóri myndarinnar, Kristín Pálsdóttir, að gefa leikurunum síðustu fyrirskipanir. Uti á Vesturgötunni, fyrir utan Naustið, voru þeir Einar Bjamason kvikmyndatökumaöur, Böövar Guö- mundsson hljóöupptökumaður og þeirra liö komnir í startholurn- ar. „Taka eitt" Innan örfárra mínútna voru þeir Bessi Bjamason og Benedikt Arnason tilbúnir. Allt tilbúið í fyrstu töku Skilaboða til Söndru og Elín Þóra Friðfinnsdóttir skrifta gengur fram meö klappstykkiö fræga: ,,Take one, scene one, Sandra”. Upptökur eru hafnar. Áætlun 3,8 milljónir En hverjir standa aö baki kvik- myndafélagsins Umba? „Þaö eru Kristín Pálsdóttir, sem er leikstjóri myndarinnar, Guðný Halldórsdóttir handritshöfundur og framkvæmda- stjóri, Ragnheiður Harvey, sminka og búningahönnuöur, og ég sem er upp- tökustjóri,” segir Ámi Þórarinsson. „Þetta er rúmlega meöalmynd hvaö kostnaö varðar. Aætlunin hljóöar uppá 3,8milljónir. Upptökur hófust G. júní og munu standa yfir til 10. júlí. Fara þær aðal- lega fram í sumarbústað í Mosfells- sveit, en einnig í Reykjavík. I lok júlí- mánaðar berst leikurinn svo alla leiö- ina til Grikklands en þar verður kvik- myndað í þrj á daga,” segir Ámi. Þau „Umbar” hafa fengið tU liðs viö sig harösnúiö Uö leikara, jafnt atvinnu- sem áhugaleikara. Fyrstan er aö telja Bessa Bjamason sem leikur aöalpersónu myndarinnar, Jónas rithöfund. Þaö er langstærsta hlutverkið enda kemur hann fram í hverri einustu senu myndarinnar að kalla. Jónas er rithöfundur sem fengið hefur þann starfa að semja kvik- myndahandrit fyrir ítalskt kvik- myndafyrirtæki um líf Snorra Sturlu- sonar. Hann ræöur til sín ráðskonu, Söndru, sem kvikmyndagerðameminn Ásdís Thoroddsen leikur. Á daginn kemur aö ráöskonunni er margt tU lista lagt en ekki getur hún eldaö hafragraut — hvaö þá annað. En Sandra veldur umróti í huga Jón- asar. Hún sýnir hinum veraldarvana rithöfundi nýja hliö á mannlífinu. Vinir Söndru koma inn í myndina og Bessi Bjarnason (Jónas) og Benedikt Árnason (Bensi) tilbúnir í töku. Í kringum myndavélina eru Alex De Waal og Einar Bjarnason, Sigurður Grimsson og Kristin Pálsdóttir. gamlir draugar úr fortíö Jónasar gera vart viösig. Ráðskonan hverfur um síðir úr lífi Jónasar en í ljós kemur að Jónas er ekki samur maöur eftir. Hann gefst upp á handritasmíð og í lok myndar- innar er hann kominn til Grikklands ráðinn í því aö byrja upp á nýtt. Þekkt fólk í aukahlutverkum Hlutverk þeirra Bessa og Ásdísar em veigamestu hlutverkin en fjöldi annarra persóna kemur viö sögu. Meöal helstu leikara era: Benedikt Tæknideildin: Kvikmyndatökumaöur er Einar Bjamason en hann hefur um langt skeið starfað fyrir sænska sjónvarpið og einnig tekiö fjölda kvikmynda. Hljóöupptökumaður er Böðvar Guö- mundsson. Leikmynd geröi Hákon Oddsson með þá Björn Br. Björnsson og Snorra Svein Friðriksson sér til aö- stoðar, skrifta er Elín Þóra Friðfinns- dóttir. A Árni Þórarinsson upptpkustjóri og Kristin Pálsdóttir leikstjóri standa á bak við kvikmyndafélagið Umba ásamt Guðnýju Halldórsdóttur hand- ritshöfundi og Ragnheiði Harvey sminku. Arnason (Bensi), Bryndís Schram (Eyrún, gömul vinkona Jónasar), Rósa Ingólfsdóttir (Eygló), Andrés Sigurvinsson (Kobbi kynvillti), Bjöm Björnsson (Brúsi, félagi Söndru), Bubbi Morthens (Nonni, félagi Söndra), Þorlákur Kristinsson (Þor- lákur, félagi Söndru), Elías Mar (Pétur Dunhill), Guöbjörg Thoroddsen (hjúkrunarkona), Aöalsteinn Bergdal (læknir), Birna Þóröardóttir (lög- regluþjónn). Bjarni Bessason, sonur Bessa Bjarnasonar, leikur svo Jónas semunganmann. „Lýrískt og myndrænt verk" Blaðamaöur DV ræddi við Kristínu Pálsdóttur leikstjóra Skilaboöa til Söndra á dögunum og spuröi fyrst hvers vegna lagt heföi verið til atlögu viö þetta verk Jökuls Jakobssonar. „Þaö má rekja til þess að eftir lestur bókarinnar voram viö Guöný Halldórs- dóttir sammála um aö verkiö byði upp á góöa möguleika til kvikmyndunar. Hugmyndin lá niöri um nokkurt skeiö en um síöustu áramót hófumst viö handa um undirbúning. Endanlega var ákveöiö að kvikmynda Skilaboð til Söndra eftirað600 þúsundkrónastyrk- ur fékkst úr kvikmyndasjóði. Okkur fannst Skilaboð tii Söndra vera lýrískt og myndrænt verk og það kveikti í okkur áhugann. Þaö er heil- mikill söguþráður í því. Temaö um mann sem er að leita aö tilgangi í lífinu höföaði til okkar. Okkur birtast tvær kynslóöir í þeim Jónasi og Söndru, tvær kynslóðir með ákaflega mismun- andi lífsviðhorf og um þetta snýst „Við eram ekki að myndskreyta bók- ina. Það er alveg á hreinu. Við eram aö gera KVIKMYND og notum okkur kvikmyndatæknina til aö segja þessa sögu. Sumum þykir ekki nógu fínt þeg- ar ekki er um frumsamiö handrit aö ræöa. En ég segi eins og er: Mér finnst ekki skipta máli hvaöan efniviðurinn kemur ef hann er góöur.” — FrásögnJökulseröllífyrstuper- sónu eintölu. Hvernig verður frásagn-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.