Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Side 14
14
DV. LAUGARDAGUR11. JUNl 1983.
„TARA EITT, SEAA EITT, SAADRA!9’
greint frá
myndinni
Skllaboðtil
Söndru og
rætt við
leikstjðrann9
Kri§tínu
Pálsdóttur
myndin. Jökull sér þetta á ákaflega
íronískan hátt og texti hans, t.d. día-
lógamir, er mjög góöur. Okkur fannst
þetta alveg rakiö efni í mynd! ”
Kvikmynd
— Þaö hefur veriö gagnrýnt aö flest-
ir íslenskir kvikmyndageröarmenn
sækja efniviö í bókmenntir. Jafnvel
talaö um aö verið sé aö „myndskreyta
bækur”. Hvað viltusegja umþaö?
Alex De Waal kvikmyndatökumaður i kulda og trekki en tílbúinn i
Veitingahúsiö Naustiö var iðandi af
lífi mánudaginn 6. júní. I matsalnum
sátu gestir veitingahússins og fengu
sér kaffi og annaö góögæti. En á efri
hæö hússins var annað uppi á teningn-
um. Harðsnúiö liö frá kvikmyndafélag-
inu Umba var aö leggja síöustu hönd á
nauösynlegan undirbúning fyrir fyrstu
töku myndarinnar Skilaboð til Söndru.
Er blaöamenn DV bar að garði var
Ragnheiður Harvey aö leggja síöustu
hönd á föröun Bessa Bjarnasonar,
aðalleikara myndarinnar, og leikstjóri
myndarinnar, Kristín Pálsdóttir, að
gefa leikurunum síðustu fyrirskipanir.
Uti á Vesturgötunni, fyrir utan
Naustið, voru þeir Einar Bjamason
kvikmyndatökumaöur, Böövar Guö-
mundsson hljóöupptökumaður og
þeirra liö komnir í startholurn-
ar.
„Taka eitt"
Innan örfárra mínútna voru þeir
Bessi Bjamason og Benedikt Arnason
tilbúnir.
Allt tilbúið í fyrstu töku Skilaboða til
Söndru og Elín Þóra Friðfinnsdóttir
skrifta gengur fram meö klappstykkiö
fræga: ,,Take one, scene one, Sandra”.
Upptökur eru hafnar.
Áætlun 3,8 milljónir
En hverjir standa aö baki kvik-
myndafélagsins Umba? „Þaö eru
Kristín Pálsdóttir, sem er leikstjóri
myndarinnar, Guðný Halldórsdóttir
handritshöfundur og framkvæmda-
stjóri, Ragnheiður Harvey, sminka og
búningahönnuöur, og ég sem er upp-
tökustjóri,” segir Ámi Þórarinsson.
„Þetta er rúmlega meöalmynd hvaö
kostnaö varðar. Aætlunin hljóöar uppá
3,8milljónir.
Upptökur hófust G. júní og munu
standa yfir til 10. júlí. Fara þær aðal-
lega fram í sumarbústað í Mosfells-
sveit, en einnig í Reykjavík. I lok júlí-
mánaðar berst leikurinn svo alla leiö-
ina til Grikklands en þar verður kvik-
myndað í þrj á daga,” segir Ámi.
Þau „Umbar” hafa fengið tU liðs viö
sig harösnúiö Uö leikara, jafnt atvinnu-
sem áhugaleikara.
Fyrstan er aö telja Bessa Bjamason
sem leikur aöalpersónu myndarinnar,
Jónas rithöfund. Þaö er langstærsta
hlutverkið enda kemur hann fram í
hverri einustu senu myndarinnar að
kalla. Jónas er rithöfundur sem fengið
hefur þann starfa að semja kvik-
myndahandrit fyrir ítalskt kvik-
myndafyrirtæki um líf Snorra Sturlu-
sonar. Hann ræöur til sín ráðskonu,
Söndru, sem kvikmyndagerðameminn
Ásdís Thoroddsen leikur. Á daginn
kemur aö ráöskonunni er margt tU
lista lagt en ekki getur hún eldaö
hafragraut — hvaö þá annað.
En Sandra veldur umróti í huga Jón-
asar. Hún sýnir hinum veraldarvana
rithöfundi nýja hliö á mannlífinu.
Vinir Söndru koma inn í myndina og
Bessi Bjarnason (Jónas) og Benedikt Árnason (Bensi) tilbúnir í töku. Í
kringum myndavélina eru Alex De Waal og Einar Bjarnason, Sigurður
Grimsson og Kristin Pálsdóttir.
gamlir draugar úr fortíö Jónasar gera
vart viösig.
Ráðskonan hverfur um síðir úr lífi
Jónasar en í ljós kemur að Jónas er
ekki samur maöur eftir. Hann gefst
upp á handritasmíð og í lok myndar-
innar er hann kominn til Grikklands
ráðinn í því aö byrja upp á nýtt.
Þekkt fólk í aukahlutverkum
Hlutverk þeirra Bessa og Ásdísar
em veigamestu hlutverkin en fjöldi
annarra persóna kemur viö sögu.
Meöal helstu leikara era: Benedikt
Tæknideildin:
Kvikmyndatökumaöur er Einar
Bjamason en hann hefur um langt
skeið starfað fyrir sænska sjónvarpið
og einnig tekiö fjölda kvikmynda.
Hljóöupptökumaður er Böðvar Guö-
mundsson. Leikmynd geröi Hákon
Oddsson með þá Björn Br. Björnsson
og Snorra Svein Friðriksson sér til aö-
stoðar, skrifta er Elín Þóra Friðfinns-
dóttir.
A
Árni Þórarinsson upptpkustjóri og Kristin Pálsdóttir leikstjóri standa á
bak við kvikmyndafélagið Umba ásamt Guðnýju Halldórsdóttur hand-
ritshöfundi og Ragnheiði Harvey sminku.
Arnason (Bensi), Bryndís Schram
(Eyrún, gömul vinkona Jónasar),
Rósa Ingólfsdóttir (Eygló), Andrés
Sigurvinsson (Kobbi kynvillti), Bjöm
Björnsson (Brúsi, félagi Söndru),
Bubbi Morthens (Nonni, félagi
Söndra), Þorlákur Kristinsson (Þor-
lákur, félagi Söndru), Elías Mar
(Pétur Dunhill), Guöbjörg Thoroddsen
(hjúkrunarkona), Aöalsteinn Bergdal
(læknir), Birna Þóröardóttir (lög-
regluþjónn). Bjarni Bessason, sonur
Bessa Bjarnasonar, leikur svo Jónas
semunganmann.
„Lýrískt og myndrænt verk"
Blaðamaöur DV ræddi við Kristínu
Pálsdóttur leikstjóra Skilaboöa til
Söndra á dögunum og spuröi fyrst
hvers vegna lagt heföi verið til atlögu
viö þetta verk Jökuls Jakobssonar.
„Þaö má rekja til þess að eftir lestur
bókarinnar voram viö Guöný Halldórs-
dóttir sammála um aö verkiö byði upp
á góöa möguleika til kvikmyndunar.
Hugmyndin lá niöri um nokkurt skeiö
en um síöustu áramót hófumst viö
handa um undirbúning. Endanlega var
ákveöiö að kvikmynda Skilaboð til
Söndra eftirað600 þúsundkrónastyrk-
ur fékkst úr kvikmyndasjóði.
Okkur fannst Skilaboð tii Söndra
vera lýrískt og myndrænt verk og það
kveikti í okkur áhugann. Þaö er heil-
mikill söguþráður í því. Temaö um
mann sem er að leita aö tilgangi í lífinu
höföaði til okkar. Okkur birtast tvær
kynslóöir í þeim Jónasi og Söndru,
tvær kynslóðir með ákaflega mismun-
andi lífsviðhorf og um þetta snýst
„Við eram ekki að myndskreyta bók-
ina. Það er alveg á hreinu. Við eram aö
gera KVIKMYND og notum okkur
kvikmyndatæknina til aö segja þessa
sögu. Sumum þykir ekki nógu fínt þeg-
ar ekki er um frumsamiö handrit aö
ræöa. En ég segi eins og er: Mér finnst
ekki skipta máli hvaöan efniviðurinn
kemur ef hann er góöur.”
— FrásögnJökulseröllífyrstuper-
sónu eintölu. Hvernig verður frásagn-