Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Síða 16
16 f DV. LAUGARDAGUR11. JUNI1983. Fulltrúi/Birgöastjórn Öskum eftir aö ráða fulltrúa í birgöastofnun varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt að skipulagningu og stjórnun verkefna. Æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á tölvuvæddu birgða- bókhaldi. Mjög góð enskukunnátta skilyrði. Umsóknir sendist ráðningarskrifstofu varnarmáladeildar, Keflavíkurflugvelli, eigi síðar en 22. júní. Nánari uppl. veittar í síma 92-1973. ILÓÐIR FYRIR ÍBÚÐARHÚS Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar nokkrar lóðir fyrir rað- hús og parhús. Lóðirnar eru fljótlega byggingarhæfar. Nánari uppl. veitir skrifstofa bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, þar meðtaliö um gjöld og skilmála. Umsóknum skal skilaö á sama staö eigi síðar en 21. júní nk. bÆjarverkfræðingur. Til sölu er stórglæsilegur Volvo 244 GL m GLT útlit árgerð 1982 Litur: grásanseraður. Ýmsir aukahlutir, svo sem electronisk kveikja, stereo tæki, auka dekk, álfelgur, skyggni á afturrúðu ofl. ofl. Verð 425.000,-. Greiðslukjör. Skipti koma til greina. Uppl. í síma 66846 og 14685 — Bjarni.. ÚTBOÐ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð Sauðárkróks- brautar innan Sauðárkróks. Helstu magntölur eru: Lengd Skering Fylling Burðarlag 2,2 km 5400 rúminetrar 11200 rúmmetrar 11300 rúmmetrar Verkinu skal að fullu lokiö eigi síöar en 1. okt. 1983. Ut- boðsgögn verða afhent á skrifstofu Vegageröar ríkisins, Borgarsíðu 8 Sauðárkróki, frá og með mánudeginum 13. júní nk. gegn 1.000 kr. skilatryggingu. Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og/eða breyt- ingar skulu berast Vegagerð ríkisins skriflega eigi síöar en 20. júní. Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila í lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar ríkisins, Sauöárkróki, fyrir kl. 14.00 23. júní 1983 og kl. 14.15 sama dag verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Reykjavik, í júní 1983 VEGAMÁLASTJÓRI UNESCO, menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur sent öllum aðildarríkjum sínum upplýsingar um nokkrar lausar stöður við stofnunina, sem sérstaklega eru ætlaðar umsækjendum, sem eru 35 ára og yngri. Starfsheitin eru: Aðstoðarbókavörður við Alþjóðafræðslumálaskrifstofuna í Genf; starfsmaður við tækjaval og tækjakaup við þróunardeild; sérfræðingur við tölvuskráningu í bókasafni UNESCO; sérfræöingur viö kennsludeild náttúruvísinda; starfsmaður viö útgáfustörf, og starfsmaður við skipulagningu menningarstarfs. Umsækjendur skulu allir hafa háskólapróf og góöa kunn- áttu í ensku og frönsku. Sérstök eyðublöð og nánari upplýs- ingar er að fá hjá menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 25. júní 1983, merktar UNESCO. Menntamálaráðuneytið 6. júní 1983. Aörar dimmuborgir — svipast um á skrítnum slódum í Ögmundarhrauni vid Grindavík Suðurhluti Reykjanesskaga er ekki í alfaraleiö. Þjóðbrautin liggur tugi kílómetra frá, og því hefur svo veriö lengi aö fáir feröamenn hafa lagt leiö sína til þessa landshluta. Þaö veröur aö teljast miöur, ef höfö er í huga sú merkilega en jafnframt hrikalega náttúrufegurð sem þar gefst aö skoða. / Katlahrauni Einhver sérstæðasti staður suöur- strandar Reykjanesskagans er án efa ögmundarhraun. Þaö liggur milli Grindavíkur og Krísuvíkur — á lág- lendinu milli fjalls og fjöru — og þekur um sextán ferkílómetra í þaö heila. I hrauninu er að finna marga sér- kennilega staði. Einn þeirra er þar sem heitir í Katlahrauni. Hann er nán- ast inni í miðju ögmundarhrauni og er harla vandfundinn enda hafa fáir Is- lendingar séð hann. Staöurinn er eigin- leg sigdæld og markast af háum hraun- veggjum allt í kring. Þegar gengiö er fram á brún sig- dældarinnar er sem yfir víðfeöman íþróttaleikvang að líta, slík er lögun hennar. Niöri í þessari hraunborg er yfir illfært og gróft helluhraun að fara, sem er víöa sprungiö, og því hættulegt yfirferöar en fjölbreytnin í landslag- inu þarna er töfrandi og svo til enda- laus. Háa hraunstapa er aö finna niðri í dældinni svo og ýmsar aðrar sérstæöar hraunmyndanir, svo sem þar sem helluhrauniö hefur brotnað í hluta og staflast upp í þyrpingar og myndaö allskyns hella og skúmaskot. Hellar og skútar I veggjunum eða hraunfjöllunum sem afmarka sigdældina eru margir hellar, misstórir eins og gengur, en þeir stærstu eru allt aö tiu metra langir og álika háir. Litlir bergskútar eru um allt í veggjunum og á einum stað er eins og þeir myndi eins konar hillu- samstæöu í hraunf jallinu. A öörum staö má skoöa einhverja sér- kennilegustu hraunmyndun sigdældar- innar. Þar jafnast lögun bergsins á viö kirkjuhurö! „Ef huldufólk er á annaö borö til, þá býr það þarna,” lét einhver hafa eftir sér sem leið átti um. Þessi náttúrlega hurö sést á einni ljósmynd- inni sem fylgir þessum texta og er rétt að geta aö hún er um tveir metrar á hæö en breiddin um hálfur annar metri. I heild sinni minnir þessi hraunborg í ögmundarhrauni — sigdældin og hraunveggirnir í kringum hana — mjög á Dimmuborgir í Mývatnssveit. Gróðurinn er þó ekki eins mikill og nyrðra en kynjamyndimar og sér- kennileg lögun hraunsins er allt eins mikil. Og fyrst minnst er á gróöur þá er vert aö geta þess aö fyrir utan mos- ann vex í þessari hraunborg um eins metra hár burkni um hásumartímann, og segja þeir sem komiö hafa á staðinn á þeim tíma að hvergi annars staöar í landinu hafi þeir séð svo merkilegt blómskrúö sem þennan burknagróöur inni í stórbrotnu helluhrauninu. ögmundur og vegurinn Nafn sitt dregur ögmundarhraun af manni þeim sem fyrstur er álitinn hafa rutt vegslóöa yfir þetta illfæra svæöi. Er sagt frá því í heimildum f rá átjándu öld aö ögmundur nokkur hafi rutt veg um hrauniö og veriö myrtur aö launum austan viö þaö, þar sem dys hans sé. Á nítjándu öldinni voru svo skráöar ítar- legri sagnir um ögmund þennan. Jón Vestmann prestur í Selvogi skráir sögu um ögmund og ögmundarhraun tvisv- ar á fyrri hluta nítjándu aldar. Hjá honum er sagan lík um ögmund, nema þar vinnur hann við vegagerðina gagn- gert til aö fá dóttur bónda nokkurs í héraðinu sér til handa, en bóndi drepur hann sofandi áður en hann fær hennar. Brynjólfur frá Minna-Núpi skráði einnegin sögu um ögmund og þetta hraun sem við hann er kennt á síðari hluta nítjándu aldar. Þar er sagan svipuö hinum fyrri en vegurinn um ög- mundarhraun fær þessa einkunn: Eru í hrauni ögmundar ótal margir þröskuldar fáka meiða fæturnar og fyrir oss brjóta skeifurnar. Deift um aldur Annars hefur mikið veriö skrifaö um ögmundarhraun sem slíkt. Einkum og sér í lagi hefur mikið verið fjallaö um hugsanlegan aldur þess — og eru menn ekki á eitt sáttir um hvenær þetta hraun hafi flætt yfir. Þó er vitaö meö vissu aö það hafi gerst eftir aö land- nám hófst. Er ögmundarhraun sam- kvæmt því yngsta hraunið á Reykja- nesskaga. En hvenær í sögu Islandsbyggð- ar hraunið rann eru menn ekki vissir um og um getgátur eru menn ekki sammála, sem fyrr segir. Hafa menn reyndar skipst í tvo nokkuö vel af- markaða hópa í þessum efnum. Vill annar ætla að hrauniö hafi runn- iö á fyrri hluta elleftu aldar, nánar tiltekið áriö 1010, og byggir hann þá ágiskun sína á geislakolsaðferöinni svokölluöu, þar sem tekin eru sýni víða úr hrauninu og þau aldursgreind á rannsóknarstofu. Hinn hópurinn rýnir fremur í rit- heimildir en jarösýni og telur þær gefa eölilegri og raunhæfari vísbendingu um aldur hraunsins. Er bent á að ekki sé getið hraungosa á Reykjanesskaga í heimildum fyrr en komi fram á Fjölmargir hellar eru i hraunveggjunum sem umlykja sigdældina. Þeir stærstu um tiu metra langir og annað eins á hæðina. / hellismunna. Sprungið og tætingslegt hraunið með hraunveggjunum i baksýn. Yfir há- sumarið vex um eins metra hár burkni i sprungum, eins og blaðamaður sést fóta sig eftir á myndinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.