Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Blaðsíða 20
20
DV. LAUGARDAGUR11. JUNI1983.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 56., 59. og 61. tölublaði Lögbirtingablaðsms 1982 á
eigninni Smiðjuvegi 18, þingl. eign Skápavals, fer fram að kröfu Fiski-
málasjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 15. júní 1983 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 79., 81. og 85. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Ásbraut 9 hluta, þingl. eign Hjalta Kjartanssonar og Nínu
Sigurjónsdóttur, fer fram aö kröfu Landsbanka íslands, bæjarsjóðs
Kópavogs, skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi, Jónasar A. Aðalsteins-
sonar hrl. og Ólafs Ragnarssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn
15. júní 1983 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 27., 31. og 37. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Reynigrund 15, þinglýstri eign Ómars Jónassonar, fer fram
að kröfu Iðnaöarbanka íslands og Ara ísberg hdl. á eigninni sjáifri
miðvikudaginn 15. júní 1983 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 115., 122. og 124. töiublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Digranesvegi 38 hiuta, þingl. eign Magnúsar Ragnars Jóns-
sonar, fer fram að kröfu Einars Viðar hrl. og Veðdeildar Landsbanka
íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 15. júní 1983 kl. 11.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 39., 41. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Breiðvangi 12, 3. h. t. h., Hafnarfirði, þingl. eign Jóhanns
Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl. á
cigninni sjálfri þriðjudaginn 14. júní 1983 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn í Hafnaríirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Skúlaskeiöi 40, Hafnarfirði, tal. eign Sigur-
geirs Gíslasonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 14. júní 1983
kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 104, 107 og 111. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1981
á eigninni Suðurvangi 12,1. h. t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Sigurðar T.
Sigurössonar, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs og Hafnar-
fjarðarbæjar á eigninni sjálfri þriðjudaginn 14. júní 1983 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 24., 28. og 35. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
cigninni Grænukinn 9, kjallara, Hafnarfirði, þingl. eign Jóns Daníels-
sonar, fer fram eftir kröfu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 15. júní 1983 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 38., 42. og 45. tölublaði Lögbirtingablaösins 1982 á
eigninni Álfaskeiði 14, hluta, Hafnarfirði, þingl. eign Kristjáns S.
Hermannssonar, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 15. júní 1983 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 104., 107. og 111. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á
eigninni Byggðarholti 7, Mosfellshreppi, þingl. eign Árna J. Atlasonar,
fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 15.
júni 1983 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 88., 92. og 94. tölublaði Lögbirtingablaösins 1982 á
eigninni Aratúni 38, Garð:ikaupstað, þingl. eign Benedikts Bjöms-
sonar, fer fram eftir kröfu innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 14. júni 1983 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn i Garðakaupstað.
. 1 ....... ' " 1 11 .
Hvaða starf híður
falllnna þingmanna?
I síöustu kosningum gerðu kjós-
endur átta þingmenn atvinnulausa.
Fimm aðrir ákváðu að vera ekki
afturíkjöri.
I þessum hópi voru tveir sjálf-
stæðismenn, Geir Hallgrímsson, for-
maður flokksins, og Guömundur
Karlsson, þrír alþýöuflokksmenn,
Magnús H. Magnússon, varafor-
maður flokksins, Sighvatur
Björgvinsson þingflokksformaður og
Ámi Gunnarsson, tveir framsóknar-
menn, Jóhann Einvarðsson og
Ingólfur Guðnason og einn alþýöu-
bandalagsmaður, Olafur Ragnar
Grímsson, formaður þingflokksins.
Samkvæmt lögum eru þingmenn á
launum í þrjá mánuði eftir að þeir
hætta þingmennsku og í sex mánuði
ef þeir hafa setið á þingi í 10 ár eöa
lengur. Þaö síöamefnda á aðeins við
Geir Hallgrímsson.
En hvað er framundan hjá hinum
föllnu þingmönnum og hvaða störf
bíða þeirra þegar þingfararkaupinu
sleppir?
-ÓEF.
Ólafur Ragnar
Grímsson:
Prófessors-
stadan bídur
Olafur Ragnar Grímsson var
kjörinn á þing fyrir Reykvíkinga árif >
1978. Frá þeim tíma hefur hann verif >
í launalausu leyfi frá fyrri stöðu, sen
prófessor í stjórnmálafræði viö
Háskólann. Staðan bíöur hans enn,
en hann mun ekki taka við henni í
haust.
Ástæðan er sú aö Svanur
Kristjánsson, sem gegnt hefur stöðu
Olafs, er nú deildarforseti félags-
vísindadeildar og OlafurHarðarson,
sem á meðan gegnir stöðu Svans,
vinnur aö rannsóknarverkefnum.
,, Eg vil ekki hindra þá í aö gegna
þessum störfum,” segir Olafur. „Eg
mun á næstunni sinna ýmsum verk-
efnum fyrir flokkinn og aðra aðila.”
Saknarðu þingmennskunnar?
„Það er hægt að sinna pólitík víöar
en við Austurvöll.”
En muntu leita aftur eftir kjöri til
Alþingis?
,,Eg veit það ekki. Það er óvíst
hvað verður eftir þá mánuöi eða ár
sem líða fram að næstu kosningum,”
sagði Olafur. -ÓEF.
Magnús H.
Magniísson:
Ferímitt
gamla starf
,,Ég fer í mitt gamla starf sem
póst- og símstöðvarstjóri í Vest-
mannaeyjum. Það verður fljótlega,
þótt ég viti ekki hvenær,” sagði
Magnús H. Magnússon, varafor-
maður Alþýðuflokksins, en hann sat
á þingi fyrir Sunnlendinga frá árinu
1978. Áður hafði hann verið póst- og
símstöðvarstjóri í Vestmannaeyjum
frá árinu 1956 og bæjarstjóri um
skeið.
Saknarðu þingmennskunnar?
„Já,já, ég geriþað.”
Þú ferö þá í framboð aftur?
,,Ég reikna frekar meö því að leita
aftur eftir framboði. Eg er ekki
búinn að gefa þetta upp á bátinn
ennþá. En það getur að vísu margt
breyst á þessum árum fram að næstu
kosningum,” sagöiMagnús.
-ÓEF.
Jóhann
Elnvardsson:
Ekkert ad
flýta mér
„Eg hef ekkert starf fengið ennþá.
En staðreyndin er sú að ég er ekkert
að flýta mér. Eg taldi nauðsynlegt að
vita hvernig stjómarmyndun yrði og
hvort kosningar yröu í haust eða
ekki. Nú er ljóst að kosningar verða
ekki næstu 2 eða 4 árin,” sagöi
Jóhann Einvarðsson sem sat eitt
kjörtímabil á þingi fyrir Reykjanes.
„Það er alveg klárt að ég fæ ein-
hverja atvinnu þótt það sé ekki frá-
gengið ennþá. En ég get sagt eins og
stjómmálamennirnir: þaðermikiðí
pípunum.”
Saknaröu þingmennskunnar?
„Það er erfitt að svara þessu með
jái eða neii. Á vissan hátt sakna ég
hennar. Eins og aðrir sem tekið hafa
þátt í íþróttum finnst mér sárt að
tapa. En ég treysti mér til að byrja á
nýjum vettvangi.”
Hvers konar atvinnu óskaröu þér
helst?
„Eg hef aflað mér ýmiskonar
reynslu þannig að ég þarf ekki að
einskorða mig við neitt sérstakt,”
sagði Jóhann. -ÓEF.
Geir
Hallgrímsson:
Fékk
rádherra-
embætti
Geir Hallgrímsson, foimaður
Sjálfstæðisflokksins, hafði setið 21
þing sem þingmaður Reykvíkinga er
hann féll í síðustu kosningum.
Hann stóð snöfurmannlega að
sinni atvinnuleit, skundaöi upp í
stjórnarráð og fékk þar embætti
utanríkisráðherra. Þar hefur hann
tryggt sér um 70 þúsund króna
mánaöarlaun eins og aðrir ráð-
herrar, því þótt hann sitji ekki á
Alþingi hefur hann þar viðveru-
skyldu sem ráðherra og ber því þing-
fararkaup samkvæmt lögum. A þingi
hefur hann fullt málfrelsi á borð við
aðra ráðherra en ekki atkvæðisrétt.
-ÓEF.
Guðmundur
Karlsson:
Sakna ekki
þingsins
Guðmundur Karlsson sat á þingi
fyrir Sunnlendinga frá 1978 til 1983.
Hann var áður framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar í Vestmannaeyjum og
tók aftur viö því starfi eftir síðustu
kosningar. Hann er einn af hlut-
höfum fyrirtækisins.
„Nei, ég sakna þingmennskunnar
alls ekki,” sagði Guðmundur að-
spurður. ,jSg get ekki séð að það sé
starf sem eftirsjá er I. Þetta á
einfaldlega ekki við alla. Eg var
aldrei sáttur við þingmennskuna. Ég
fór upphaflega aðeins út í þetta til
prufu.”
Þú munt þá ekki sækjast eftir því
að komast í framboð aftur?
„Nei, ég geri ekki ráð fyrir því,”
sagðiGuðmundur. -ÓEF.
Árnl *
Gunnarsson:
Ýmíslegt
kemur til
grelna
„Það er ýmislegt sem kemur til
greina. Eg hef fengið tvö formleg
tilboð um atvinnu og eitt óformlegt.
En ég hef verið afskaplega rólegur
fram að þessu. Þó er það í burðar-
liðnum að ég geri þetta upp við mig,”
sagði Ámi Gunnarsson sem setið
hefur fimm þing fyrir Norðurland
eystra.
Er þér eftirsjá að þingmennsk-
unni?
„Já, óneitanlega sé ég eftir þing-
mennskunni. Þaö væri kokhreysti að
segja annað. Þetta er spurning um
að koma fram góðum hlutum, en
tekjulega er þetta ekki eftirsóknar-
vert.”
Þú munt þá gefa kost á þér aftur?
„Það væri nú að svara út í hött að
gefa ákveðiö svar við þessu. Ef
maður tekur við starfi þá fylgir því
hálfgildings krafa um að hætta
afskiptum af pólitík. .Þetta verður
því bara að koma í ljós,” sagöi Árni.
-ÓEF.