Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1983, Blaðsíða 24
DV. LAUGARDAGUR11. JUNI1983. 24 Með fyrstu bílferðum \ inn á íslenshu öræfín ið ímyndaalbúm Úlfars Jacobsen frá árinu 1949 Eins og fram kemur í helgarviðtalinu við Úlfar Jacobsen hér að framan, þá hefur hann farið hundruð ferða inn á íslensku öræfin á hartnœr fjörutíu ára ferli sínum sem bílstjóri, leiðsögumaður og ferðaskrifstofueigandi. Fgrstu ferðirnar inn í óbgggðirnar þegar engar vega- slóðir voru fgrir hendi, hvað þá brgr, og Úlfar átti leið um svœðið sem einn af frumkvöðlunum, eru honum að sjálfsögðu eftirminnilegastar. Þœr voru viðburðaríkar flestar hverjar og óneitanlega meiri sjarmi gfir þeim en þeim ferðum sem farnar eru í dag á fullkomnum og vel út búnum langferðabílum. Við lítum í mgndaalbúm Úlfars frá þessum tíma, eða frá sumrinu 1949, þegar fgrstu bíl- arnir voru að leggja leið sína inn á hálendið. Bílaflotinn þetta sumar var þrír jeppar, einn Dodge Weapon og tveir Dodge Carry-all. En myndirnar tala sínu máli. SER. Þótt ólíklegt megi virðast er þessi mynd tekin um hásumar norður í Dyngjufjalladal. „Já, hann tók óforvarandis að skvetta úr sér hvítu þarna i miðjum júlímánuði, en menn létu það ekki á sig fá, enda við öllu búnir." Fyrsta jeppaferðin gegnurr Lindarhraun inn i Herðubreiðar lindir. Jeppinn er af Doge Carry all gerð og tíminn er júní 1949. Á leið niður sandbarð á Fjallabaksleið milli Landmannalauga og Éldgjár. Tveir fyrstu jepparnir eru komnir niður og sá þriðji er á leiðinni. uCAH Ulfar Jacobsen við eina bækistöð sína. Myndin er tekin 1949. Á spjaldinu neðst til vinstri stendur: „Náði i fleiri bila. Sæti laus á laugardag." Og þar með vissu menn það! Ósjaldan hefur þurft að skipta um hjöruliði í bílum Ulfars i öræfa- ferðunum, enda torfærurnar viðast miklar. Hér sést Úlfar ásamt samstarfsmönnum sinna einni slikri „aðgerð". „Maður notaði farþegana óspart sem þræla, þegar þurfti að aðstoða bílgreyin eftir slóðunum," segir Úlfar þegar hann virðir þessa mynd fyrir sér. „Ég var staddur með fólkið við Suðurárbotna og þurfti þar aðeins að bregða mér frá til að kasta vatni. Heldurðu ekki að ég finni þá haug með þremur dysjuðum beinagrindum. Þarna er ég sem sagt að hrófla í mannabeinunum," segir Úlfar. Ferðahópurinn staddur að kvöldlagi inni við Herðubreiðarlindir. Varðeldurinn logar og Ulfar — sem er vel iiðtækur á slaggigjuna — spilar fyrir liðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.