Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Blaðsíða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. JULl 1983. Útlönd Útlönd Útlönd 9 Útlönd Borgarastyrjaldar á Spáni ekki minnst landi, væri ógnaö ef Chad félli í hendur stuöningsmanna Libýu. Þeir gáfu í skyn aö vopnasendingum yrði haldiö áfram ef ástæöa væri til. Ostaöfestar heimildir herma aö franskir málaliðar berjist við hlið stjómarhersins. Ráöherra í ríkis- stjóm Habre hefur neitaö því en seg- ir að franskir sérfræöingar og tækni- ráðgjafar séu hemum til aöstoöar án þess að taka þátt í hernaöaraðgerð- um. Búist er við aö stjómarherinn muni næstu daga gera árás á bæki- stöövar uppreisnarmanna í borginni Fada í norðurhluta landsins. Ef Fada kæmist í hendur stjórnarhers- ins gæti það orðið mikilvægt skref til atlögu aö aöalbækistöövum Gouko- uni Queddei, leiötoga uppreisnar- manna, sem er fyrrum forseti Chad. Hissene Habre, f orseti Chad. Frakkar og Bandarikjamenn keppast nú viö að senda honum hergögn. Samið um herstöð á Azoreyjum Viöræöur eru aftur hafnar milli stjórnar Portúgals og Bandaríkj- anna um áframhaidandi afnot Bandaríkjahers af herflugvellinum áAzoreyjum. Bandarikjaher hefur haft afnot af vellinum i þrjá áratugi en samningur rikjanna þar aö lútandi rann út í febrúar. Viöræðum ríkj- anna um framlengingu samnings- ins var frestaö í hálft ár vegna óvissu í portúgölskum stjórnmál- um, sem lauk meö myndun rikis- stjómar mið- og vinstriflokkanna í siðasta mánuöi. Síðasti samningur ríkjanna fól í sér efnahagsaöstoð Bandaríkjanna viö eyjamar er nam jafnvirði tveggja milljaröa ís- lenskra króna og eins milljaröar framiags í hergögnum. Búist er viö að Portúgalir setji fram háar fjár- kröfur fyrir framlengingu samningsins en Bandaríkjamenn krefjist á móti aöstöðu í Portúgal. Var það kafbátur? Almenningur fær að vita allt um kafbátaleitina sem fram fór í Harðangursfirði í Noregi í apríl og maí síðastliönum í næsta mánuöi. Þá verður opinbemö skýrsla sem unnin hefur verið um atburðinn á vegum norska hersins. Skýrslan var lögð fyrir yfirstjóm hersins í síöustu viku og mun hún kynna sér efni hennar áöur en aimenningi gefst kostur á aö vita hvað gerðist þessa daga sem norski herinn skaut 24 tundurskeytum og 6 djúpsprengjum að einhverju sem taliö var óþekktur kafbátur. styrjaldarinnar sem leiddi til afháms lýöræðisins í landinu. Stjómin hefur bannaö aö halda hátíöarhöldin í Dal hinna föllnu í nágrenni Madrid þar sem mörg fórnarlömb borgara- styrjaldarinnar eru grafin. Þar var Franco einnig grafinn eftir dauöa sinn áriö 1975. Stuðningsmenn hans og aörir hægrimenn hafa reglulega komið þar saman til aö minnast valdatöku Francos. Stjómin hefur einnig komið i veg fyrir hátíðarhöld hægrimanna í fimm öörum borgum. Talsmaður stjómarinnar segir aö hátíðarhöld í tilefni af upphafi borgarastyrjaldarinnar geti endur- vakið gamlan ágreining sem best væri gleymdur. Stjórnin hefur viljaö koma í veg fyrir aö hægrisinnar héldu uppi áróðri og nýveriö voru sjö liðsforingjar í hemum settir í stofufangelsi fyrir aö skrifa greinar I málgagn hægri- sinnaöra öfgamanna, E1 Alcazar, þar sem krafist var sakaruppgjafar fyrir þá liösforingja sem sitja i fangelsum fyrir tilraun til valdaráns áriö 1981. — f ranskir málaliðar sagðir berjast með stjórnarhernum öfgasinnaöir hægrimenn á Spáni styrjöldin hófst 18. júlí 1936 og stóð í halda árlega upp á upphafsdag þrjúár. borgarastyrjaldarinnar sem fleytti Hægrimenn eiga nú í deilum viö Franco hershöfðingja í sæti einræðis- spænsku sósíalistastjómina sem vill herra Spánar fyrir 44 árum. Borgara- koma i vee fyrir aö minnst sé Spánverjar eru ekkl búnir að gleyma Franco, einræðisherra Spánar í fjóra ára- tugi. Myndin sýnir hann sem herforingja í borgarastyrjöldinni. ® V-þýsk TOV , £ZZ., viöurkenning Hjól & Vagnar Háteigsvegi 3, 105 Reykjavik,S^(91fStStl ar^ Bandarík jastjórn tilkynnti í gær aö hún myndi senda hergögn að verð- mæti 10 milljónir dollara til Chad. Hergögnin veröa send flugleiðis og em ætluð til aö styrkja stjómina i Chad i baráttunni viö uppreisnar- menn sem Bandarikjastjóm segir að séu studdir af Líbýu. Ætlaö er aö hergögnin verði send í þessari viku. Þau koma til viöbótar aöstoö Frakklands við ríkisstjórn Hissene Habre, forseta Chad, en Frakkar hafa sent honum matvæli, fatnað og hergögn. Bandarískir embættismenn til- kynntu aö aöstoöin væri send vegna hættunnar á aö nágrannaríkjum Chad, einkum Súdan og Egypta- Úrval af Kettler þrihjólum er nú fyrirliggjandi, hjólin eru traust og endingargóð, og hafa þau hlotið viðurkenningu i V-Þýskalandi. Kettler þrihjól, litil og stór á lager. VERÐ FRÁ KR. 1190,— Mitterrand og Kohlá fundiígær: Flugskeytin umræöuefni leiðtoganna Mitterrand Frakklandsforseti og Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, hittust í gær til að ræöa fyrirhug- aða staösetningu bandarískra kjamorkuflugskeyta í Evrópu. Viðræður þeirra áttu sér staö í Dabo í noröurhluta Frakklands, á svæöi sem oft hefur veriö deiluefni milli ríkjanna. Kohl sagöi viö fréttamenn í gær að hann heföi kynnt Mitterrand stuttlega viðræöur sínar viö Yuri Andropov og einnig heföu þeir skipst á skoðunum um kjarnorku- flugskeytin. Ríkisstjórnir beggja landanna em sammála um nauösyn þess að koma kjarnorkuflugskeytunum fyrir, ef afvopnunarviðræöurnar í Genf leiöa ekki tii neinnar niður- stööu. Þýska stjómin er þó von- betri um árangur af viðræðunum. Haft hefur veriö eftir talsmanni frönsku stjórnarinnar aö þýska stjórnin taki of mikiö miö af gagn- rýni á flugskeytin sem komið hefur fram í Þýskalandi og einnig hótun- um Sovétmanna um aö gripa tU gagnaögeröa ef af þessum fyrirætl- unumveröur. Mitterrand sagöi eftir fundinn í gær aö einnig hefði verið rætt um hvort Þjóðverjar ættu aö greiða íbúum Elsass og Lótringen skaöa- bætur vegna þess aö nasistar neyddu þá til herskráningar í síðari heimsstyrjöldinni. Forsetinn vUdi ekki greina nánar frá þessum umræðum. Á fundinum tUkynnti hann Kohl kanslara aö Frakkland myndi afhenda aftur 700 hektara skóglendi á landamærum ríkjanna, en þetta svæði var innlimað í Frakkland eftir síöari heims- styrjöld. ánægja yngsta fólksins! CHAD FÆR HERGÖGN FRÁ BANDARÍKJUNUM KETTLER ÞRÍHJÓL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.