Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1983, Blaðsíða 14
DV. LAUG ARDAGUR 23. JOU1869.
'yym
mm0i
. «
,,:Vx: ':W;
y-x
: '
Hópur sólarsinna var að sögn forstöðumanna mótmælanna llðlega tvö hundruð talsins og hvað sem öllum tölum líður var þetta ákaflega vfgreift lið.
K£9II
'V >
■
Mótmælin við veðurstofuna í gær:
GERUMÁGÚST
ÓGLEYMANLEGAN
Frá því land byggðist hefur hér í
Reykjavík og víöa um land stundum
verið sól á sumrum. Þessi sól hefur
lítið látið á sér kræla þaö sem af er
þessu sumri.
Vikum saman höfum við landsmenn
rýnt í kaldgráan himininn og tekiö við
regni á signar axlirnar. Sumarið hefur
verið á almanakinu, það hefur verið
erlendis og fregnir hafa borist um það
á Austfjörðum. En það hefur yfirleitt
hvorki verið á suðvesturhorninu né
annars staðar á landinu.
Hverjum er um aökenna? Sólarsinn-
ar hafa fulla ástæðu til aö ætla aö
einhver eða allur hluti sakar hvíli á ís-
lenskum veðurfræðingum, mönnum
sem lokið hafa löngu og ströngu námi
erlendis, fríðum hópi semí sumarhefur
ekki einu sinni treyst sér til að spá:
Glaðnar til með deginum.
Veöurkortið í sjónvarpstímum hefur
verið alsett vindörvum, rigningar-
stjörnum og svörtum dumbungshringj-
um dag eftir dag.
Samtök sólarsinna söfnuöust saman
við Veðurstofuna í gær undir kjörorð-
inu: Gott veður um allt land því þeir
trúa því að hægt verði með samstilltu
átaki að breyta veðrinu til hins betra.
Jákvæðar og ákveönar veðurspár þar
sem öllum landsmönnum er gert jafn-
hátt undir höföi án tillits til búsetu eru
frumskilyrði fyrir því að árangur
náist.
Veðurspámönnum var afhent kort
þar sem sólin skein á alla landsmenn
meö von um aö það yrði þeim hvatning
til dáöa.
Enn er hægt að bjarga: Gerum ágúst
ógleymanlegan og haustið milt!
-SGV.
Við vfljum sólskin, var hrópað.
UM
Alfí
ÍAHO
r
i.r«á
tinr
c
*,
SOL
m''z Kiri
§ SOL
STOFAH F
^NJÖA IA
SOL
Við gerð kröfuspjalda höfðu grelnflega margir iistamenn lagt haga hönd.
Agnar Guðnason, blaðafulltrúi bændasamtakanna, flutti örstutt ávarp og
afhenti geysiálitlegt veðurkort.